Fimm tækifæri fyrir Ísland

í nýrri norðurslóðastefnu ESB

Höfundar Kristinn Árni L. Hróbjartsson Hallgrímur Oddsson Útgáfudagur Samstarf Flokkur Greining · Þjóðaröryggi
Vitna í þessa útgáfu
Tilvísun í heimildaskrá (APA)
Kristinn Árni L. Hróbjartsson og Hallgrímur Oddsson. (2026). Fimm tækifæri fyrir Ísland í nýrri norðurslóðastefnu ESB. Varða og Evrópustraumar.
Tilvísun í texta
(Kristinn Árni L. Hróbjartsson og Hallgrímur Oddsson, 2026)

Í nýrri norðurslóðastefnu Evrópusambandsins felast tækifæri fyrir Ísland. Í stefnunni kveður við ákveðnari tón en áður um mikilvægi norðurslóða fyrir ESB. Rík áhersla er lögð á samvinnu við ríki utan sambandsins, þar á meðal Ísland, til að efla sameiginlegar varnir, byggja upp innviði og koma á mun skipulagðara samstarfi líkt þenkjandi ríkja á „norðlægu nágrannasvæði“ Evrópu (e. Northern Neighbourhood).

Fimm tækifæri

01

Ísland ætti að sækjast eftir lykilhlutverki við að koma norðlæga nágrannasvæðinu á fót og bjóðast til að halda fyrsta leiðtogafund þess.

02

Ísland ætti að bjóðast til að hýsa hluta miðstöðvar ESB fyrir siglingaöryggi og efla þar með getu Landhelgisgæslunnar til upplýsingaöflunar um hafsvæðið umhverfis landið.

03

Á meðan hagkvæmniathuganir standa yfir ættu stjórnvöld að kanna hvort tengja megi Ísland við nýjan sæstreng ESB til Grænlands, og Ísland gæti hýst sæstrengjamiðstöð norðurslóða eða hluta hennar.

04

Stjórnvöld ættu að stefna að því að á Íslandi rísi innviðir sem styðja geimkerfi ESB.

05

Stjórnvöld ættu að endurskoða ákvörðunina um að taka ekki þátt í Varnarmálasjóði Evrópu og hefja viðræður um þátttöku.

Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, boðaði endurskoðun norðurslóðastefnu sambandsins þegar hún heimsótti Ísland í júlí 2025. Ný stefna var kynnt 20. október 2026, fimm árum eftir síðustu uppfærslu. Hún byggir á gerbreyttri stöðu alþjóðamála, ekki síst á norðurslóðum: árásargirni Rússlands, auknum áhuga og umsvifum Kína og áframhaldandi hlýnun loftslags sem opnar nýjar siglingaleiðir. Í stefnunni er ekki minnst sérstaklega á Grænlandsdeilu Bandaríkjanna, Danmerkur og Grænlands, þótt ljóst sé að framganga Bandaríkjaforseta hefur skerpt afstöðu ESB. Árið 2021 var markmiðið friðsamlegar, sjálfbærar og blómlegar norðurslóðir. Nú eru öryggis- og varnarmál í forgrunni.

Tækifæri Íslands

Flest verkefnin í nýrri stefnu ESB eru enn á frumstigi. Íslensk stjórnvöld geta því haft áhrif á mótun þeirra ef þau sýna frumkvæði tímanlega. Það er hagsmunamál Íslands að laða að fjárfestingu í innviðum, efla varnir og dýpka samstarf við ESB. Styrkur Íslands felst í því að geta brugðist hratt við þegar viljinn er fyrir hendi. Þann styrk ættu stjórnvöld að nýta til að grípa eftirfarandi fimm tækifæri sem stefnan opnar á. Dýpra samstarf er viðbót við virka þátttöku Íslands á öðrum mikilvægum vettvöngum tengdum norðurslóðum, eins og Norðurskautsráðinu.

1. Sæti við „norðlæga nágrannaborðið“

Þegar hópur leiðtoga ESB-ríkja kom saman á norðurslóðafundi í Rovaniemi í Finnlandi 13.–14. september sátu forsætisráðherrar Íslands og Noregs aðeins vinnukvöldverð daginn áður en sjálfur fundurinn hófst. Nýja stefnan byggir á fundinum í Rovaniemi og boðar reglulega leiðtogafundi ESB-ríkja og líkt þenkjandi samstarfslanda. Norðlæga nágrannasvæðið yrði pólitískur rammi um skipulagðara samstarf þeirra. Í stefnunni eru Grænland, Færeyjar, Noregur, Ísland, Bretland, Kanada og Bandaríkin nefnd sem mögulegir samstarfsaðilar innan rammans. Auk þeirra hyggst ESB vinna með öðrum ríkjum, svo sem Japan og Suður-Kóreu. Ísland ætti að sækjast eftir lykilhlutverki við að koma þessum vettvangi á fót.

Ísland gæti einnig tryggt sér virkari þátttöku og styrkt stöðu sína með því að feta í fótspor Norðmanna og koma á sérstöku tvíhliða samtali við ESB um norðurslóðir. Noregur gerði það á þessu ári, en við Ísland eru málefni norðurslóða enn rædd innan almennra samstarfsramma, svo sem öryggis- og varnarsamstarfsins frá því í mars. Þá ætti Ísland að bjóðast til að halda fyrsta leiðtogafund norðlæga nágrannasvæðisins.

