Ragnheiður Björk Halldórsdóttir
Stofnandi og eigandi ráðgjafarfyrirtækisins sporin slf.
Gestasérfræðingur Vörðu (Varða fellow) 2026–2027
Ragnheiður Björk Halldórsdóttir er iðnaðarverkfræðingur að mennt og hefur síðasta áratuginn unnið að sjálfbærni og kerfisbreytingum með stjórnvöldum og fyrirtækjum á Íslandi, í Þýskalandi og Bretlandi og í ríkjum hnattræna suðursins. Hún er stofnandi og eigandi ráðgjafarfyrirtækisins sporin slf., þar sem hún aðstoðar fyrirtæki og stofnanir við að gera sjálfbærnimarkmið að raunhæfum breytingum á stefnu og rekstri. Meðal verkefna hennar eru mótun sjálfbærnistefnu, aukin skilvirkni í rekstri og stuðningur við umfangsmikil breytingaferli innan fyrirtækja og virðiskeðja. Áður en hún stofnaði eigin ráðgjafarstofu starfaði hún hjá SYSTEMIQ og McKinsey. Helstu áherslusvið hennar eru hringrásarhagkerfið, nýsköpun í rekstri og opinber stefnumótun.
Skrif
Ekkert birt á vefnum enn.