Þegar á reynir: Hamfaravitund og viðbúnaður íslensks almennings

Greining Vörðu á hamfaravitund og viðbúnaði íslensks almennings, byggð á Gallup-könnun og samanburði við Eurobarometer

Fyrsta heildstæða könnunin á hamfaravitund og -viðbúnaði íslensks almennings leiðir í ljós að traust er mikið og viðhorf jákvæð, en raunverulegur viðbúnaður er veikur, sérstaklega þegar truflanir vara lengur en í tvo til þrjá daga.

Varða lét framkvæma Gallup-könnun í október og nóvember 2025 á vitund almennings á Íslandi um hamfarir og viðbúnaði við þeim. Þetta er fyrsta ítarlega könnun sinnar tegundar á Íslandi og byggir á Special Eurobarometer 547 um sama efni. Við túlkun á niðurstöðum þessara tveggja kannana ber að hafa í huga að rúmt eitt og hálft ár leið á milli evrópsku og íslensku könnunarinnar.

Jarðvegurinn er frjór. Á Íslandi er traust til viðbragðsaðila1 og stjórnvalda til að bregðast rétt við hamförum eða neyðarástandi afar hátt (94,6%) og langflestir telja undirbúning hjálpa þegar á reynir (81,4%). Þá er einfaldur búnaður víða til staðar.

En viðbúnaðurinn veikist hratt þar sem hann krefst meiri fyrirhyggju. Aðeins 37,1% telja sig undirbúin fyrir hamfarir eða neyð í heimabyggð. Nægjanlegar birgðir af mat og vatni eru samkvæmt svörum langt undir EU27-meðaltali og þess sem er á Norðurlöndunum. Viðbúnaður sem krefst skipulags eða undirbúnings, eins og samskiptaleiðir í neyð, þekking á viðbragðsáætlunum eða samráð við nágranna, skortir að miklu leyti. Nærsamfélagið kemur lítið við sögu bæði sem stoðnet og upplýsingagátt; boðleiðir eru fáar og óburðugar.

Fjórar tillögur

01

Reglubundnar mælingar svo samanburður fáist. Mælingar ættu að vera reglubundnar með sambærilegum spurningum milli ára, svo unnt sé að rekja árangur aðgerða.

02

Setja skýr sjö daga viðmið um lágmarksviðbúnað. Gögnin benda til að almenningur sé samþykkur undirbúningi, en finnist óljóst hvað teljist nægilegt og hvar eigi að byrja. Þörf er á einföldum, opinberum viðmiðum sem auðvelt er að vinna eftir.

03

Virkja nærsamfélagið og efla samheldni. Vinnustaðir, skólar, félagasamtök og nágrannar gegna of litlu hlutverki og ættu að gegna stærra hlutverki með reglulegri fræðslu, samráði og æfingum.

04

Styrkja vitund og viðbúnað. Veikleikarnir birtast þar sem reynir á venju og endurtekningu. Viðbúnaður á að vera hluti af daglegu lífi í skólum, á vinnustöðum og heimilum, en ekki aðeins neyðarviðbrögð við einstökum atburðum.

Tilgangur og samhengi

Á undanförnum árum hefur samfélagslegur viðbúnaður fengið aukið vægi í opinberri stefnumótun í Evrópu. Árið 2024 dreifðu sænsk stjórnvöld bæklingnum Om krisen eller kriget kommer til yfir fimm milljóna heimila, þar sem er að finna skýr fyrirmæli um lágmarksbúnað og undirbúning heimila. Í Finnlandi eru heimili hvött til að geta séð fyrir eigin þörfum í að minnsta kosti þrjá sólarhringa. Árið 2024 var stofnað nýtt ráðuneyti samfélagsöryggis og viðbúnaðar í Danmörku og almannavarnir þar gáfu út leiðbeiningar til almennings sama ár.

Þjóðaröryggisstefna Íslands, sem og öryggis- og varnarmálastefna sem Alþingi samþykkti í ársbyrjun 2026, felur í sér svipaða viðleitni. Hins vegar eru ekki til neinar ítarlegar greiningar á viðbúnaði íslenskra heimila og því ekki ljóst hve stórt verkefni það er að efla vitund og viðbúnað þeirra. Fyrri rannsóknir gefa til kynna að viðbúnaður sé almennt lítill2, en til þessa hefur engin heildstæð greining verið til um þessi efni.

Til þess að unnt sé að fylgja stefnu stjórnvalda eftir með markvissum hætti er þörf á góðum skilningi á núverandi stöðu. Þessari greiningu er ætlað að bæta úr því.

Gögn, aðferð og takmarkanir

Eins og áður er nefnt er í þessari greiningu borin saman íslensk Gallup-könnun á vegum Vörðu og Special Eurobarometer 547 um vitund og viðbúnað almennings gagnvart hamförum og neyðarástandi. Íslenska mælingin var netkönnun lögð fyrir 30. október–14. nóvember 2025. Úrtakið var 2.070 manns, 18 ára og eldri, úr Viðhorfahópi Gallup og bárust 881 svör. Eurobarometer-könnunin var framkvæmd 7. febrúar–3. mars 2024, náði til 15 ára og eldri í EU27 og byggði að mestu á viðtölum augliti til auglitis. Samanburðurinn byggir því á sama spurningaramma, en ólíkum aðferðum beitt og kannanirnar gerðar með rúmlega eins og hálfs árs millibili.

Mesti munurinn er tímasetningin. Á þeim mánuðum sem liðu milli kannananna breyttist öryggisumhverfi Evrópu mikið og þá einnig umræða um viðbúnað og hættumat almennings. Niðurstöðurnar sýna því ekki afstöðu á Íslandi og í EU27 á sama tíma, heldur samanburð milli tveggja tímapunkta. Auk þess var íslenska könnunin ekki framkvæmd augliti til auglitis, sem getur haft áhrif á svörin.

Loks ber að hafa í huga að hér er um sjálfsmat að ræða. Mælt er hvað svarendur telja, vita og segjast hafa gert, ekki hvað þeir hafi gert í raun. Í íslensku gögnunum er hlutfall „veit ekki/tek ekki afstöðu“ hátt í mörgum liðum, einkum þegar spurt er um eigin viðbúnað, boðleiðir og úthald. Í slíkum tilvikum er ráðlegt að hafa í huga annars vegar heildarmyndina og hins vegar niðurstöður meðal þeirra sem taka afstöðu. Í greiningunni er sérstaklega tekið fram þegar myndin breytist verulega eftir því hvor lesturinn er notaður, og á myndunum hér á eftir má skipta á milli lestranna tveggja. Markmiðið hér er fyrst og fremst að setja Ísland í evrópskt samhengi, draga fram frávik og benda á veikleika og tækifæri.

Helstu vísbendingar

Á Íslandi eru jarðfræði og innviðir í brennidepli en pólitískar og öryggistengdar ógnir mun síður nefndar. Þegar svarendur meta hvaða hættur steðji að Íslandi sitja jarðfræðilegar hamfarir (53,1%) og alvarleg röskun á mikilvægum innviðum (41,8%) — svo sem rafmagnsleysi, truflun á hitaveitu eða drykkjarvatni, fjarskiptum eða eldsneytisbirgðum — efst á blaði, langt ofar en í EU27. Þegar spurt er um eigin berskjöldun skipta þessir tveir flokkar hins vegar um röð og innviðir fara fram úr jarðfræði. Pólitískar og öryggistengdar ógnir eru mun síður í forgrunni hér en á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum. Það á bæði við um netöryggi, fjöldaflutninga fólks í neyð, pólitíska eða geópólitíska ólgu, og hryðjuverk, sem allt mælist margfalt lægra á Íslandi. Áþreifanlegar hættur sem fólk þekkir af eigin raun vega því þyngst í áhættumati íslensks almennings.

