Flotinn sem fór: Kaupskipaleysi Íslands er þjóðaröryggismál
Nú eru engin kaupskip skráð á Íslandi en árið 1987 voru þau 39. Öll skip íslenskra útgerða sigla undir erlendum fánum, t.d. færeyskum, norskum, eða hollenskum, þrátt fyrir að yfir 90% af vöruviðskiptum Íslands berist sjóleiðis. Eldsneyti, matvæli, lyf og byggingarefni berast því nær eingöngu með skipum sem Ísland hefur enga lögsögu yfir. Það er …
Nú eru engin kaupskip skráð á Íslandi en árið 1987 voru þau 39.1 Öll skip íslenskra útgerða sigla undir erlendum fánum, t.d. færeyskum, norskum, eða hollenskum, þrátt fyrir að yfir 90% af vöruviðskiptum Íslands berist sjóleiðis.2 Eldsneyti, matvæli, lyf og byggingarefni berast því nær eingöngu með skipum sem Ísland hefur enga lögsögu yfir.
Það er ekki tæknilegt vandamál að Ísland hafi engin kaupskip undir sinni lögsögu heldur er það hreinræktað þjóðaröryggismál. Stöðugar birgðakeðjur og aðgengi að aðföngum er grundvallaratriði fyrir öryggi sérhverrar þjóðar. Það ræðst af skráningu hvaða ríki hefur lögsögu yfir skipi því á grundvelli lögsögunnar getur það kallað eftir þjónustu á neyðartímum.3 Íslensk stjórnvöld hafa enga slíka heimild yfir þeim skipum sem sinna flutningum til og frá landinu.
Tvær tilraunir til að koma á fót alþjóðlegri íslenskri skipaskrá hafa mistekist og ólíklegt er að standsetning nýrrar skrár sé raunhæfur kostur til skemmri tíma.4 Aðgerðarleysi er þó ekki góður kostur.
Varða leggur til að íslensk stjórnvöld kanni möguleika á samstarfi við siglingamálastofnun Færeyja (FMA) um rekstur íslenskrar alþjóðlegrar skipaskrár. Ísland myndi þá setja lagaumgjörðina en fela daglegan rekstur skrárinnar þeirri stofnun sem íslenskar útgerðir þekkja þegar og treysta. Fyrir slíku samstarfi eru þegar fordæmi. Þau skip sem nú sigla undir færeyskum fána gætu flutt sig á íslenskan fána án þess að breyting yrði á þjónustu, og Ísland þannig öðlast aftur lögsögu yfir skipunum. Þessi nálgun hefur skýrar fyrirmyndir í rekstri stærstu skipaskráa heims, til dæmis Líberíu og Marshalleyja, sem eru útvistaðar til þriðja aðila, án þess þó að lögsaga og fánaheimildir séu framseldar.
Heimildir
- Guðjón Guðmundsson. Ekkert kaupskip á íslenskri kaupskipaskrá. Fiskifréttir, 11. desember 2025. Fiskifrettir.vb.is
- World Trade Organization. Trade Policy Review: Iceland — Summary. WT/TPR/S/454, 17. apríl 2023. WTO.org; Hagstofa Íslands. Innflutningur eftir vöruflokkum, sótt 1. mars 2026, px.hagstofa.is; Hagstofa Íslands. Vöruflutningar um hafnir, sótt 1. mars 2026, px.hagstofa.is.
- United Nations. United Nations Convention on the Law of the Sea. Montego Bay, 1982, 91. og 94. gr. UN.org
- Fjármála- og efnahagsráðuneytið. Alþjóðleg skráning skipa: raunhæfur möguleiki? Reykjavík, nóvember 2014. Stjornarradid.is; Innviðaráðuneytið. Drög að frumvarpi til laga um íslenska alþjóðlega skipaskrá. Samráðsgátt stjórnvalda, mál nr. S-92/2021, 31. mars 2021. Island.is
Flotinn sem fórKaupskipaleysi Íslands er þjóðaröryggismálLesa →