Varða skipar tíu gestasérfræðinga

Varða hefur skipað tíu gestasérfræðinga fyrir starfsárið 2026–2027, með sérþekkingu allt frá alþjóðarétti, netvörnum og geimtækni til aðfangaöryggis, norðurslóðamála og utanríkisþjónustu.

2. nóvember 2026
Deila á LinkedIn ↗
Gestasérfræðingar Vörðu 2026–2027. Efri röð frá vinstri: Bjarni Már Magnússon, Björn Rafn Gunnarsson, Brynja Huld Óskarsdóttir, Erin Sawyer og Greg Falco. Neðri röð: Guðbjörg Ríkey Th. Hauksdóttir, Hafsteinn Hauksson, María Rún Bjarnadóttir, Ragnheiður Björk Halldórsdóttir og Sigurður Emil Pálsson.
Gestasérfræðingar Vörðu 2026–2027. Efri röð frá vinstri: Bjarni Már Magnússon, Björn Rafn Gunnarsson, Brynja Huld Óskarsdóttir, Erin Sawyer og Greg Falco. Neðri röð: Guðbjörg Ríkey Th. Hauksdóttir, Hafsteinn Hauksson, María Rún Bjarnadóttir, Ragnheiður Björk Halldórsdóttir og Sigurður Emil Pálsson.

Varða hefur skipað tíu gestasérfræðinga (e. fellow) fyrir starfsárið 2026–2027. Gestasérfræðingarnir búa yfir sérþekkingu á ólíkum sviðum þjóðaröryggis og viðnámsþróttar, allt frá alþjóðarétti, netvörnum og geimtækni til aðfangaöryggis, norðurslóðamála og utanríkisþjónustu. Meðal þeirra eru stjórnendur innan NATO og NATO-þingsins, fyrrverandi starfandi sendiherra Bandaríkjanna á Íslandi og fyrrverandi aðstoðarríkislögreglustjóri. Þau eru ekki starfsmenn Vörðu og sinna hlutverkinu samhliða aðalstarfi sínu, á Íslandi og erlendis (e. Non-resident fellow).

„Þekking á öryggismálum á Íslandi er dreifð um háskóla, stjórnsýslu, atvinnulíf og alþjóðastofnanir. Með skipun þessara sérfræðinga fær Varða aðgang að mikilvægri þekkingu, tengslaneti og samstarfi, og gestasérfræðingarnir stuðning við útgáfu og sína vinnu.“

Kristinn Árni L. Hróbjartsson, forstöðumaður og meðstofnandi Vörðu

Gestasérfræðingar Vörðu 2026–2027

Dr. Bjarni Már Magnússon er meðeigandi hjá Polestar Legal og fyrrverandi prófessor við Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Bifröst. Hann á sæti í Loftslagsráði, er tíður viðmælandi fjölmiðla og kemur reglulega fyrir þingnefndir Alþingis.

Dr. Björn Rafn Gunnarsson fer fyrir gagnavísindum hjá J10-deild SHAPE, yfirherstjórnar NATO í Evrópu, sem annast stefnumarkandi samskipti (StratCom). Þar stýrir hann uppbyggingu getu aðgerðaherstjórnar NATO (ACO) til að meta upplýsingaumhverfið. Hann lauk doktorsprófi frá KU Leuven.

Brynja Huld Óskarsdóttir stýrir vísinda- og tækninefnd NATO-þingsins í Brussel. Hún er stofnandi og fyrsti formaður íslenskrar deildar Women in International Security og situr í sérfræðinganeti UNIDIR um gervigreind í hernaðarlegu samhengi.

Erin Sawyer er ráðgjafi og fagprófessor við Háskólann á Bifröst. Hún starfaði í rúma tvo áratugi fyrir bandarísk stjórnvöld á sviði utanríkis-, leyniþjónustu- og varnarmála og stýrði síðast bandaríska sendiráðinu í Reykjavík sem starfandi sendiherra.

Prof. Greg Falco er lektor í geimverkfræði við Cornell-háskóla, þar sem hann stýrir Aerospace ADVERSARY-rannsóknarstofunni, og gestaprófessor í þjóðaröryggi við Háskólann á Bifröst. Hann er tengiliður NATO í HEIST-verkefninu, sem miðar að því að tryggja fjarskipti um gervihnetti ef sæstrengir rofna.

Guðbjörg Ríkey Th. Hauksdóttir er doktorsnemi við Háskóla Íslands og rannsakar samskipti Kína og Rússlands á norðurslóðum. Hún er sérfræðingur hjá Rannsóknasetri um norðurslóðir og rannsakandi við Arctic Initiative hjá Belfer Center við Harvard Kennedy School.

Hafsteinn Hauksson er aðalhagfræðingur Kviku banka með aðsetur í Lundúnum. Hann hefur einkum fjallað um þróun alþjóðaviðskipta, aðfangaöryggi og áhrif geopólitískra framboðsáfalla á íslenskt efnahagslíf.

Dr. María Rún Bjarnadóttir starfar við lagadeild Háskólans í Reykjavík og sérhæfir sig í tæknirétti og netbrotum. Hún er fyrrverandi aðstoðarríkislögreglustjóri, leiddi sendinefnd Íslands í viðræðum um samning Sameinuðu þjóðanna gegn netglæpum og situr í GREVIO, sérfræðingahópi Evrópuráðsins.

Ragnheiður Björk Halldórsdóttir er iðnaðarverkfræðingur og stofnandi ráðgjafarfyrirtækisins sporin slf. Hún starfaði áður hjá SYSTEMIQ og McKinsey og hefur unnið að kerfisbreytingum með stjórnvöldum og fyrirtækjum á Íslandi og erlendis.

Dr. Sigurður Emil Pálsson er eðlisfræðingur og áhættusérfræðingur með fjögurra áratuga reynslu af viðbúnaði gegn ógnum af mannavöldum. Hann leiddi mótun netöryggisstefnu Íslands og var fyrsti landsfulltrúi Íslands hjá Öndvegissetri NATO um netvarnarmál (CCDCOE) í Tallinn 2022–2025.

Nánar um gestasérfræðinga Vörðu: varda.org/folk