Hafsteinn Hauksson
Aðalhagfræðingur Kviku banka
Gestasérfræðingur Vörðu (Varða fellow) 2026–2027
Hafsteinn Hauksson er aðalhagfræðingur Kviku banka og hefur aðsetur í Lundúnum. Hann hefur nærri fimmtán ára reynslu af íslenskum og alþjóðlegum fjármálamörkuðum, meðal annars af greiningarvinnu, ráðgjöf um skuldamál ríkja og framtaksfjárfestingum. Á undanförnum árum hefur hann einkum fjallað um þróun alþjóðaviðskipta, aðfangaöryggi og áhrif geopólitískra framboðsáfalla á íslenskt efnahagslíf. Áður en hann hóf störf hjá Kviku starfaði hann hjá Newstate Partners í Lundúnum, þar sem hann veitti stjórnvöldum nýmarkaðsríkja ráðgjöf um stýringu og endurskipulagningu ríkisskulda. Þar áður var hann hagfræðingur hjá Arion banka og hóf starfsferilinn sem fréttamaður á Stöð 2. Hafsteinn kemur reglulega fram sem álitsgjafi í fjölmiðlum og tekur þátt í ráðstefnum og pallborðsumræðum. Hann lauk meistaragráðu í fjármálum og hagfræði frá London School of Economics sem Chevening-styrkþegi og BS-prófi í hagfræði frá Háskóla Íslands.
Skrif
6. maí 2026 · Grein · Vísir Það er ekki víst að þetta reddist
5. maí 2026 · Greining Allt er þegar þrennt er