Fréttir og umfjöllun
Fréttatilkynningar, ný útgáfa, aðsendar greinar og umfjöllun um efni Vörðu í íslenskum fjölmiðlum.
24. september 2026 Álagið á sérsveitina til umfjöllunar í Morgunblaðinu, á Vísi og RÚV Greining Vörðu, Gleym mér ei, var í fréttum Morgunblaðsins, Vísis og RÚV daginn sem hún kom út. Yfirmaður greiningardeildar ríkislögreglustjóra segir álagið mikið og dómsmálaráðherra telur að sveitin gæti hæglega verið 70–80 manns.
20. ágúst 2026 Varða í viðtali vegna þjóðaratkvæðagreiðslu Í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar um framhald ESB-viðræðna ræddi evrópski miðillinn New Union Post við Kristin Árna L. Hróbjartsson, forstöðumann Vörðu, um öryggis- og varnarmálahlið umræðunnar.
13. ágúst 2026 Drónar og fjölþáttaógnir í Speglinum Spegillinn á RÚV fjallaði um drónaógnir og fjölþáttaógnir og ræddi við Kristin Árna L. Hróbjartsson um skýrslu Vörðu og BTPI, Að finna og fæla.
30. júní 2026 Nýtt Tímarit Vörðu um þjóðaröryggi hefur göngu sína Varða, hugveita um þjóðaröryggi, hefur hafið útgáfu á fyrsta tímaritinu á Íslandi sem fjallar um þjóðaröryggi og alþjóðamál. Fyrsta tölublaðinu gestaritstýrir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, en meðal greinarhöfunda eru Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra, Jenny Hill sendiherra Kanada á Íslandi, Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF og Garðar Forberg, liðsforingi og fyrrum fulltrúi Íslands …
15. júní 2026 Minniháttar röskun gæti haft alvarlegar afleiðingar Vísir fjallaði um skýrslu Vörðu og BTPI við Cornell-háskóla um drónaógnir: vegna einangrunar landsins gæti minniháttar röskun haft alvarlegar efnahagslegar afleiðingar.
6. maí 2026 Það er ekki víst að þetta reddist Kristinn Árni L. Hróbjartsson og Hafsteinn Hauksson skrifa á Vísi um þriðja aðfangaáfallið á fimm árum og öryggisbirgðir Íslands í ljósi lokunar Hormússunds.
30. apríl 2026 Samtal Vörðu og KAS um samstarf Íslands, Norðurlanda og Þýskalands Varða og Norðurlandaáætlun Konrad-Adenauer-Stiftung efndu til samtals í Reykjavík 26. mars um samstarf Íslands, Norðurlanda og Þýskalands í öryggis- og varnarmálum.
12. apríl 2026 Hamfaravitund Íslendinga í Bítinu, Morgunblaðinu og á RÚV Könnun Gallup fyrir Vörðu á hamfaravitund og viðbúnaði almennings var til umfjöllunar í Bítinu á Bylgjunni, í Morgunblaðinu og í Morgunvaktinni og Speglinum á RÚV.
25. mars 2026 Kaupskipaleysið til umfjöllunar hjá RÚV og Vísi Fjölmiðlar fjölluðu um greiningu Vörðu, Flotann sem fór, við útgáfu hennar: ekkert kaupskip er skráð á Íslandi þótt um 90% vöruviðskipta landsins fari sjóleiðis.