Einfaldur búnaður er víða til staðar, en birgðir við lengri truflanir skortir. Á Íslandi eru vasaljós eða kerti, sjúkrakassar og rafhlöðuknúin útvörp algengari en í EU27, þótt hlutföllin séu enn talsvert lægri en í Finnlandi og Svíþjóð. Um matar- og vatnsbirgðir gildir allt öðru máli. Aðeins 20,7% segjast eiga neyðarbirgðir af mat og drykk og 9,1% vatn til matseldar og hreinlætis, en 32,6% og 22,5% í EU27. Í þessum efnum er Ísland einnig langt undir Norðurlöndunum og Eystrasaltsríkjunum. Viðbúnaður heimila virðist því víða bundinn við einfaldan búnað fremur en raunverulegt úthald. Þarna má telja að skýr viðmið vanti um lágmarksbirgðir þegar skortur af þessu tagi varir dögum saman.

Skipulag og samhæfing eru veikur hlekkur. Í ljósi þess hve náttúruvá er stór hluti af íslenskum veruleika vekur athygli hve fáir hafa ráðist í einfaldar ráðstafanir sem gætu skipt máli þegar á reynir í þessum efnum. Aðeins 8,9% segjast hafa kynnt sér opinberar viðbragðsáætlanir, 8,1% tekið þátt í þjálfun eða æfingum og 5,5% sammælst við fjölskyldu eða vini um samskiptaleiðir í neyð. Enn færri nefna samráð við nágranna eða neyðartösku. Þetta er víðast undir því sem er í EU27 og langt undir því sem mælist á hinum Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Veikleikinn hér virðist vera að undirbúningur sem krefst samráðs og skipulags hefur ekki fest sig í sessi. Þarna eru nokkur augljós og fremur ódýr tækifæri til úrbóta.

Viðnám við stuttri truflun á helstu innviðum en lítið úthald til lengri tíma. Þegar spurt er hve lengi fólk telji sig geta séð fyrir eigin þörfum ef vatn eða rafmagn fer af eða matvæladreifing stöðvast telur stærsti hópurinn á Íslandi sig komast af í 2–3 daga. En staðan er mun verri ef um er að ræða viku eða meir, einkum varðandi vatn og mat. Aðeins 12,3% telja sig geta séð sér fyrir vatni í meira en viku og 20,2% fyrir mat, sem er undir EU27-meðaltalinu og því sem er í helstu samanburðarlöndum. Hvað rafmagn varðar standa Íslendingar nær hinum Norðurlöndunum. Veikleikinn á Íslandi er því úthald til lengri tíma en bara örfárra daga.

Upplýsingamiðlun á Íslandi byggir á fáum boðleiðum. Þegar spurt er hvar fólk myndi leita sér upplýsinga vegna hamfara nefna langflestir landsmiðla (80,4%) og viðbragðsaðila (41,6%). Stjórnvöld, sveitarfélög og nærsamfélagið eru mun veikari upplýsingagáttir en er í EU27 og á Norðurlöndum. Fjölskylda og vinir eru lítt nefnd, og vinnustaður eða skóli nánast ekki. Upplýsingamiðlun á Íslandi er því í senn öflug og óburðug. Landsmiðlar og viðbragðsaðilar ná hratt til stórra hópa og eru lykilstoðir þegar hætta steðjar að en veikleikinn sá að með svo fáum boðleiðum geta truflanir á fjarskiptum eða starfsemi helstu miðla minnkað upplýsingaflæði til almennings verulega þegar á reynir.

Áhættumat og berskjöldun

Hvaða hættur telur þú að Ísland/landið sé berskjaldaðast fyrir?
Jarðfræðilegar hamfarir
53,1%21%
Alvarleg röskun á innviðakerfi
41,8%26%
Netöryggisógnir
28,7%33%
Öfgaveður
15,3%50%
Fjöldaflutningar fólks í neyð
10,6%27%
Pólitísk/landfræðipólitísk ólga
8,2%32%
Alvarleg slys
7%16%
Kjarnorkuslys
6,5%10%
Flóð
6,4%44%
Heilsufarsáföll
6,3%31%
Hryðjuverk
4,9%25%
Smitfaraldur í dýrum/plöntum
1,6%15%
Skógar- og gróðureldar
0,2%31%
0%20%40%60%

Heimild: Gallup fyrir Vörðu (október–nóvember 2025) og Special Eurobarometer 547 (febrúar–mars 2024).

Gögn myndarinnar
ÍslandEU27
Jarðfræðilegar hamfarir53,1%21%
Alvarleg röskun á innviðakerfi41,8%26%
Netöryggisógnir28,7%33%
Öfgaveður15,3%50%
Fjöldaflutningar fólks í neyð10,6%27%
Pólitísk/landfræðipólitísk ólga8,2%32%
Alvarleg slys7%16%
Kjarnorkuslys6,5%10%
Flóð6,4%44%
Heilsufarsáföll6,3%31%
Hryðjuverk4,9%25%
Smitfaraldur í dýrum/plöntum1,6%15%
Skógar- og gróðureldar0,2%31%

Í hættumati svarenda á Íslandi eru jarðfræði og innviðir fólki efst í huga. Náttúruhamfarir eru oftast nefndar, 53,1%, á móti 21% í EU27. Sambærileg hlutföll sjást þó einnig í sunnanverðri Evrópu, einkum í Grikklandi og á Ítalíu. Alvarleg röskun á mikilvægum innviðum kemur þar næst, 41,8%, sem er yfir EU27 (26%), nær Danmörku (39%), en lægra en gerist í Finnlandi, Svíþjóð og Eistlandi, þar sem hlutfallið er 53–58%. Náttúruhamfarir eru Íslendingum ofarlega í huga og reynsla sem margir þekkja af eigin raun; 16,2% segjast hafa upplifað slíkar hamfarir. Í EU27 mælist þetta hlutfall einungis hærra í Króatíu (26%).

Hvað varðar pólitískar og öryggistengdar ógnir líkist Ísland fremur sunnanverðri Evrópu en hinum Norðurlöndunum. Netöryggi er nefnt af 28,7% á Íslandi, nær því sem er á Kýpur, Spáni og Ítalíu en því sem er á hinum Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Sama gildir um pólitíska eða geópólitíska ólgu: 8,2% hér, 16–20% í sunnanverðri Evrópu, 36–52% í Eystrasaltsríkjunum og 40–48% á hinum Norðurlöndunum. Hryðjuverk og fjöldaflutningar í neyð eru ótengd íslenskum raunveruleika og vekja minni áhyggjur á Íslandi en í flestum öðrum ríkjum.

