hellisheidi geothermal power plant on grass field under a cloudy sky

Varða – vettvangur um viðnámsþrótt og Brooks Tech Policy Institute (BTPI) við Cornell háskóla héldu viðburð í tengslum við Hringborð Norðurslóða 2025 um nytsemi strategískra borðæfinga (e. strategic simulations) fyrir Ísland. Fundurinn fór fram í trúnaði undir Chatham House reglu. Lykilaðilar úr stjórnmálum, stjórnsýslu, atvinnulífi og fræðasamfélagi ræddu hvernig slíkar æfingar gætu nýst á Íslandi til að efla viðnámsþrótt og stefnumótun á sviði þjóðaröryggismála.

Helstu umræður

Fulltrúar BTPI kynntu alþjóðlegt samhengi borðæfinga og hvernig þær hafa reynst árangursríkt tæki við að meta áhættu, móta viðbrögð og prófa áætlanir. Fulltrúarnir sögðu sérstaklega frá reynslu sinni af borðæfingum með Bandaríska þinginu um stórslys á Norðurslóðum og æfingum um einangrun Svalbarða sem haldnar hafa verið fyrir Breska flotann.

Fulltrúar Vörðu settu strategískar borðæfingar í samhengi við þróun umræðu og stefnumótunar í varnar- og öryggismálum á Íslandi og bentu á möguleika þeirra sem tækis við að auka viðnámsþrótt og öryggi landsins. Sérstaklega var bent á að borðæfingar geta

  • tengt saman og þjálfað samskipti stjórnkerfis, fyrirtækja og annarra aðila með raunhæfum sviðsmyndum;
  • stuðlað að betra samtali milli stefnumótunar og rekstrar á sviði öryggis, innviða og viðbúnaðar;
  • nýst sem verkfæri til að greina veikleika og styrkleika í íslenskum viðbragðskerfum;
  • þjálfað leiðtoga í samhæfingu og strategískum samskiptum í tengslum við átök og óhöpp.

Í kjölfar inngangs var þátttakendum skipt í hópa sem mótuðu tillögur að sviðsmyndum sem vert væri að skoða fyrir íslenskt samhengi. Hóparnir kynntu sviðsmyndirnar í lok viðburðarins, auk þess að forgangsraða þeim með punktakosningu. Þær sviðsmyndir sem hlutu mesta kosningu voru t.d brostnar aðfangakeðjur (óháð ástæðu), sprengjuááras á heitavatnslagnir um hávetur og netárás sem veldur tæmingu uppistöðulóna á versta tíma (og þar af leiðandi rafmagnsleysi yfir fleiri mánuði).

Þátttakendur töluðu um að æfingin hafi verið áhugaverð og mikilvægi þess að hóparnir voru þverfaglegir. Þá komu margar hugmyndanna þeim á óvart. Þá var bent á að flestar sviðsmyndirnar gerðu ráð fyrir innlendu áfalli, sem bendir til tækifæris í að skoða æfingar sviðsmyndir þar sem samskipti við aðrar þjóðir eru lykilatriði.

Næstu skref

Fulltrúar Vörðu munu greina þær hugmyndir sem fengu mestan áhuga þátttakenda til frekari þróunar í samstarfi við BTPI. Kallaðir verða til viðeigandi sérfræðingar til frekara samráðs og hugarflugs til að rýna og greina möguleika þeirra til framkvæmdar sem stefnt er að í framhaldi.

Að neðan má hlaða niður samantekt á PDF-sniði á íslensku og ensku.

Discover more from Varða - hugveita um þjóðaröryggi

Subscribe now to keep reading and get access to the full archive.

Continue reading