Varða skipar ráðgjafaráð

Varða, hugveita um öryggismál og viðnámsþrótt, hefur skipað fimm manna ráðgjafaráð. Varða er sjálfstæð hugveita sem vinnur að því að efla þjóðaröryggi og viðnámsþrótt Íslands. Meðal markmiða er að festa í sessi nýjan og óháðan vettvang á Íslandi um þessi mikilvægu en flóknu málefni. Ráðgjafaráð Vörðu er skipað reynslumiklum sérfræðingum sem styðja við faglega þróun […]

31. janúar 2026
Deila á LinkedIn

Varða, hugveita um öryggismál og viðnámsþrótt, hefur skipað fimm manna ráðgjafaráð.

Varða er sjálfstæð hugveita sem vinnur að því að efla þjóðaröryggi og viðnámsþrótt Íslands. Meðal markmiða er að festa í sessi nýjan og óháðan vettvang á Íslandi um þessi mikilvægu en flóknu málefni.

Ráðgjafaráð Vörðu er skipað reynslumiklum sérfræðingum sem styðja við faglega þróun og stefnumótun Vörðu. Hlutverk þess er að veita Vörðu ráð og faglegt aðhald í tengslum við stefnu, áætlanir, verkefni, og áherslur hugveitunnar og tryggja að starfsemin hvíli á traustum grunni þekkingar og reynslu. Ráðgjafaráðið ber ekki ábyrgð á rekstri eða útgefnu efni.

Meðlimir ráðgjafaráðsins eru eftirfarandi:

Ari Kristinn Jónsson, PhD

Ari Kristinn Jónsson er framkvæmdastjóri Videntifier og stjórnarmaður í NATO Innovation Fund. Hann var rektor Háskólans í Reykjavík og þar áður var hann í tíu ár vísindamaður og stjórnandi hjá NASA í Bandaríkjunum.

Garðar Forberg

Garðar var varnarmálafulltrúi Íslands í Washington, DC, og áður hann fastafulltrúi Íslands í hermálanefnd NATÓ. Hann er liðsforingi að mennt úr liðsforingjaskóla þýska hersins, Bundeswehr, og hefur áralanga reynslu af flugrekstri.

Ingibjörg Sólrún Gísladóttir

Ingibjörg Sólrún sat á þingi fyrir Kvennalistann og Samfylkinguna, er fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, utanríkisráðherra og borgarstjóri Reykjavíkur. Hún var umdæmisstjóri UN Women í Evrópu og Mið-Asíu, og síðar framkvæmdastjóri Lýðræðis- og mannréttindastofnunar Öryggis- og samvinnustofnunar Evrópu (ODIHR).

Rannveig Rist

Rannveig Rist er forstjóri ÍSAL – Rio Tinto á Íslandi. Hún hefur setið í fjölda stjórna fyrirtækja og samtaka á borð við SAMÁL, Samtaka Atvinnulífsins, Viðskiptaráðs, HB Granda, Klíníkurinnar, Lýsi og Símans.

Þórdís Kolbrún R Gylfadóttir

Þórdís Kolbrún er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og hefur gegnt embættum utanríkisráðherra, ferðamála-, iðnaðar og nýsköpunarráðherra, fjármálaráðherra, og dómsmálaráðherra. Að auki er hún sérstakur erindreki framkvæmdastjóra Evrópuráðsins gagnvart úkraínskum börnum.

“Það er hvalreki fyrir okkur í Vörðu að fá jafn reynda einstaklinga í ráðgjafaráðið og raun ber vitni. Þekking þeirra og innsýn mun vera ómetanleg fyrir okkur á þessari vegferð að móta nýja hugveitu á sviði öryggis, varna og viðnámsþróttar,” segir Kristinn Árni Hróbjartsson, meðstofnandi og forstöðumaður Vörðu.