Munur á upplifun af persónulegri berskjöldun og reynslu af hamförum á síðustu 10 árum
Alvarleg röskun á innviðakerfi
36,8%9,6%
Jarðfræðilegar hamfarir
30,3%16,2%
Netöryggisógnir
25,7%5,7%
Heilsufarsáföll
22,5%5%
Öfgaveður
15,5%9%
Pólitísk/landfræðipólitísk ólga
7%3,1%
Fjöldaflutningar fólks í neyð
6,8%4%
Alvarleg slys
6,5%0,4%
Kjarnorkuslys
6,4%0,1%
Flóð
4,8%2,9%
Hryðjuverk
4,6%0,4%
Smitfaraldur í dýrum/plöntum
1,9%0,5%
Skógar- og gróðureldar
1%0,7%
0%10%20%30%40%

Heimild: Gallup fyrir Vörðu (október–nóvember 2025) og Special Eurobarometer 547 (febrúar–mars 2024). Aðeins Ísland.

Gögn myndarinnar
BerskjöldunReynsla
Alvarleg röskun á innviðakerfi36,8%9,6%
Jarðfræðilegar hamfarir30,3%16,2%
Netöryggisógnir25,7%5,7%
Heilsufarsáföll22,5%5%
Öfgaveður15,5%9%
Pólitísk/landfræðipólitísk ólga7%3,1%
Fjöldaflutningar fólks í neyð6,8%4%
Alvarleg slys6,5%0,4%
Kjarnorkuslys6,4%0,1%
Flóð4,8%2,9%
Hryðjuverk4,6%0,4%
Smitfaraldur í dýrum/plöntum1,9%0,5%
Skógar- og gróðureldar1%0,7%

Þegar svarendur meta eigin berskjöldun færist áherslan á Íslandi frá jarðfræði yfir á innviði. Röskun á mikilvægum innviðum — svo sem rafmagnsleysi, truflun á hitaveitu eða drykkjarvatni, fjarskiptum eða eldsneytisbirgðum — er nefnd af 36,8%, á móti 21% í EU27, en jarðfræðilegar hamfarir koma þar næst með 30,3%, en 13% í EU27. Þetta kemur ekki á óvart því truflun á innviðum getur raskað daglegu lífi flestra, óháð búsetu, en jarðfræðilegar hamfarir tengjast iðulega ákveðnum svæðum. Innviðir eru einnig ofarlega í samanburðarlöndunum; í Svíþjóð hjá 53% svarenda og í Finnlandi hjá 46%.

Öfgaveður er minna áhyggjuefni en ætla mætti. Aðeins 15,5% nefna öfgaveður, en 38% í EU27. Hlutfallið á Íslandi er lægra en í helstu samanburðarlöndunum. Það vekur athygli í ljósi þess hve veðurviðvaranir eru algengar á Íslandi og hve veður hefur mikil áhrif á samgöngur, innviði og daglegt líf. Skýringin gæti verið sú að veðurvá sé síður talin sérstök ógn því hún er algeng og Íslendingar gera almennt ráð fyrir að ráða við hana.

Á Íslandi er töluverð reynsla af röskunum á innviðum. 9,6% segjast hafa upplifað slíka röskun, en 4% í EU27. Í viðmiðunarlöndunum er hlutfallið víða lægra, 2% í Danmörku, Hollandi og Írlandi og 4% í Finnlandi, en Svíþjóð er nær með 10% og Eistland hærra með 14%. Þetta bendir til að raskanir á innviðum séu ekki aðeins fræðilegur möguleiki í huga svarenda, heldur reynsla sem margir þekkja af eigin raun.

Upplýsingaöflun í hamförum

Hvaða miðla myndir þú nota til að afla þér upplýsinga um hættu vegna hamfara?
Landsmiðlar
80,4%49%65%67%53%
Viðbragðsaðilar
41,6%33%46%41%38%
Samfélagsmiðlar
24,7%29%20%32%22%
Fjölskylda eða vinir
8,4%31%26%25%30%
Stjórnvöld/opinberar stofnanir
8,1%27%31%44%36%
Vísindamenn/háskólar
6%16%20%27%21%
Svæðis-/bæjarmiðlar
4,3%36%24%36%27%
Frjáls félagasamtök
1,2%11%8%9%10%
Vinnustaður eða skóli
0,4%8%8%9%7%
0%25%50%75%100%

Heimild: Gallup fyrir Vörðu (október–nóvember 2025) og Special Eurobarometer 547 (febrúar–mars 2024).

Gögn myndarinnar
ÍslandEU27FinnlandDanmörkSvíþjóð
Landsmiðlar80,4%49%65%67%53%
Viðbragðsaðilar41,6%33%46%41%38%
Samfélagsmiðlar24,7%29%20%32%22%
Fjölskylda eða vinir8,4%31%26%25%30%
Stjórnvöld/opinberar stofnanir8,1%27%31%44%36%
Vísindamenn/háskólar6%16%20%27%21%
Svæðis-/bæjarmiðlar4,3%36%24%36%27%
Frjáls félagasamtök1,2%11%8%9%10%
Vinnustaður eða skóli0,4%8%8%9%7%

Þegar hætta steðjar að þá leita Íslendingar fyrst og fremst til landsmiðla og viðbragðsaðila til að afla sér upplýsinga. Landsmiðlar eru nefndir af 80,4% svarenda, á móti 49% í EU27 og hlutfallið er einnig hærra en á hinum Norðurlöndunum, þar sem það er 59–67%. Viðbragðsaðilar eru nefndir af 41,6% á Íslandi, en 33% í EU27; þarna er Ísland nokkuð undir hinum Norðurlöndunum: Danmörku (41%), Finnlandi (45%) og Svíþjóð (61%).

Á hinn bóginn eru stjórnvöld og nærsamfélagið nánast fjarverandi í huga Íslendinga. Aðeins 8,1% nefna stjórnvöld, sveitarfélög og opinberar stofnanir, en 27% í EU27 og 44–63% á hinum Norðurlöndunum. Fjölskylda og vinir eru nefnd af 8,4% svarenda, en 31% í EU27 og 18–25% á hinum Norðurlöndunum. Vinnustaður eða skóli koma nánast ekki við sögu á Íslandi, aðeins 0,4%, en 8% í EU27 og 9–11% á hinum Norðurlöndunum.

Upplýsingamiðlun á Íslandi er bæði öflug og óburðug. Landsmiðlar og viðbragðsaðilar ná hratt til stórra hópa og eru því lykilstoðir í hættuástandi. En í þessum styrkleika felst einnig veikleiki: með svo fáum boðleiðum geta truflanir á fjarskiptum eða landsmiðlum skert upplýsingar til almennings verulega þegar á reynir.

Vitund og óvissa

Hátt hlutfall óvissu. Í mörgum þeim spurningum sem koma hér á eftir er hlutfall „veit ekki/tek ekki afstöðu“ hátt í íslensku könnuninni, oft 15–20%, en fer sjaldan yfir 5% í EU27-könnuninni. Slíka óvissu má túlka á fleiri en einn veg. Annars vegar kann þetta að benda til að afstaða fólks sé ómótuð, til dæmis vegna þess að skýr viðmið vanti um hvað telst nóg, hvað sé raunhæft að gera eða hvar eigi að byrja. Hins vegar getur hún bent til óvissu um nálgun og ábyrgð: hver geri hvað og hvar upplýsingar sé að finna. Munur á framkvæmd kannananna getur einnig haft áhrif. Hér á eftir eru því sýndar niðurstöður fyrir þá sem tóku afstöðu en hugað að öllum svörum þar sem það skiptir máli; með rofanum á hverri mynd má skoða heildarúrtakið.

