Það gerir enginn neitt fyrir neinn sem gerir ekki neitt fyrir neinn
Kristinn Árni L. Hróbjartsson skrifar í Morgunblaðið: Ísland er mikill eftirbátur nágranna sinna í stuðningi við Úkraínu og ætlar sér að komast af með sem minnst í vörnum, á meðan bandamenn okkar skera niður í velferðarmálum til að fjárfesta í sameiginlegu öryggi.
Við Íslendingar erum mikill eftirbátur nágranna okkar þegar kemur að stuðningi við Úkraínu. Sem hlutfall af landsframleiðslu verjum við einum þriðja af því sem Finnland hefur lagt af mörkum, og fyrir hverja krónu sem við höfum sett í stuðning hefur Danmörk sett sjö.
Öll þau lönd sem við teljum okkur eiga mestu samleið með í heiminum líta svo á að stuðningur við Úkraínu sé hluti af eigin vörnum og nauðsynlegur til að tryggja öryggi sitt. Þessi skilningur er grundvöllurinn að þeirri ákvörðun Alþingis frá 29. apríl 2024 að stefna að því að framlag okkar til Úkraínu verði hlutfallslega sambærilegt við hin Norðurlöndin. Því fer víðs fjarri að við höfum staðið við þetta hóflega markmið.
Sem sjálfstætt og fullvalda ríki höfum við skyldur, ekki síður en dýrmæt réttindi, og sem samfélag með sjálfsvirðingu ættum við að taka alvarlega þær ákvarðanir sem Alþingi hefur tekið.
Það hversu illa við höfum staðið við orð okkar gagnvart Úkraínu er enn erfiðara að melta þegar tekið er með í myndina að nágranna- og vinaþjóðir Íslands hafa til viðbótar við Úkraínustuðning sinn þurft að stórauka útgjöld til eigin varnarundirbúnings. Þessar þjóðir hafa heitið því að verja allar bandalagsþjóðir Atlantshafsbandalagsins, þar á meðal Ísland, og við Íslendingar teljum okkur eiga heimtingu á að njóta góðs af þeim útgjöldum.
Það er varhugavert ef sú afstaða að láta aðra bera kostnaðinn breytist ekki fljótlega. Nýlegar áætlanir og minnisblöð um fjárfestingar ríkisins í öryggis- og varnarmálum gefa ekki tilefni til bjartsýni. Stjórnvöld gera ekki ráð fyrir neinni aukningu að ráði fyrr en eftir fimm ár, þegar núverandi fjármálaáætlun hefur runnið sitt skeið. Framlag okkar og geta okkar til varna standa því að mestu í stað fram að því.
Vissulega er Ísland á mikilvægum stað á hnettinum. Íslenskt stjórnmálafólk virðist því oft keppast við að nota legu landsins sem ástæðu til að gera minna og fjárfesta minna í sameiginlegu öryggi álfunnar. Á meðan nágrannar okkar og bandamenn, sem hafa heitið því að koma okkur til varnar, skera niður í velferðarmálum til að fjárfesta í vörnum, virðist markmið okkar vera að komast af með sem minnst.
Bandamenn okkar og frændur í Noregi búa við svipaðar aðstæður og við: Bjarnarhliðið í Barentshafi, milli Norður-Noregs og Bjarnareyjar, er ein fyrsta varnar- og eftirlitslínan gagnvart rússneskum kafbátum. Lega Noregs, nálægðin við Rússland og mögulegar siglingaleiðir á norðurslóðum gera landið ekki síður hernaðarlega mikilvægt en Ísland. En ólíkt Íslendingum líta Norðmenn á legu sína sem ástæðu til að gera meira, ekki til að fá afslátt.
Nágrannaríki okkar fjármagna aukin útgjöld til varnarmála með ýmsum hætti. Holland leggur á frelsisframlag frá 2027, skattahækkun sem eyrnamerkt er vörnum, og Eistland og Litháen hafa farið svipaða leið. Danmörk breytti frídegi í vinnudag árið 2023 þrátt fyrir fjölmenn mótmæli og nýtir tekjurnar í varnir. Belgía setti tveggja ára hámark á atvinnuleysisbætur, sem áður voru ótímabundnar, og Finnland sker niður í velferðarmálum, hvort tveggja samhliða auknum framlögum til varna. Þýskaland, sem lengi hélt fast í eina ströngustu skuldareglu Evrópu, breytti stjórnarskránni til að undanskilja varnarútgjöld skuldabremsunni og fjármagnar uppbygginguna nú að miklu leyti með lánum.
Það er erfitt að sjá fyrir sér að það gangi til lengdar að okkar helstu samstarfsríki gangi áfram í gegnum erfiðleika og færi fórnir til að tryggja öryggi sitt, en við svífum undir ratsjánni. Það er ekki mikil reisn yfir einu ríkasta landi Evrópu ef við reynum að komast hjá því að taka þátt í að verja þau alþjóðlegu lög og reglur sem velmegun okkar byggist á og sem gilda aðeins á meðan einhver getur framfylgt þeim.
Við reiðum okkur að öllu leyti á velvilja líkt þenkjandi bandamanna, og á að fólk þeirra, oft ungt fólk, leggi sig í hættu til að verja landamæri okkar, lögsögu og réttindi samkvæmt alþjóðalögum. Ef sú hræðilega staða kemur upp að við höfum misst stjórn á eigin aðstæðum og þurfum að treysta á hugrekki þeirra og fórnir, höfum við aðeins auðveldað þeim að segja pass ef við ætlum áfram að vera eitt allsherjar súkkulaði í heimsmálum vegna þess að einhverjum gæti þótt staðsetning okkar hernaðarlega mikilvæg.
Við verðum þá að vona að bandamenn okkar tileinki sér ekki heimspeki Alex úr kvikmyndinni Sódóma Reykjavík, sem sagði þessi fleygu orð: „Ég geri sko ekki neitt fyrir neinn sem gerir ekki neitt fyrir neinn.“
Höfundur er meðstofnandi og forstöðumaður Vörðu, hugveitu um þjóðaröryggi.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 5. nóvember 2026.