Dr. Sigurður Emil Pálsson
Sjálfstætt starfandi ráðgjafi
Gestasérfræðingur Vörðu (Varða fellow) 2026–2027
Dr. Sigurður Emil Pálsson er sjálfstætt starfandi eðlisfræðingur og áhættusérfræðingur með fjögurra áratuga reynslu af því að búa samfélög undir ógnir af mannavöldum og bregðast við þeim. Eftir 27 ár á sviði geislavarna og viðbúnaðar leiddi hann mótun netöryggisstefnu Íslands. Á árunum 2022–2025 var hann fyrsti landsfulltrúi Íslands (Senior National Representative) í Tallinn hjá Fræðasetri NATO um netvarnarmál (CCDCOE), þar sem hann starfaði á aðgerðafræðasviði sem eini óbreytti borgarinn í hópi samstarfsmanna með hernaðarlega reynslu. Vinna hans að áfallaþoli (resilience) í hernaðarlegu samhengi átti þátt í því að hann var útnefndur „Ambassador“ hjá setrinu, sem er heiðurstitill. Hann á samstarf við úkraínska vísindamenn og verkfræðinga, vísar í verk þeirra og stuðlar að kynnum. Hann hefur verið eini íslenski þátttakandinn á Kyiv International Cyber Resilience Forum og Munich Cyber Security Conference undanfarin ár. Hann kennir og stundar rannsóknir við Háskóla Íslands, m.a. á áhrifum menningar á áfallaþol.
Skrif
Ekkert birt á vefnum enn.