Álagið á sérsveitina til umfjöllunar í Morgunblaðinu, á Vísi og RÚV
Greining Vörðu, Gleym mér ei, var í fréttum Morgunblaðsins, Vísis og RÚV daginn sem hún kom út. Yfirmaður greiningardeildar ríkislögreglustjóra segir álagið mikið og dómsmálaráðherra telur að sveitin gæti hæglega verið 70–80 manns.
Greining Vörðu á álagi á sérsveit ríkislögreglustjóra, Gleym mér ei, rataði í helstu fréttamiðla landsins daginn sem hún kom út. Morgunblaðið greindi frá meginniðurstöðunum að morgni 24. september: vopnaútköllum sérsveitarinnar fjölgaði úr 56 árið 2014 í 424 árið 2025, en á sama tíma störfuðu 46 sérsveitarmenn hjá embættinu, tíu færri en heimild er fyrir.
Vísir og RÚV fylgdu málinu eftir. Karl Steinar Valsson, yfirmaður greiningardeildar ríkislögreglustjóra, sagði við RÚV að niðurstöðurnar kæmu ekki á óvart í ljósi þess hvernig eðli lögreglustarfsins hefði breyst á síðustu fimmtán árum, og að embættið væri í góðu samtali við stjórnvöld um viðbrögð. Við mbl.is sagði hann að ríkislögreglustjóri hefði um árabil bent stjórnvöldum á að fjármagna þyrfti heimiluð stöðugildi. Sveitin hefði náð að sinna útköllunum, „en þetta er álag“.
„Þetta eru dýr verkefni, öryggi almennings er dýrt. Það kostar að búa í öruggu samfélagi.“
Karl Steinar Valsson, yfirmaður greiningardeildar ríkislögreglustjóra, á RÚV
Ráðherra vill stærri sérsveit
Síðar sama dag kynnti Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra áform um að fækka lögregluembættum úr níu í þrjú. Spurð um fjölgun vopnaðra útkalla sagði hún við mbl.is að staðan væri miður og að sérsveitin gæti hæglega verið 70–80 manns. Hún telur að stærri og burðugri embætti og styrking sérsveitarinnar fari vel saman.
Varða leggur til að fyrsta skrefið verði að fjármagna þau tíu stöðugildi sem þegar hafa verið heimiluð. Áætlaður kostnaður er 300–400 milljónir króna á ári. Jafnframt verði ríkislögreglustjóra falið að meta og birta reglulega mannafla- og fjárfestingarþörf sveitarinnar, svo að umræðan byggi á gögnum en ekki einstökum atvikum.
Gleym mér eiStóraukið álag á sérsveit ríkislögreglustjóra kallar á uppbyggingu og fjármagnLesa →