Ég hef lesið, séð eða heyrt upplýsingar um hættu á hamförum síðustu 12 mánuðina.
Mjög sammálaFrekar sammálaFrekar ósammálaMjög ósammálaVeit ekki / tek ekki afstöðu
Ísland
35,7%Mjög sammála 35,7%45,6%Frekar sammála 45,6%9,8%Frekar ósammála 9,8%8,8%Mjög ósammála 8,8%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Danmörk
49%Mjög sammála 49%30,6%Frekar sammála 30,6%7,1%Frekar ósammála 7,1%12,2%Mjög ósammála 12,2%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Finnland
44,3%Mjög sammála 44,3%36,1%Frekar sammála 36,1%14,4%Frekar ósammála 14,4%4,1%Mjög ósammála 4,1%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Svíþjóð
80%Mjög sammála 80%16%Frekar sammála 16%3%Frekar ósammála 3%1%Mjög ósammála 1%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Eistland
32,7%Mjög sammála 32,7%44,9%Frekar sammála 44,9%16,3%Frekar ósammála 16,3%6,1%Mjög ósammála 6,1%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Litháen
33,3%Mjög sammála 33,3%46,5%Frekar sammála 46,5%13,1%Frekar ósammála 13,1%5,1%Mjög ósammála 5,1%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Lettland
22,7%Mjög sammála 22,7%46,4%Frekar sammála 46,4%18,6%Frekar ósammála 18,6%9,3%Mjög ósammála 9,3%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Holland
14,3%Mjög sammála 14,3%28,6%Frekar sammála 28,6%28,6%Frekar ósammála 28,6%25,5%Mjög ósammála 25,5%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Írland
42,9%Mjög sammála 42,9%33,7%Frekar sammála 33,7%16,3%Frekar ósammála 16,3%6,1%Mjög ósammála 6,1%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
EU27
23,5%Mjög sammála 23,5%35,7%Frekar sammála 35,7%19,4%Frekar ósammála 19,4%20,4%Mjög ósammála 20,4%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
0%25%50%75%100%

Heimild: Gallup fyrir Vörðu (október–nóvember 2025) og Special Eurobarometer 547 (febrúar–mars 2024).

Gögn myndarinnar
Mjög sammálaFrekar sammálaFrekar ósammálaMjög ósammála
Ísland35,7%45,6%9,8%8,8%
Danmörk49%30,6%7,1%12,2%
Finnland44,3%36,1%14,4%4,1%
Svíþjóð80%16%3%1%
Eistland32,7%44,9%16,3%6,1%
Litháen33,3%46,5%13,1%5,1%
Lettland22,7%46,4%18,6%9,3%
Holland14,3%28,6%28,6%25,5%
Írland42,9%33,7%16,3%6,1%
EU2723,5%35,7%19,4%20,4%

Margir á Íslandi segjast hafa orðið varir við upplýsingar um hættu á hamförum. Meðal þeirra sem tóku afstöðu segjast 81,3% hafa orðið varir við upplýsingar um hættu á hamförum síðustu tólf mánuði, en 59,2% í EU27. Ísland er hér á svipuðu róli og Danmörk (79,6%) og Finnland (80,4%), en hlutfallið er hærra í Svíþjóð (96%). Sé miðað við öll svör lækkar hlutfallið á Íslandi í 67,4%, en í flestum samanburðarlöndum breytist talan minna þar sem hlutfall óákveðinna er lægra.

Ég tel mig vera vel upplýst(ur) um þá hættu á hamförum sem gætu haft áhrif á mig.
Mjög sammálaFrekar sammálaFrekar ósammálaMjög ósammálaVeit ekki / tek ekki afstöðu
Ísland
22,2%Mjög sammála 22,2%64,7%Frekar sammála 64,7%9,6%Frekar ósammála 9,6%3,5%Mjög ósammála 3,5%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Danmörk
29,6%Mjög sammála 29,6%39,8%Frekar sammála 39,8%20,4%Frekar ósammála 20,4%9,2%Mjög ósammála 9,2%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Finnland
25,5%Mjög sammála 25,5%55,1%Frekar sammála 55,1%16,3%Frekar ósammála 16,3%3,1%Mjög ósammála 3,1%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Svíþjóð
40%Mjög sammála 40%50%Frekar sammála 50%9%Frekar ósammála 9%1%Mjög ósammála 1%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Eistland
15,6%Mjög sammála 15,6%42,7%Frekar sammála 42,7%28,1%Frekar ósammála 28,1%12,5%Mjög ósammála 12,5%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Litháen
15,3%Mjög sammála 15,3%41,8%Frekar sammála 41,8%27,6%Frekar ósammála 27,6%11,2%Mjög ósammála 11,2%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Lettland
15,5%Mjög sammála 15,5%39,2%Frekar sammála 39,2%28,9%Frekar ósammála 28,9%14,4%Mjög ósammála 14,4%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Holland
11,1%Mjög sammála 11,1%27,3%Frekar sammála 27,3%36,4%Frekar ósammála 36,4%23,2%Mjög ósammála 23,2%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Írland
19,4%Mjög sammála 19,4%43,9%Frekar sammála 43,9%27,6%Frekar ósammála 27,6%9,2%Mjög ósammála 9,2%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
EU27
13,3%Mjög sammála 13,3%35,7%Frekar sammála 35,7%31,6%Frekar ósammála 31,6%18,4%Mjög ósammála 18,4%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
0%25%50%75%100%

Heimild: Gallup fyrir Vörðu (október–nóvember 2025) og Special Eurobarometer 547 (febrúar–mars 2024).

Gögn myndarinnar
Mjög sammálaFrekar sammálaFrekar ósammálaMjög ósammála
Ísland22,2%64,7%9,6%3,5%
Danmörk29,6%39,8%20,4%9,2%
Finnland25,5%55,1%16,3%3,1%
Svíþjóð40%50%9%1%
Eistland15,6%42,7%28,1%12,5%
Litháen15,3%41,8%27,6%11,2%
Lettland15,5%39,2%28,9%14,4%
Holland11,1%27,3%36,4%23,2%
Írland19,4%43,9%27,6%9,2%
EU2713,3%35,7%31,6%18,4%

Hlutfall þeirra sem telja sig vel upplýsta er óvenju hátt á Íslandi. Meðal þeirra sem tóku afstöðu segjast 86,9% sammála, en 49,0% í EU27. Á Íslandi er hlutfallið lægra en í Svíþjóð (90,0%) en ofar öðrum viðmiðunarlöndum. Athyglisvert er að á Íslandi er þetta hlutfall hærra en í liðnum á undan, þegar spurt var hvort fólk hafi orðið vart við upplýsingar síðustu tólf mánuðina. Skynsamlegt er að túlka það í ljósi áherslna í hættumatinu: fólk getur talið sig vel upplýst um það sem því er efst í huga án þess að það sé jafn vel upplýst um aðrar ógnir sem eru síður nefndar. Sé miðað við heildarúrtak lækkar hlutfallið í 74,1%, en á Íslandi er hlutfallið áfram hátt, og vel yfir EU27, þótt Finnland (79%) fari þá einnig upp fyrir Ísland.

