Þjóðaröryggi og viðnámsþróttur

Varða er sjálfstæð opin hugveita sem miðar að því að efla þjóðaröryggi og viðnámsþrótt Íslands gagnvart áhættum og ógnum í nútíð og framtíð.

Varða vinnur að því að efla þjóðaröryggi og viðnámsþrótt Íslands. Meðal markmiða er að festa í sessi nýjan og óháðan vettvang á Íslandi um þessi mikilvægu en flóknu málefni.

Varða er leidd af Kristni Árna L. Hróbjartssyni, meðstofnanda, og studd af Foobar Foundation. Útgáfan er opin: greiningar, hringborðssamantektir og aðsendar greinar eru öllum aðgengilegar.

„Ekki er lengur nóg að treysta alfarið á varnarsamstarf eða landfræðilega einangrun Íslands. Í dag er heimsmyndin önnur: Netárásir ógna innviðum, stórveldasamkeppni tekur örum breytingum og fer harðnandi og áhrif loftslagsbreytinga krefjast nýrrar nálgunar á öryggismál þjóðarinnar.“

Kristinn Árni L. Hróbjartsson — meðstofnandi Vörðu

Ráðgjafaráð

Ráðgjafaráð Vörðu er skipað reynslumiklum sérfræðingum sem styðja við faglega þróun og stefnumótun Vörðu. Hlutverk þess er að veita Vörðu ráð og faglegt aðhald í tengslum við stefnu, áætlanir, verkefni og áherslur hugveitunnar, og tryggja að starfsemin hvíli á traustum grunni þekkingar og reynslu. Ráðgjafaráðið ber ekki ábyrgð á rekstri eða útgefnu efni.

Ari Kristinn Jónsson, PhD Ari Kristinn Jónsson, PhD Forstjóri NATO Innovation Fund. Var framkvæmdastjóri Videntifier og rektor Háskólans í Reykjavík, og þar áður í tíu ár vísindamaður og stjórnandi hjá NASA í Bandaríkjunum.
Garðar Forberg Garðar Forberg Var varnarmálafulltrúi Íslands í Washington, DC, áður hermálafulltrúi Íslands í hermálanefnd NATO. Liðsforingi að mennt úr liðsforingjaskóla þýska hersins, Bundeswehr, með áralanga reynslu af flugrekstri.
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir Sat á þingi fyrir Kvennalistann og Samfylkinguna, fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar, utanríkisráðherra og borgarstjóri Reykjavíkur. Var umdæmisstjóri UN Women í Evrópu og Mið-Asíu og síðar framkvæmdastjóri ODIHR.
Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir Sendiherra Íslands í Lundúnum. Sat á Alþingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn og gegndi embættum utanríkisráðherra, fjármála- og efnahagsráðherra, dómsmálaráðherra og ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra. Var sérstakur erindreki framkvæmdastjóra Evrópuráðsins gagnvart úkraínskum börnum.
Rannveig Rist Rannveig Rist Forstjóri ÍSAL – Rio Tinto á Íslandi. Hefur setið í fjölda stjórna fyrirtækja og samtaka á borð við SAMÁL, Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð, HB Granda, Klíníkuna, Lýsi og Símann.

Varða, sjálfseignarstofnun — Lækjargata 2, 101 Reykjavík. Fyrirspurnir um greiningar, viðtöl eða samstarf fara á hallo@varda.org.