25. mars 2026 Flotinn sem hvarf: Líflína Íslands undir erlendum fánum Árið 1987 voru 39 kaupskip skráð á Íslandi. Í dag siglir ekki eitt einasta flutningaskip undir íslenskum fána. Meira en 90% af öllum vöruviðskiptum okkar berast sjóleiðis. Þetta á ekki bara við um neysluvarning, heldur undirstöður íslenskrar matvælaframleiðslu og iðnaðar: Áburður á tún, varahlutir í landbúnaðarvélar, fóður fyrir laxeldi og stál og timbur í byggingar …
24. mars 2026 Flotinn sem fór: Kaupskipaleysi Íslands er þjóðaröryggismál Nú eru engin kaupskip skráð á Íslandi en árið 1987 voru þau 39. Öll skip íslenskra útgerða sigla undir erlendum fánum, t.d. færeyskum, norskum, eða hollenskum, þrátt fyrir að yfir 90% af vöruviðskiptum Íslands berist sjóleiðis. Eldsneyti, matvæli, lyf og byggingarefni berast því nær eingöngu með skipum sem Ísland hefur enga lögsögu yfir. Það er …
16. febrúar 2026 Rússnesk skemmdarverk, innviðir og Ísland Fyrir nokkrum mánuðum tilkynnti Beate Gangås, forstjóri norsku öryggisþjónustunnar PST, að rússneskir hakkarar hefðu náð yfirráðum yfir stíflu í Bremanger. Árásaraðilarnir opnuðu fyrir stífluna og í fjórar klukkustundir runnu 500 lítrar á sekúndu úr henni. Þó að árásin hafi verið í apríl var það ekki fyrr en um haustið sem PST gat fullyrt að Rússar …
15. febrúar 2026 Staða Íslands í ógnarstríði Rússa rædd á Bylgjunni Kristinn Árni L. Hróbjartsson, meðstofnandi Vörðu, var til viðtals hjá Heimi Karlssyni og Lilju Karlsdóttir í Bítinu á Bylgjunni um nýútkomna skýrslu um skemmdarverk Rússa í Evrópu. Hægt er að hlusta í hlekknum hér að neðan. https://www.visir.is/k/c9decc77-18d4-4fb3-8fc7-abeadec53dbd-1770882088400/hver-er-stada-islands-i-ognarstridi-russa-
14. febrúar 2026 Norðurslóðavarðstaða NATO: vitnað í Gráa svæðið í Morgunblaðinu Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra, vitnaði í greiningu Vörðu um rússnesk skemmdarverk í grein sinni um norðurslóðavarðstöðu NATO í Morgunblaðinu.
31. janúar 2026 Varða skipar ráðgjafaráð Varða, hugveita um öryggismál og viðnámsþrótt, hefur skipað fimm manna ráðgjafaráð. Varða er sjálfstæð hugveita sem vinnur að því að efla þjóðaröryggi og viðnámsþrótt Íslands. Meðal markmiða er að festa í sessi nýjan og óháðan vettvang á Íslandi um þessi mikilvægu en flóknu málefni. Ráðgjafaráð Vörðu er skipað reynslumiklum sérfræðingum sem styðja við faglega þróun …
30. desember 2025 Nýtt ár, nýr veruleiki, nýtt samtal Eftirfarandi grein birtist, örlítið breytt, fyrst á Vísi.is þann 29. desember 2025. Á árinu sem er að líða breyttist öryggisumhverfi Evrópu til hins verra svo miklu munar. Viðbrögð nágranna okkar og frændþjóða á norðurlöndunum létu ekki á sér standa. Danmörk breytti reglum um herskyldu svo nú geta konur verið kvaddar til herskyldu til jafns við …
10. desember 2025 Eitthvað hefur breyst Þegar æðstu ráðamenn Íslands ræða á hreinskiptinn hátt við almenning um að landið sé ekki lengur á lágspennusvæði, að fjölþáttaógnum í garð þess fari fjölgandi og að innviðir landsins – einkum neðansjávarinnviðir – séu berskjaldaðir, er ljóst að eitthvað hefur breyst. Lega landsins, sem áður gaf tilfinningu fyrir fjarlægð og skjóli, gerir það ekki lengur. Ísland …
8. desember 2025 Ný IISS-skýrsla um öryggis- og varnarmálastefnu Íslands Breska hugveitan International Institute for Strategic Studies (IISS) hefur unnið sjálfstæða greiningu á nýrri öryggis- og varnarmálastefnu Íslands að beiðni Vörðu – vettvangs um viðnámsþrótt. Í greiningu sinni metur IISS nýju stefnu stjórnvalda sem bæði tímabæra og raunhæfa. Stefnan tekur skýrt mið af breyttu öryggisumhverfi: óhefðbundnu stríði Rússlands gegn Evrópu, viðvarandi netárásum og efnahagslegum þrýstingi. Stefna …
8. desember 2025 „Small state, big exposure“ – International Institute for Strategic Studies skrifar um Ísland Charlie Edwards, greinandi hjá bresku hugveitunni International Institute for Strategic Studies (IISS) birti nýverið pistil um stefnu íslenskra stjórnvalda í öryggis- og varnarmálum. Pistillinn byggir að miklu leyti á vinnu sem Charlie vann að beiðni Vörðu, en IISS gerði samanburðargreiningu á nýja stefnu Íslands í málaflokknum. Charlie skrifar: „Iceland’s geostrategic location, once a source of security, …