Traust og aðgengi að upplýsingum

Ég treysti upplýsingum frá stjórnvöldum og almannavörnum um hættu á hamförum á því svæði sem ég bý á.
Mjög sammálaFrekar sammálaFrekar ósammálaMjög ósammálaVeit ekki / tek ekki afstöðu
Ísland
46,2%Mjög sammála 46,2%46,5%Frekar sammála 46,5%5,3%Frekar ósammála 5,3%2%Mjög ósammála 2%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Danmörk
54,1%Mjög sammála 54,1%33,7%Frekar sammála 33,7%8,2%Frekar ósammála 8,2%4,1%Mjög ósammála 4,1%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Finnland
71,7%Mjög sammála 71,7%25,3%Frekar sammála 25,3%3%Frekar ósammála 3%0%Mjög ósammála 0%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Svíþjóð
70,7%Mjög sammála 70,7%24,2%Frekar sammála 24,2%4%Frekar ósammála 4%1%Mjög ósammála 1%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Eistland
26,8%Mjög sammála 26,8%52,6%Frekar sammála 52,6%18,6%Frekar ósammála 18,6%2,1%Mjög ósammála 2,1%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Litháen
17,5%Mjög sammála 17,5%46,4%Frekar sammála 46,4%25,8%Frekar ósammála 25,8%9,3%Mjög ósammála 9,3%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Lettland
21,1%Mjög sammála 21,1%45,3%Frekar sammála 45,3%24,2%Frekar ósammála 24,2%9,5%Mjög ósammála 9,5%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Holland
28%Mjög sammála 28%57%Frekar sammála 57%12%Frekar ósammála 12%1%Mjög ósammála 1%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Írland
50%Mjög sammála 50%40,6%Frekar sammála 40,6%10,4%Frekar ósammála 10,4%2,1%Mjög ósammála 2,1%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
EU27
24,7%Mjög sammála 24,7%47,4%Frekar sammála 47,4%19,6%Frekar ósammála 19,6%7,2%Mjög ósammála 7,2%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
0%25%50%75%100%

Heimild: Gallup fyrir Vörðu (október–nóvember 2025) og Special Eurobarometer 547 (febrúar–mars 2024).

Gögn myndarinnar
Mjög sammálaFrekar sammálaFrekar ósammálaMjög ósammála
Ísland46,2%46,5%5,3%2%
Danmörk54,1%33,7%8,2%4,1%
Finnland71,7%25,3%3%0%
Svíþjóð70,7%24,2%4%1%
Eistland26,8%52,6%18,6%2,1%
Litháen17,5%46,4%25,8%9,3%
Lettland21,1%45,3%24,2%9,5%
Holland28%57%12%1%
Írland50%40,6%10,4%2,1%
EU2724,7%47,4%19,6%7,2%

Traust til upplýsinga frá stjórnvöldum og almannavörnum er hátt á Íslandi, en ekki eins afdráttarlaust og á hinum Norðurlöndunum. Meðal þeirra sem tóku afstöðu segjast 92,7% treysta slíkum upplýsingum, en 72,2% í EU27. Ísland stendur þar ofar en Danmörk og vel ofar en Eystrasaltsríkin, en undir Finnlandi og Svíþjóð. Um leið er hlutfall þeirra sem segjast mjög sammála lægra hér en á hinum Norðurlöndunum í samanburðinum: 46,3% á Íslandi, á móti 54,1–71,7% þar. Í heildarúrtaki segjast 82,6% treysta upplýsingum frá stjórnvöldum og almannavörnum, þar af eru 41,2% því mjög sammála.

Það er auðvelt að nálgast upplýsingar um hættu af hamförum í minni byggð frá stjórnvöldum og viðbragðsaðilum.
Mjög sammálaFrekar sammálaFrekar ósammálaMjög ósammálaVeit ekki / tek ekki afstöðu
Ísland
29,7%Mjög sammála 29,7%55%Frekar sammála 55%12,1%Frekar ósammála 12,1%3,2%Mjög ósammála 3,2%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Danmörk
38,5%Mjög sammála 38,5%38,5%Frekar sammála 38,5%12,1%Frekar ósammála 12,1%8,8%Mjög ósammála 8,8%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Finnland
31,5%Mjög sammála 31,5%48,9%Frekar sammála 48,9%16,3%Frekar ósammála 16,3%3,3%Mjög ósammála 3,3%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Svíþjóð
36,8%Mjög sammála 36,8%47,4%Frekar sammála 47,4%11,6%Frekar ósammála 11,6%3,2%Mjög ósammála 3,2%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Eistland
16,9%Mjög sammála 16,9%43,8%Frekar sammála 43,8%32,6%Frekar ósammála 32,6%11,2%Mjög ósammála 11,2%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Litháen
16,9%Mjög sammála 16,9%40,4%Frekar sammála 40,4%32,6%Frekar ósammála 32,6%9%Mjög ósammála 9%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Lettland
15,6%Mjög sammála 15,6%37,8%Frekar sammála 37,8%34,4%Frekar ósammála 34,4%13,3%Mjög ósammála 13,3%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Holland
18,1%Mjög sammála 18,1%41,5%Frekar sammála 41,5%29,8%Frekar ósammála 29,8%10,6%Mjög ósammála 10,6%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
Írland
30,4%Mjög sammála 30,4%43,5%Frekar sammála 43,5%21,7%Frekar ósammála 21,7%8,7%Mjög ósammála 8,7%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
EU27
16%Mjög sammála 16%41,5%Frekar sammála 41,5%28,7%Frekar ósammála 28,7%12,8%Mjög ósammála 12,8%0%Veit ekki / tek ekki afstöðu 0%
0%25%50%75%100%

Heimild: Gallup fyrir Vörðu (október–nóvember 2025) og Special Eurobarometer 547 (febrúar–mars 2024).

Gögn myndarinnar
Mjög sammálaFrekar sammálaFrekar ósammálaMjög ósammála
Ísland29,7%55%12,1%3,2%
Danmörk38,5%38,5%12,1%8,8%
Finnland31,5%48,9%16,3%3,3%
Svíþjóð36,8%47,4%11,6%3,2%
Eistland16,9%43,8%32,6%11,2%
Litháen16,9%40,4%32,6%9%
Lettland15,6%37,8%34,4%13,3%
Holland18,1%41,5%29,8%10,6%
Írland30,4%43,5%21,7%8,7%
EU2716%41,5%28,7%12,8%

Aðgengi að upplýsingum mælist einnig gott, en þar er óvissan meiri. Meðal þeirra sem tóku afstöðu segjast 84,7% eiga auðvelt með að finna upplýsingar frá stjórnvöldum og almannavörnum um hættu á hamförum, en 57,5% í EU27. Ísland er hér á svipuðu róli og Svíþjóð (84,2%) og ofar en Danmörk (77,0%) og Finnland (80,4%); í Eystrasaltsríkjunum er hlutfallið lægra, 53,4–60,7%. Sé miðað við heildarúrtak lækkar hlutfallið hins vegar í 64,4%. Mikill munur bendir til að nokkuð stór hópur sé óviss um hvar upplýsingarnar eru að finna og hversu auðvelt sé í reynd að nálgast þær.

