Dr. María Rún Bjarnadóttir
Sérfræðingur í tæknirétti, lagadeild Háskólans í Reykjavík
Gestasérfræðingur Vörðu (Varða fellow) 2026–2027
Dr. María Rún Bjarnadóttir sérhæfir sig í mannréttindum og tæknirétti, einkum stafrænu ofbeldi og netbrotum. Hún starfar við lagadeild Háskólans í Reykjavík og sinnir þar rannsóknum og kennslu í tæknirétti og á lögfræðilegum álitaefnum sem tengjast stafrænni tækni. Áður gegndi hún stjórnunarstöðum hjá embætti ríkislögreglustjóra, meðal annars sem aðstoðarríkislögreglustjóri og yfirlögfræðingur embættisins. Hún var einnig forstöðumaður Mennta- og starfsþróunarseturs lögreglu og yfirmaður nýsköpunar og stefnumótunar. Meðal verkefna hennar var að koma á fót gátt lögreglunnar fyrir tilkynningar um netbrot, semja lagafrumvarp um kynferðislega friðhelgi og leiða sendinefnd Íslands í samningaviðræðum um samning Sameinuðu þjóðanna gegn netglæpum. Hún lauk doktorsprófi í lögfræði frá Sussex-háskóla og situr í GREVIO, sérfræðingahópi Evrópuráðsins.
Skrif
Ekkert birt á vefnum enn.