Brynja Huld Óskarsdóttir
Forstöðumaður vísinda- og tækninefndar NATO-þingsins
Gestasérfræðingur Vörðu (Varða fellow) 2026–2027
Brynja Huld Óskarsdóttir stýrir vísinda- og tækninefnd NATO-þingsins (NATO Parliamentary Assembly) með aðsetur í Brussel. Í starfi sínu leiðir hún samstarf og samskipti milli þingmanna frá 32 aðildarríkjum Atlantshafsbandalagsins, NATO og ýmissa hagsmunaaðila á sviði öryggis- og varnarmála, með sérstakri áherslu á nýsköpun og tækninýjungar. Brynja Huld hefur yfir 10 ára reynslu úr utanríkis- og öryggismálum, stefnumótandi samskiptum og samstarfsverkefnum hjá ýmsum stofnunum og samtökum, þar á meðal NATO í Afganistan, UN Women á Íslandi og Utanríkisráðuneyti Íslands. Utan vinnu leggur Brynja Huld áherslu á að auka fjölbreytni í öryggismálum, meðal annars með því að koma sjónarmiðum kvenna betur að, og er stofnandi og fyrsti formaður íslensku deildar tengslanetsins Konur í alþjóðaöryggismálum (Women in International Security (WIIS)). Brynja er hluti af fræðasamfélagi ACONA um afvopnunarmál (Harvard-háskóli, 2021) og situr í sérfræðinganeti UNIDIR um stjórnarhætti og notkun gervigreindar í hernaðarlegu samhengi (UNIDIR Expert Network on Governance of AI in the Military Domain).
Skrif
Ekkert birt á vefnum enn.