Guðbjörg Ríkey Th. Hauksdóttir
Sérfræðingur hjá Rannsóknasetri um norðurslóðir, Alþjóðamálastofnun Háskóla Íslands; doktorsnemi við Háskóla Íslands
Gestasérfræðingur Vörðu (Varða fellow) 2026–2027
Guðbjörg Ríkey Th. Hauksdóttir er doktorsnemi við Háskóla Íslands, þar sem hún rannsakar samskipti Kína og Rússlands á norðurslóðum, og verkefnastjóri Rannsóknaseturs um norðurslóðir við Alþjóðamálastofnun Háskólans. Hún er jafnframt rannsakandi við Arctic Initiative hjá Belfer Center við Harvard Kennedy School og hjá North American and Arctic Defence and Security Network. Hún lauk BA-prófi í kínverskum fræðum og MA-prófi í alþjóðasamskiptum frá Háskóla Íslands. Sem Fulbright-rannsakandi hefur hún rannsakað geopólitísk og öryggistengd viðfangsefni á norðurslóðum. Hún hefur búið í Bandaríkjunum, Frakklandi og Kína og kennt námskeið um kenningar í alþjóðasamskiptum, öryggisfræði og kínverskt samfélag og stjórnmál. Rannsóknaráhugi hennar nær meðal annars til geopólitíkur og öryggismála á norðurslóðum, kortlagningar kínverskra fjárfestinga, utanríkisstefnu Kína og Rússlands og öryggismála smáríkja.