2. Bjóðast til að hýsa hluta miðstöðvar fyrir siglingaöryggi

ESB hyggst koma á fót miðstöð fyrir siglingaöryggi (e. Maritime Security Hub) í samstarfi við áhugasöm aðildar- og samstarfsríki. Hlutverk hennar verður að samþætta upplýsingar frá hafsbotni til geims, meðal annars um öryggi sæstrengja og landtökustaði þeirra, ferðir skuggaflota Rússa, ólöglegar veiðar, mengun og leit og björgun. Heildarmynd af Norður-Atlantshafi er ómöguleg án samstarfs við Ísland. Landhelgisgæslan sinnir eftirliti á 752.000 km² hafsvæði og stýrir leit og björgun á um 1,9 milljónum km², meira en tvöfalt stærra svæði en íslenska efnahagslögsagan.

Aðildarríki munu leiða framkvæmdina, en samstarfsríki geta komið að henni. Ísland ætti að bjóðast til að hýsa hluta miðstöðvarinnar og efla þar með getu Landhelgisgæslunnar til upplýsingaöflunar um hafsvæðið umhverfis landið. Stjórnvöld ættu að forgangsraða slíkum verkefnum og fjárfestingum þannig að þau nýtist bæði ESB og hlutverki Íslands innan NATO.

3. Tryggja aðkomu að nýjum sæstreng og sæstrengjamiðstöð norðurslóða

ESB hyggst tengja Grænland beint við Evrópu með lagningu nýs sæstrengs. Honum er ætlað að verða fyrsti leggurinn í stærra neti sem mun tengja Evrópu við Japan og Suður-Kóreu í gegnum Grænland og Kanada. Á meðan hagkvæmniathuganir á leiðinni standa yfir ættu íslensk stjórnvöld að kanna hvort tengja megi Ísland við strenginn. Korda (áður Farice) undirbýr nú næstu strengi og samstarf við Grænland og ESB gæti greitt þeim leið.

Fyrsta skrefið í uppbyggingu siglingaöryggismiðstöðvarinnar verður sæstrengjamiðstöð norðurslóða (e. Arctic Cable Hub). Hún á að vakta og vernda sæstrengi á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum og styðja viðgerðir á þeim, að fyrirmynd sambærilegrar starfsemi í Eystrasalti og Miðjarðarhafi. Líkt og siglingaöryggismiðstöðina gæti Ísland hýst þessa starfsemi, eða að minnsta kosti hluta hennar. Tekið er fram að ESB muni styðja aðildarríki og áhugasöm EES-ríki við uppbyggingu miðstöðvarinnar.

4. Byggja upp evrópska gervihnattainnviði á Íslandi

Ísland gerðist aðili að IRIS², öruggu fjarskiptakerfi ESB um gervihnetti, með samningi sem undirritaður var 26. mars síðastliðinn. Samkvæmt stefnunni hyggst ESB bæta við gervihnöttum svo kerfið nái yfir norðurslóðir, í samvinnu við aðildarríki og ríki utan sambandsins. Þar kemur einnig fram að ESB reiði sig á norðurslóðir til að styrkja viðnámsþrótt sinna geimkerfa, meðal annars með innviðum á jörðu niðri.

Samkvæmt reglum IRIS² geta innviðir kerfisins á jörðu niðri risið í EES-ríkjum þegar ekki er unnt að staðsetja þá innan aðildarríkja. Stjórnvöld ættu að stefna að því að á Íslandi rísi innviðir sem styðja geimkerfi ESB. Þeir myndu efla fjarskiptaöryggi Íslands og Evrópu og auka vægi Íslands í sameiginlegu öryggi Evrópu.

5. Þátttaka í Varnarmálasjóði Evrópu

Ólíkt Noregi stendur Ísland utan Varnarmálasjóðs Evrópu (e. European Defence Fund). Sjóðurinn styður nú tíu verkefni, fyrir um 260 milljónir evra, sem snúa að vörnum á norðurslóðum. Meðal þeirra er þróun flugvélar fyrir erfiðustu aðstæður og eftirlitsbúnaðar sem nær út fyrir sjóndeildarhring. Líkt og í öðrum áætlunum ESB sem Ísland tekur þátt í á grundvelli EES-samningsins greiða þátttökuríki framlag í hlutfalli við landsframleiðslu og fá á móti aðgang að styrkjum. Stjórnvöld ættu að endurskoða ákvörðunina um að taka ekki þátt í EDF og hefja viðræður um þátttöku, enda leggur stefnan áherslu á varnargetu sem nýtist á norðurslóðum.

Framlag Íslands

Þrjú norðurskautsríki eru í ESB og tvö önnur, Ísland og Noregur, eru náin samstarfsríki. Hagsmunir sambandsins á norðurslóðum eru því miklir. Í stefnunni segir: „Fjölþjóðleg samvinna er áfram ómissandi, en hún getur ekki lengur verið eina undirstaða nálgunar Evrópusambandsins á norðurslóðum. Í stuttu máli eru norðurslóðir okkur nálægar, nátengdar og skipta sköpum fyrir framtíð okkar.“ Áhersla stefnunnar á öryggi og samvinnu, til fyllingar við starfsemi NATO, fer saman við hagsmuni Íslands.

Vilji Ísland nýta þessi tækifæri þarf að fylgja þeim eftir af alvöru og fjárfesta í þeirri getu sem þau krefjast. Velvilji og lega landsins duga ekki ein og sér til að tryggja öryggi og viðnámsþrótt. Ríki þurfa að leggja sitt af mörkum. Ísland er fullvalda ríki utan ESB og getur ekki gert ráð fyrir að fljóta með. Hagsmunir landsins krefjast frumkvæðis og vilja til aðgerða. Ráðuneyti og stofnanir ættu því að taka höndum saman og fá fyrirtæki á viðkomandi sviðum til liðs þar sem við á.