Ertu jafn óviðbúin(n) og flestir Íslendingar?

Ragnar Hjálmarsson skrifar á Vísi um könnun Vörðu á hamfaravitund Íslendinga: traustið til viðbragðsaðila er mikið en viðbúnaður heimilanna lítill. Hann leggur til einfalda æfingu við eldhúsborðið sem tekur eina kvöldstund.

9. nóvember 2026
Deila á LinkedIn ↗

Það er þriðjudagskvöld í janúar og stormurinn lemur gluggana. Ljósin slokkna, síminn nær engu sambandi og eftir nokkra klukkutíma eru ofnarnir orðnir kaldir. Hvað gerir þú? Hvar leitar þú að upplýsingum og hvernig nærðu sambandi við ástvini þína sem eru einhvers staðar úti í bæ?

Á dögunum kynntu stjórnvöld bæklinginn Verum viðbúin, sem allir landsmenn 18 ára og eldri fá sendan á Ísland.is. Þar erum við hvött til að eiga birgðir til þriggja daga og gera heimilisáætlun. Hann er mjög þarfur, enda sýnir könnun hugveitunnar Vörðu á hamfaravitund Íslendinga, sem kom út fyrr á þessu ári, að við eigum talsvert eftir í land þegar kemur að viðbúnaði okkar.

Mikið traust, lítill viðbúnaður

Byrjum á því góða. Íslendingar treysta viðbragðsaðilum og stjórnvöldum einstaklega vel; 94,6% treysta því að þau bregðist rétt við hamförum, hærra hlutfall en í Danmörku og Svíþjóð og vel yfir meðaltali í ESB (86,7%). Þetta traust hafa almannavarnir og björgunarsveitir landsins áunnið sér í hverju áfallinu á fætur öðru. En getur verið að traustið sé svo mikið að okkur finnist við lítið þurfa að gera sjálf? Að minnsta kosti eigum við mun minna af birgðum en Finnar og Svíar: hér á landi segjast 20,7% eiga neyðarbirgðir af mat og drykk, á móti 52% í Finnlandi, 44,8% í Svíþjóð og 32,6% að meðaltali í ESB. Vatn til matseldar og hreinlætis á innan við tíundi hver Íslendingur, en það á um þriðjungur Finna og Svía.

Tveir til þrír dagar

Flest eigum við þó vasaljós eða kerti, um helmingur á sjúkrakassa og um fjórðungur útvarp sem gengur fyrir rafhlöðum, sem er meira en að meðaltali í Evrópu. Vandi okkar birtist þegar hugsa þarf lengra fram í tímann. Algengasta svarið hér á landi er að fólk geti bjargað sér í tvo til þrjá daga ef rafmagn, vatn eða matvæladreifing bregst, og það svar er tíðara en í nágrannalöndum okkar. Aðeins 20,2% telja sig hins vegar eiga mat sem dugar í meira en viku, á móti 36,5–45,5% á öðrum Norðurlöndum. Enn færri segjast eiga vatn sem dugar svo lengi. Rafmagnsleysi virðumst við aftur á móti ráða betur við: 15,1% telja sig geta bjargað sér í meira en viku án rafmagns, á móti 6,3–12,1% á öðrum Norðurlöndum. Við gerum ráð fyrir að þetta reddist í tvo eða þrjá daga, sem er nokkuð íslenskt, en svo fer gamanið óhjákvæmilega að kárna.

Það þarf ekki að leita langt að dæmum. Þegar gosið við Svartsengi rauf heitavatnslögnina í febrúar 2024, stóðu þúsundir heimila á Suðurnesjum uppi án heits vatns um hávetur. Í slíkum aðstæðum þarf að forgangsraða og sinna fyrst þeim sem standa höllustum fæti. Ef þú getur séð um þig og þína tryggir þú öryggi ykkar og vellíðan, og léttir um leið álagi af viðbragðsaðilum. Þú ert með öðrum orðum hluti af almannavörnum.

Tökum samtalið

Mest kemur þó á óvart hve lítið við nýtum okkar helsta styrk: fólkið í kringum okkur. Hér á Íslandi, þar sem stutt er á milli manna og rík hefð er fyrir sjálfboðastarfi, myndu aðeins 39,9% reiða sig á nágranna fyrstu dagana eftir hamfarir, á móti 74,2–84,5% á öðrum Norðurlöndum. Sláandi er líka að einungis 5,5% hafa komið sér saman við fjölskyldu eða vini um hvernig þau ná sambandi hvert við annað ef fjarskipti rofna, á móti 18,4% í Finnlandi, 15,6% í Svíþjóð og 20,2% að meðaltali í ríkjum ESB. Við virkjum ennfremur nærsamfélagið milli heimilis og opinberra viðbragðsaðila – nágranna, vinnustaði, skóla og félagasamtök – mun minna en tíðkast annars staðar í Evrópu. Úr þessu er auðvelt að bæta. Það kostar ekkert að ræða við vini okkar, nágranna og starfsfélaga um hvernig við getum hjálpast að þegar á reynir.

Hvað getur þú gert?

Gátlistinn í bæklingi almannavarna er góð byrjun og það þarf ekki að kaupa allt í einu. Það skiptir máli að koma sér upp birgðum, en enn mikilvægara er að setjast niður með sínum nánustu og skrifa áætlun niður á blað. Í þeim efnum má læra af Svíum. Sænska almannavarnastofnunin hefur hannað einfalda heimilisæfingu, Sju dagar, sem fylgir hér á eftir í endursagðri útgáfu og tekur ekki nema eina kvöldstund.