Viðbúnaður heimila

Til hvaða ráðstafana hefur þú gripið til viðbúnaðar?
Vasaljós eða kerti
64%63,1%91,8%90,6%52,8%
Sjúkrakassi
51,3%23,8%64,3%55,2%40,4%
Rafhlöðuknúið útvarp
24,2%23,8%50%50%22,5%
Neyðarbirgðir af mat/drykk
20,7%16,7%52%44,8%32,6%
Neyðarbirgðir af vatni
9,1%9,5%35,7%32,3%22,5%
Afritað mikilvæg skjöl
13,7%17,9%29,6%24%18%
Kynnt mér viðbragðsáætlun
8,9%3,6%19,4%20,8%10,1%
Sammælst um samband í neyð
5,5%11,9%18,4%15,6%20,2%
Tekið þátt í þjálfun/æfingu
8,1%9,5%24,5%20,8%9%
Rætt við nágranna
1,1%3,6%9,2%6,2%7,9%
Pakkað neyðartösku
1,2%2,4%4,1%7,3%9%
Öryggisumbætur á heimili
6,6%7,1%17,3%8,3%7,9%
0%25%50%75%100%

Heimild: Gallup fyrir Vörðu (október–nóvember 2025) og Special Eurobarometer 547 (febrúar–mars 2024). Þeir sem tóku afstöðu.

Gögn myndarinnar
ÍslandDanmörkFinnlandSvíþjóðEU27
Vasaljós eða kerti64%63,1%91,8%90,6%52,8%
Sjúkrakassi51,3%23,8%64,3%55,2%40,4%
Rafhlöðuknúið útvarp24,2%23,8%50%50%22,5%
Neyðarbirgðir af mat/drykk20,7%16,7%52%44,8%32,6%
Neyðarbirgðir af vatni9,1%9,5%35,7%32,3%22,5%
Afritað mikilvæg skjöl13,7%17,9%29,6%24%18%
Kynnt mér viðbragðsáætlun8,9%3,6%19,4%20,8%10,1%
Sammælst um samband í neyð5,5%11,9%18,4%15,6%20,2%
Tekið þátt í þjálfun/æfingu8,1%9,5%24,5%20,8%9%
Rætt við nágranna1,1%3,6%9,2%6,2%7,9%
Pakkað neyðartösku1,2%2,4%4,1%7,3%9%
Öryggisumbætur á heimili6,6%7,1%17,3%8,3%7,9%

Íslensk heimili standa vel að vígi varðandi einfaldan búnað. 63,9% segjast eiga vasaljós eða kerti, 51,3% sjúkrakassa og 24,2% rafhlöðuknúið útvarp. Þetta er yfir meðaltali EU27, sem er 52,8%, 40,4% og 22,5%. Ísland er þó umtalsvert neðar en Finnland og Svíþjóð, þar sem 91,8% og 90,6% eiga vasaljós eða kerti, 64,3% og 55,2% sjúkrakassa og 50% og 50% rafhlöðuknúið útvarp. Grunnbúnaður er því víða til en útbreiðslan er minni en í þeim löndum þar sem heimilisviðbúnaður hefur verið kerfisbundið efldur.

Þegar horft er til birgða er niðurstaðan önnur. Aðeins 20,7% segjast eiga neyðarbirgðir af mat og drykk, samanborið við 32,6% í EU27. Hlutfallið er 52% í Finnlandi og 44,8% í Svíþjóð. Vatnsbirgðir mælast 9,1% á Íslandi, en 22,5% í EU27, 35,7% í Finnlandi og 32,3% í Svíþjóð. Hér er Ísland því undir evrópsku meðaltali og nokkuð langt frá þeim ríkjum sem leggja áherslu á langvarandi úthald heimila.

Sama mynstur sést í skipulagi og samhæfingu. Alls hafa 13,7% tekið afrit af mikilvægum skjölum, en 18% í EU27, 29,6% í Finnlandi og 24% í Svíþjóð. 8,9% hafa kynnt sér opinberar viðbragðsáætlanir, sem er svipað og í EU27 (10,1%), en undir Finnlandi (19,4%) og Svíþjóð (20,8%). Aðeins 1,2% íslenskra svarenda höfðu pakkað neyðartösku, lægsta hlutfall allra ríkja í könnuninni. Ennfremur höfðu aðeins 5,5% sammælst við fjölskyldu eða vini um samskiptaleiðir í neyð, en hlutfallið í EU27 er 20,2%, í Finnlandi 18,4%, Svíþjóð 15,6% og 21–30% í Eystrasaltsríkjunum. Samráð við nágranna mælist 1,1% á Íslandi, 7,9% í EU27 og 3–10% á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum. Viðbúnaðurinn er því fyrst og fremst bundinn við einfaldan búnað; úthald, áætlanagerð og virkjun nærsamfélagsins eru mun veikari.

Þátttaka almennings í æfingum og þjálfun er takmörkuð. 8,1% segjast hafa tekið þátt í æfingu eða þjálfun í neyðarviðbrögðum. Það er rétt undir EU27 (9%), sama og í Danmörku, en mun lægra en í Finnlandi (24,5%) og Svíþjóð (20,8%); í Eystrasaltsríkjunum mælist hlutfallið á bilinu 6–14%. Í ljósi sterkrar hefðar fyrir sjálfboðastarfi á Íslandi vekur þetta athygli. Hugsanlegt er að sú hefð bæti hlutfallið og að niðurstaðan bendi til þess að skipulögð fræðsla og æfingar á vegum opinberra aðila nái aðeins til þröngs hóps.

Íslensk heimili hafa víða tekið fyrstu skrefin, en sjaldnar þau næstu. Einfaldur búnaður er tiltölulega útbreiddur, en þegar kemur að birgðum, skjalaöryggi, samskiptaáætlun, undirbúningi rýmingar og æfingum lækka hlutföllin hratt. Það er vísbending um að skipulegur undirbúningur fyrir lengri truflanir sé fremur undantekning en regla enn sem komið er. Viðbúnaður virðist því víða bundinn við einstakar ráðstafanir fremur en heildstæða áætlun sem er rædd, uppfærð og æfð.

Nærsamfélagið er þar lykilatriði, en er lítt virkjað. Þegar spurt var hvar fólk leitaði upplýsinga um hættu vegna hamfara nefndu 8,4% fjölskyldu eða vini og aðeins 0,4% vinnustað eða skóla, á meðan sambærileg hlutföll í EU27 eru 31% og 8%. Sama mynstur birtist í undirbúningi íslenskra heimila. Samráð innan fjölskyldna er takmarkað og nær ekkert við nágranna. Þar eru því augljós og tiltölulega ódýr tækifæri til úrbóta. Það krefst ekki mikilla fjárfestinga að efla samtal innan heimila, milli nágranna og í gegnum vinnustaði og skóla, en getur skotið traustum stoðum undir bæði miðlun upplýsinga og viðbúnað þegar á reynir.

Sjálfsbjargargeta og úthald

Ísland sker sig úr í tveggja til þriggja daga úthaldi. Meðal þeirra sem tóku afstöðu telja 41,8% sig geta séð sér fyrir vatni í 2–3 daga, 48,2% fyrir rafmagni og 39,8% mat. Í rafmagni og mat eru þessi hlutföll hærri en í helstu samanburðarlöndum. Sé miðað við heildarúrtak helst Ísland efst í 2–3 daga flokknum fyrir rafmagn (39,3%) og mat (32,5%), en fyrir vatn (33,3%) er Ísland rétt undir EU27-meðaltalinu (35%).

