Erin Sawyer
Kennari við Háskólann á Bifröst; meðstofnandi Norðurgáttar
Gestasérfræðingur Vörðu (Varða fellow) 2026–2027
Erin Sawyer er ráðgjafi og fagprófessor við Háskólann á Bifröst, þar sem hún kennir námskeið um öryggis- og varnarmál á norðurslóðum. Hún starfaði í rúma tvo áratugi fyrir bandarísk stjórnvöld og sinnti verkefnum á sviði utanríkisþjónustu, leyniþjónustu og varnarmála. Síðast stýrði hún bandaríska sendiráðinu í Reykjavík sem starfandi sendiherra. Þar leiddi hún samningaviðræður um orkusamstarf Íslands og Bandaríkjanna á ráðherrastigi og kom að því að afla samþykkis íslenskra stjórnvalda fyrir hafnarheimsóknum bandarískra kjarnorkuknúinna kafbáta. Erin lauk lögfræðiprófi frá Stanford Law School og meistaragráðu í stefnumótun á sviði þjóðaröryggis frá National War College, með áherslu á norðurslóðir og orkumál.
Skrif
Ekkert birt á vefnum enn.