Æfing við eldhúsborðið

Takið frá klukkutíma eða tvo eitt kvöldið þegar allir eru heima. Leggið bæklinginn, autt blað og penna á eldhúsborðið og skiptið blaðinu í tvo dálka: það sem vantar og það sem þarf að ákveða. Eitt ykkar les lýsingu hvers dags upphátt og hin svara út frá því sem er í raun til á heimilinu, ekki því sem þau halda að sé til. Standið upp og gáið í skápana. Hugsið einnig um keðjuverkunina: hvað fleira hættir að virka og hvað þýðir það fyrir hvert ykkar? Ljúkið hverjum degi á því að spyrja hvað annað gæti komið upp á.

Dagur 1: Samskipti. Rafmagnið fer af, netið liggur niðri og ekki er hægt að hringja úr símanum. Hvernig komist þið að því hvað hefur gerst? Er til útvarp sem gengur fyrir rafhlöðum, og eru mikilvæg símanúmer skrifuð á blað? Eigið þið hleðslubanka fyrir símana og önnur raftæki? Hvar ætlið þið að hittast ef þið náið ekki hvert í annað, og vitið þið hvar næsta fjöldahjálparstöð er?

Dagur 2: Vatn. Ekkert vatn hefur runnið úr krananum frá því í gær. Hvar nálgist þið vatn? Hvernig sjóðið þið pasta, og hvað gerið þið nú þegar ekki er hægt að sturta niður? Eigið þið vatnsflöskur í frystinum, sem nýtast líka til kælingar, eða þá stærri vatnsbrúsa á dimmum og köldum stað? Svíar miða við þrjá til fimm lítra á mann á dag til drykkjar, matargerðar og hreinlætis. Er til prímus á heimilinu og kann einhver á hann?

Dagur 3: Hiti. Heita vatnið fer af og íbúðin kólnar hratt, einkum þegar dimma tekur. Hvernig haldið þið á ykkur hita? Eigið þið aukateppi og hlý föt fyrir alla á heimilinu? Ráðlegt er að halda sig í minna rými en venjulega til að spara hita. Hvaða herbergi hentar best hjá ykkur, og hvernig má halda hitanum þar inni, til dæmis með því að hengja teppi fyrir gluggana og þétta rifur? Og hvert getið þið leitað ef kuldinn varir dögum saman?

Dagur 4: Matur. Ísskápurinn er farinn að lykta og nú þarf að reiða sig á þurrmat og dósamat. Hve lengi dugar það sem til er? Í íslenska bæklingnum er mælt með því að nota fyrst mat úr kæli og síðan úr frysti meðan hann er enn kaldur, og neyta ekki matar sem gæti verið skemmdur. Hvað af því sem geymist við stofuhita myndi fjölskyldan í raun borða? Gætuð þið bætt einni slíkri vöru í körfuna í hverri búðarferð? Eru einhverjar vörur í búrinu komnar fram yfir dagsetningu?

Dagur 5: Peningar. Þú stendur við kassann í búðinni en posinn virkar ekki. Hvernig borgar þú? Getið þið greitt á fleiri en einn hátt og munið þið PIN-númerið ef snertilausar greiðslur liggja niðri? Hve mikið reiðufé er til heima hjá ykkur? Í Svíþjóð er mælt með upphæð sem dugar fyrir vikuinnkaupum heimilisins. Og ef aðeins er hægt að borga með reiðufé, hvað kaupið þið þá fyrst og hvað er neðar í forgangsröðuninni? Eigið þið afrit af mikilvægum skjölum, svo sem skilríkjum og tryggingaskírteinum, á pappír eða minnislykli?

Dagur 6: Líf og heilsa. Apótekið er lokað og lyfin í skápnum eru senn á þrotum. Hve lengi duga lyfjabirgðir heimilisins? Sænsk stjórnvöld ráðleggja þeim sem taka lyfseðilsskyld lyf að eiga mánaðarskammt heima. Þarf einhver á heimilinu hjálpartæki eða daglega aðstoð, og hvað gerist ef hún fellur niður? Kann einhver ykkar skyndihjálp, eða væri gagnlegt að fara á námskeið?

Dagur 7: Nágrannar. Þið hafið það þokkalegt, en það er ekki víst að allir í húsinu eða götunni hafi það jafn gott. Er einhver í nánasta umhverfi ykkar verr undirbúinn en þið? Þekkið þið nágrannana nógu vel til að vita hvernig þið getið hjálpast að? Gætuð þið deilt birgðum ef þið eruð aflögufær? Hvaða kunnátta ykkar gæti nýst öðrum?

Að æfingunni lokinni er fyrri dálkurinn (það sem vantar) orðinn að innkaupalista og í þeim seinni (það sem þarf að ákveða) er kominn góður grunnur að heimilisáætlun, sem má hengja á ísskápinn. Ágætt er að klára eitt atriði strax í vikunni og vinna sig svo niður listann. Að ári er gott að endurtaka leikinn, til dæmis þegar björgunarsveitirnar banka á dyrnar á þessum tíma árs.

Við erum jú öll almannavarnir, og í þeim anda hvet ég þig til að taka frá eitt kvöld á næstu dögum og gera heimilisáætlun. Næst þegar rafmagnið fer á köldu þriðjudagskvöldi hangir svarið við spurningunni „hvað gerum við?“ á ísskápnum. Þá reddast þetta af því að við erum búin að undirbúa okkur.

Höfundur starfar hjá Vörðu, hugveitu um þjóðaröryggi.

Greinin birtist fyrst á Vísi.is 9. nóvember 2026.

Greining · apríl 2026Þegar á reynir: Hamfaravitund- og viðbúnaður íslensks almenningsNý greining hugveitunnar Vörðu um hamfaravitund- og viðbúnað íslensks almenningsLesa →