Hversu lengi gætir þú séð fyrir þínum þörfum ef rafmagn fer af?
1 dagur eða minna2–3 dagar4–7 dagarMeira en 7 dagarTek ekki afstöðu
Ísland
16,1%1 dagur eða minna 16,1%48,3%2–3 dagar 48,3%20,5%4–7 dagar 20,5%15,1%Meira en 7 dagar 15,1%0%Tek ekki afstöðu 0%
Danmörk
63,2%1 dagur eða minna 63,2%18,9%2–3 dagar 18,9%9,5%4–7 dagar 9,5%6,3%Meira en 7 dagar 6,3%0%Tek ekki afstöðu 0%
Finnland
67,4%1 dagur eða minna 67,4%15,8%2–3 dagar 15,8%5,3%4–7 dagar 5,3%11,6%Meira en 7 dagar 11,6%0%Tek ekki afstöðu 0%
Svíþjóð
56,6%1 dagur eða minna 56,6%20,2%2–3 dagar 20,2%11,1%4–7 dagar 11,1%12,1%Meira en 7 dagar 12,1%0%Tek ekki afstöðu 0%
Eistland
54,3%1 dagur eða minna 54,3%22,3%2–3 dagar 22,3%8,5%4–7 dagar 8,5%13,8%Meira en 7 dagar 13,8%0%Tek ekki afstöðu 0%
Litháen
47,4%1 dagur eða minna 47,4%19,6%2–3 dagar 19,6%12,4%4–7 dagar 12,4%18,6%Meira en 7 dagar 18,6%0%Tek ekki afstöðu 0%
Lettland
40,6%1 dagur eða minna 40,6%27,1%2–3 dagar 27,1%15,6%4–7 dagar 15,6%15,6%Meira en 7 dagar 15,6%0%Tek ekki afstöðu 0%
Holland
70,1%1 dagur eða minna 70,1%13,4%2–3 dagar 13,4%7,2%4–7 dagar 7,2%7,2%Meira en 7 dagar 7,2%0%Tek ekki afstöðu 0%
Írland
42,1%1 dagur eða minna 42,1%29,5%2–3 dagar 29,5%14,7%4–7 dagar 14,7%11,6%Meira en 7 dagar 11,6%0%Tek ekki afstöðu 0%
EU27
51,1%1 dagur eða minna 51,1%24,5%2–3 dagar 24,5%11,7%4–7 dagar 11,7%10,6%Meira en 7 dagar 10,6%0%Tek ekki afstöðu 0%
0%25%50%75%100%

Heimild: Gallup fyrir Vörðu (október–nóvember 2025) og Special Eurobarometer 547 (febrúar–mars 2024).

Gögn myndarinnar
1 dagur eða minna2–3 dagar4–7 dagarMeira en 7 dagar
Ísland16,1%48,3%20,5%15,1%
Danmörk63,2%18,9%9,5%6,3%
Finnland67,4%15,8%5,3%11,6%
Svíþjóð56,6%20,2%11,1%12,1%
Eistland54,3%22,3%8,5%13,8%
Litháen47,4%19,6%12,4%18,6%
Lettland40,6%27,1%15,6%15,6%
Holland70,1%13,4%7,2%7,2%
Írland42,1%29,5%14,7%11,6%
EU2751,1%24,5%11,7%10,6%

Rafmagn er sá þáttur þar sem Ísland heldur stöðu sinni best þegar horft er til lengra úthalds. Meðal þeirra sem tóku afstöðu telja 20,5% sig geta séð fyrir þörfum sínum í fjóra til sjö daga og 15,1% í meira en viku, samanborið við 11,7% og 10,6% í EU27. Á hinum Norðurlöndunum sem hér eru til samanburðar liggja samsvarandi hlutföll á bilinu 5,3–11,1% fyrir fjóra til sjö daga og 6,3–12,1% fyrir meira en viku. Sé miðað við heildarúrtak lækka hlutföllin á Íslandi í 16,7% í fjóra til sjö daga og 12,3% yfir viku, en röðun miðað við önnur lönd breytist lítið.

Hversu lengi gætir þú séð fyrir þínum þörfum ef vatnsveita raskast?
1 dagur eða minna2–3 dagar4–7 dagarMeira en 7 dagarTek ekki afstöðu
Ísland
26%1 dagur eða minna 26%42,1%2–3 dagar 42,1%19,6%4–7 dagar 19,6%12,3%Meira en 7 dagar 12,3%0%Tek ekki afstöðu 0%
Danmörk
41,1%1 dagur eða minna 41,1%35,8%2–3 dagar 35,8%10,5%4–7 dagar 10,5%12,6%Meira en 7 dagar 12,6%0%Tek ekki afstöðu 0%
Finnland
41,8%1 dagur eða minna 41,8%28,6%2–3 dagar 28,6%8,2%4–7 dagar 8,2%20,4%Meira en 7 dagar 20,4%0%Tek ekki afstöðu 0%
Svíþjóð
33%1 dagur eða minna 33%29%2–3 dagar 29%18%4–7 dagar 18%20%Meira en 7 dagar 20%0%Tek ekki afstöðu 0%
Eistland
29,5%1 dagur eða minna 29,5%33,7%2–3 dagar 33,7%13,7%4–7 dagar 13,7%22,1%Meira en 7 dagar 22,1%0%Tek ekki afstöðu 0%
Litháen
22,2%1 dagur eða minna 22,2%25,3%2–3 dagar 25,3%10,1%4–7 dagar 10,1%40,4%Meira en 7 dagar 40,4%0%Tek ekki afstöðu 0%
Lettland
24,7%1 dagur eða minna 24,7%33%2–3 dagar 33%12,4%4–7 dagar 12,4%28,9%Meira en 7 dagar 28,9%0%Tek ekki afstöðu 0%
Holland
35,4%1 dagur eða minna 35,4%38,4%2–3 dagar 38,4%14,1%4–7 dagar 14,1%11,1%Meira en 7 dagar 11,1%0%Tek ekki afstöðu 0%
Írland
32,3%1 dagur eða minna 32,3%41,7%2–3 dagar 41,7%15,6%4–7 dagar 15,6%10,4%Meira en 7 dagar 10,4%0%Tek ekki afstöðu 0%
EU27
31,2%1 dagur eða minna 31,2%36,5%2–3 dagar 36,5%16,7%4–7 dagar 16,7%14,6%Meira en 7 dagar 14,6%0%Tek ekki afstöðu 0%
0%25%50%75%100%

Heimild: Gallup fyrir Vörðu (október–nóvember 2025) og Special Eurobarometer 547 (febrúar–mars 2024).

Gögn myndarinnar
1 dagur eða minna2–3 dagar4–7 dagarMeira en 7 dagar
Ísland26%42,1%19,6%12,3%
Danmörk41,1%35,8%10,5%12,6%
Finnland41,8%28,6%8,2%20,4%
Svíþjóð33%29%18%20%
Eistland29,5%33,7%13,7%22,1%
Litháen22,2%25,3%10,1%40,4%
Lettland24,7%33%12,4%28,9%
Holland35,4%38,4%14,1%11,1%
Írland32,3%41,7%15,6%10,4%
EU2731,2%36,5%16,7%14,6%

Hins vegar dregur skarpt úr úthaldi við vatnsskort. Meðal þeirra sem tóku afstöðu telja 19,6% sig geta séð fyrir vatni í fjóra til sjö daga og 12,3% í meira en viku. Í EU27 eru samsvarandi hlutföll 16,7% og 14,6%. Í Finnlandi og Svíþjóð segjast um 20,0% geta séð sér fyrir vatni í meira en viku, og í Litháen 40,4%. Ísland er því yfir evrópsku meðaltali í fjögurra til sjö daga úthaldi, en undir EU27 og flestum viðmiðunarlöndum þegar horft er til heillar viku eða lengur. Sé miðað við heildarúrtak lækka hlutföllin á Íslandi í 15,5% í fjóra til sjö daga og 9,7% í meira en viku.

