Greining Vörðu til umfjöllunar í Kastljósi

Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra, vísaði í Kastljósi til könnunar Gallup fyrir Vörðu þegar hann var spurður hversu vel íslensk heimili væru undirbúin.

3. nóvember 2026
Deila á LinkedIn ↗
Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra, í Kastljósi 3. nóvember. Mynd: RÚV.
Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarnasviðs ríkislögreglustjóra, í Kastljósi 3. nóvember. Mynd: RÚV.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra gaf 3. nóvember út bækling með gátlista yfir það sem heimili þurfa til að komast af í þrjá daga. Runólfur Þórhallsson, sviðsstjóri almannavarnasviðs, ræddi bæklinginn í Kastljósi sama kvöld. Spurður hvort til væru upplýsingar um hversu tilbúin íslensk heimili eru vísaði hann til könnunar sem Gallup gerði fyrir Vörðu fyrr á árinu: hlutfall þeirra sem telja sig undirbúin sé lágt, um fjórðungur til þriðjungur, og í góðu samræmi við Norðurlöndin.

Þetta hefur að einhverju leyti verið kannað, bæði af hugveitunni Vörðu og Gallup gerði könnun snemma á þessu ári þar sem var verið að spyrja út í þessa hluti, hversu fólk var vel undirbúið. Það var ekki hátt hlutfall. Nokkuð í góðu samræmi við Norðurlöndin og meðal annars þess vegna erum við að tala um það.

Runólfur Þórhallsson í Kastljósi

Niðurstöðurnar birtust í greiningu Vörðu, Þegar á reynir, í mars. Traust til viðbragðsaðila er afar hátt, en aðeins rúmur þriðjungur telur sig undirbúinn fyrir hamfarir eða neyð í heimabyggð og birgðir af mat og vatni eru langt undir því sem er á Norðurlöndunum. Varða lagði þar meðal annars til skýr opinber viðmið um lágmarksviðbúnað heimila. Bæklingur almannavarna er skref í þá átt.

Kastljós 3. nóvember — Almannavarnabæklingurruv.is ↗ Greining · apríl 2026Þegar á reynir: Hamfaravitund- og viðbúnaður íslensks almenningsNý greining hugveitunnar Vörðu um hamfaravitund- og viðbúnað íslensks almenningsLesa →

Umfjöllunin

  1. RÚV „Öll lítil skref eru mjög jákvæð“ Sjónvarp · Rætt við Runólf Þórhallsson í Kastljósi