Björn Rafn Gunnarsson
Forstöðumaður gagnavísinda hjá SHAPE, yfirherstjórn NATO í Evrópu
Gestasérfræðingur Vörðu (Varða fellow) 2026–2027
Björn Rafn Gunnarsson er forstöðumaður gagnavísinda hjá SHAPE, yfirherstjórn NATO í Evrópu, þar sem hann leiðir gagnavísindastarf sem styður við uppbyggingu getu NATO til að meta upplýsingaumhverfið. Í starfi sínu tengir hann saman gagnavísindi og stefnumarkandi samskipti. Áður en hann hóf störf hjá NATO var hann rannsakandi við KU Leuven-háskóla í Belgíu, þar sem hann lauk doktorsprófi árið 2023. Í doktorsritgerð sinni, Deep Learning for Process and Business Analytics, fjallaði hann um vélnámsaðferðir til að spá fyrir um framvindu ferla og meta lánshæfi. Rannsóknir hans hafa einnig snúið að notkun gagnagreiningar í rekstri, meðal annars í flugi. Áður en hann flutti til Belgíu stýrði Björn megindlegum rannsóknarverkefnum og starfaði við gagnagreiningu hjá Háskóla Íslands.
Skrif
Ekkert birt á vefnum enn.