-
Nýtt Tímarit Vörðu um þjóðaröryggi hefur göngu sína

Varða, hugveita um þjóðaröryggi, hefur hafið útgáfu á fyrsta tímaritinu á Íslandi sem fjallar um þjóðaröryggi og alþjóðamál. Fyrsta tölublaði gestaritstýrir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, en meðal greinarhöfunda eru Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra, Jenny Hill sendiherra Kanada á Íslandi, Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF og Garðar Forberg, liðsforingi og fyrrum fulltrúi Íslands…
-
Að finna og fæla: Ógnir vegna dróna og gloppur í opinberum viðbragðskerfum

Drónatengd atvik hafa aukist verulega í Evrópu á síðustu árum og valdið truflunum á flugvöllum, höfnum og öðrum innviðum. Árið 2025 leiddu meðal annars óþekktir drónar til lokana á flugvöllum í Danmörku og Noregi og svipuð atvik við Keflavíkurflugvöll vöktu athygli hér á landi. Þróunin hefur ekki gengið til baka. Þvert á móti hafa nýleg…
-
Allt er þegar þrennt er: Þriðja áfallið á fimm árum ætti að leiða til átaks í uppbyggingu öryggisbirgða á Íslandi

Samantekt Greining Vörðu bendir til þess að yfir 50% íslensks vöruinnflutnings samanstandi af vöruflokkum sem geta orðið fyrir áhrifum af lokun Hormússunds. Hugsanlega einskorðast áhrifin við verðhækkanir, en langvarandi truflun á skipaumferð í Persaflóa eykur hættuna á að afhending aðfanga skerðist, dragist, eða falli alfarið niður. Uppsafnaður skortur og eyðilegging framleiðslugetu veldur því að þó…
-
Frjór jarðvegur en lítið úthald: Ný greining hugveitunnar Vörðu um hamfaravitund- og viðbúnað íslensks almennings

Fyrsta heildstæða könnunin á hamfaravitund og -viðbúnaði íslensks almennings leiðir í ljós að traust er mikið og viðhorf jákvæð, en raunverulegur viðbúnaður er veikur, sérstaklega þegar truflanir vara lengur en í tvo til þrjá daga. Könnunin var framkvæmd af Gallup á vegum Vörðu haustið 2025 og niðurstöður bornar saman við evrópska Eurobarometer-könnun um sama efni.…
-
Flotinn sem fór: Kaupskipaleysi Íslands er þjóðaröryggismál

Nú eru engin kaupskip skráð á Íslandi en árið 1987 voru þau 39. Öll skip íslenskra útgerða sigla undir erlendum fánum, t.d. færeyskum, norskum, eða hollenskum, þrátt fyrir að yfir 90% af vöruviðskiptum Íslands berist sjóleiðis. Eldsneyti, matvæli, lyf og byggingarefni berast því nær eingöngu með skipum sem Ísland hefur enga lögsögu yfir. Það er…
-
Rússnesk skemmdarverk, innviðir og Ísland

Fyrir nokkrum mánuðum tilkynnti Beate Gangås, forstjóri norsku öryggisþjónustunnar PST, að rússneskir hakkarar hefðu náð yfirráðum yfir stíflu í Bremanger. Árásaraðilarnir opnuðu fyrir stífluna og í fjórar klukkustundir runnu 500 lítrar á sekúndu úr henni. Þó að árásin hafi verið í apríl var það ekki fyrr en um haustið sem PST gat fullyrt að Rússar…
-
Staða Íslands í ógnarstríði Rússa rædd á Bylgjunni

Kristinn Árni L. Hróbjartsson, meðstofnandi Vörðu, var til viðtals hjá Heimi Karlssyni og Lilju Karlsdóttir í Bítinu á Bylgjunni um nýútkomna skýrslu um skemmdarverk Rússa í Evrópu. Hægt er að hlusta í hlekknum hér að neðan. https://www.visir.is/k/c9decc77-18d4-4fb3-8fc7-abeadec53dbd-1770882088400/hver-er-stada-islands-i-ognarstridi-russa-
-
Gráa svæðið: Rússnesk skemmdarverk, innviðir og Ísland

Öryggisumhverfi Evrópu hefur breyst verulega frá innrás Rússlands í Úkraínu árið 2022. Skemmdarverk gegn borgaralegum innviðum eru nú orðin fastur liður í utanríkisstefnu Rússlands og er beitt markvisst á gráu svæði milli stríðs og friðar. Markmiðið er að raska starfsemi samfélaga, skapa óvissu og auka kostnað án þess að kalla fram hefðbundin hernaðarleg viðbrögð. Ný…
-
Brestir eða brot: Staða varnarsamstarfs Íslands

Samantekt úr hringborðsumræðu sem fór fram 26. nóvember 2025. Náðu í PDF útgáfu hér | Download a PDF version in English here Varða, í samstarfi við Dag B. Eggertsson, þingmann og formann Íslandsdeildar NATO-þingsins, efndi þann 28. janúar til hringborðs um varnarsamninga og varnarsamstarf. Í bakgrunni voru nýleg ávörp í Davos og sú spenna sem…
-
Varða skipar ráðgjafaráð

Varða, hugveita um öryggismál og viðnámsþrótt, hefur skipað fimm manna ráðgjafaráð. Varða er sjálfstæð hugveita sem vinnur að því að efla þjóðaröryggi og viðnámsþrótt Íslands. Meðal markmiða er að festa í sessi nýjan og óháðan vettvang á Íslandi um þessi mikilvægu en flóknu málefni. Ráðgjafaráð Vörðu er skipað reynslumiklum sérfræðingum sem styðja við faglega þróun…
