Gleym mér ei
Stóraukið álag á sérsveit ríkislögreglustjóra kallar á uppbyggingu og fjármagn

Árið 2025 sinnti sérsveit ríkislögreglustjóra 424 vopnaútköllum, að jafnaði fleiri en einu á dag. Útköllin hafa því rúmlega sjöfaldast síðan árið 2014. Mönnun sveitarinnar hefur á sama tíma breyst lítið frá 2008. Vorið 2025 voru alls 46 sérsveitarmenn starfandi, eða tíu færri en heimild er fyrir.