Hversu lengi gætir þú séð fyrir þínum þörfum ef dreifing matvæla truflast?
1 dagur eða minna2–3 dagar4–7 dagarMeira en 7 dagarTek ekki afstöðu
Ísland
5,7%1 dagur eða minna 5,7%40,1%2–3 dagar 40,1%34%4–7 dagar 34%20,2%Meira en 7 dagar 20,2%0%Tek ekki afstöðu 0%
Danmörk
8,3%1 dagur eða minna 8,3%21,9%2–3 dagar 21,9%32,3%4–7 dagar 32,3%36,5%Meira en 7 dagar 36,5%0%Tek ekki afstöðu 0%
Finnland
2%1 dagur eða minna 2%23,2%2–3 dagar 23,2%35,4%4–7 dagar 35,4%39,4%Meira en 7 dagar 39,4%0%Tek ekki afstöðu 0%
Svíþjóð
2%1 dagur eða minna 2%15,2%2–3 dagar 15,2%36,4%4–7 dagar 36,4%45,5%Meira en 7 dagar 45,5%0%Tek ekki afstöðu 0%
Eistland
11,5%1 dagur eða minna 11,5%20,8%2–3 dagar 20,8%31,2%4–7 dagar 31,2%35,4%Meira en 7 dagar 35,4%0%Tek ekki afstöðu 0%
Litháen
5,1%1 dagur eða minna 5,1%20,4%2–3 dagar 20,4%27,6%4–7 dagar 27,6%45,9%Meira en 7 dagar 45,9%0%Tek ekki afstöðu 0%
Lettland
8,2%1 dagur eða minna 8,2%26,8%2–3 dagar 26,8%29,9%4–7 dagar 29,9%35,1%Meira en 7 dagar 35,1%0%Tek ekki afstöðu 0%
Holland
4%1 dagur eða minna 4%24,2%2–3 dagar 24,2%41,4%4–7 dagar 41,4%29,3%Meira en 7 dagar 29,3%0%Tek ekki afstöðu 0%
Írland
13,5%1 dagur eða minna 13,5%31,2%2–3 dagar 31,2%32,3%4–7 dagar 32,3%22,9%Meira en 7 dagar 22,9%0%Tek ekki afstöðu 0%
EU27
11,5%1 dagur eða minna 11,5%25%2–3 dagar 25%32,3%4–7 dagar 32,3%30,2%Meira en 7 dagar 30,2%0%Tek ekki afstöðu 0%
0%25%50%75%100%

Heimild: Gallup fyrir Vörðu (október–nóvember 2025) og Special Eurobarometer 547 (febrúar–mars 2024).

Gögn myndarinnar
1 dagur eða minna2–3 dagar4–7 dagarMeira en 7 dagar
Ísland5,7%40,1%34%20,2%
Danmörk8,3%21,9%32,3%36,5%
Finnland2%23,2%35,4%39,4%
Svíþjóð2%15,2%36,4%45,5%
Eistland11,5%20,8%31,2%35,4%
Litháen5,1%20,4%27,6%45,9%
Lettland8,2%26,8%29,9%35,1%
Holland4%24,2%41,4%29,3%
Írland13,5%31,2%32,3%22,9%
EU2711,5%25%32,3%30,2%

Þegar matvæladreifing truflast reynist lengra úthald takmarkað. Meðal þeirra sem tóku afstöðu telja 34% sig geta séð fyrir mat í fjóra til sjö daga og 20,2% í meira en viku, á móti 32,3% og 30,2% í EU27. Ísland er því nær evrópsku meðaltali í skemmra úthaldi, en dregst skýrt aftur úr þegar horft er til heillar viku eða lengra. Þar standa bæði hin Norðurlöndin og Eystrasaltsríkin töluvert betur. Sé miðað við heildarúrtak lækka hlutföllin enn frekar í 27,5% fyrir fjóra til sjö daga og 16,3% í meira en viku. Í flestum samanburðarlöndum haggast myndin minna, enda er hlutfall óákveðinna þar lægra. Hlutfallsleg staða Íslands verður því veikari en áður í samanburði.

Hversu lengi gætir þú séð fyrir þínum þörfum ef aðgengi að lyfjum raskast?
1 dagur eða minna2–3 dagar4–7 dagarMeira en 7 dagarTek ekki afstöðu
Ísland
5,6%1 dagur eða minna 5,6%12,5%2–3 dagar 12,5%14,9%4–7 dagar 14,9%67%Meira en 7 dagar 67%0%Tek ekki afstöðu 0%
Danmörk
4,4%1 dagur eða minna 4,4%3,3%2–3 dagar 3,3%5,5%4–7 dagar 5,5%53,8%Meira en 7 dagar 53,8%0%Tek ekki afstöðu 0%
Finnland
3,3%1 dagur eða minna 3,3%4,4%2–3 dagar 4,4%11,1%4–7 dagar 11,1%52,2%Meira en 7 dagar 52,2%0%Tek ekki afstöðu 0%
Svíþjóð
2,2%1 dagur eða minna 2,2%4,5%2–3 dagar 4,5%5,6%4–7 dagar 5,6%43,8%Meira en 7 dagar 43,8%0%Tek ekki afstöðu 0%
Eistland
10%1 dagur eða minna 10%10%2–3 dagar 10%12,2%4–7 dagar 12,2%47,8%Meira en 7 dagar 47,8%0%Tek ekki afstöðu 0%
Litháen
4,3%1 dagur eða minna 4,3%7,4%2–3 dagar 7,4%9,6%4–7 dagar 9,6%53,2%Meira en 7 dagar 53,2%0%Tek ekki afstöðu 0%
Lettland
13,2%1 dagur eða minna 13,2%14,3%2–3 dagar 14,3%14,3%4–7 dagar 14,3%35,2%Meira en 7 dagar 35,2%0%Tek ekki afstöðu 0%
Holland
6,7%1 dagur eða minna 6,7%4,4%2–3 dagar 4,4%6,7%4–7 dagar 6,7%45,6%Meira en 7 dagar 45,6%0%Tek ekki afstöðu 0%
Írland
20%1 dagur eða minna 20%24,4%2–3 dagar 24,4%16,7%4–7 dagar 16,7%25,6%Meira en 7 dagar 25,6%0%Tek ekki afstöðu 0%
EU27
14,8%1 dagur eða minna 14,8%15,9%2–3 dagar 15,9%17%4–7 dagar 17%38,6%Meira en 7 dagar 38,6%0%Tek ekki afstöðu 0%
0%25%50%75%100%

Heimild: Gallup fyrir Vörðu (október–nóvember 2025) og Special Eurobarometer 547 (febrúar–mars 2024).

Gögn myndarinnar
1 dagur eða minna2–3 dagar4–7 dagarMeira en 7 dagar
Ísland5,6%12,5%14,9%67%
Danmörk4,4%3,3%5,5%53,8%
Finnland3,3%4,4%11,1%52,2%
Svíþjóð2,2%4,5%5,6%43,8%
Eistland10%10%12,2%47,8%
Litháen4,3%7,4%9,6%53,2%
Lettland13,2%14,3%14,3%35,2%
Holland6,7%4,4%6,7%45,6%
Írland20%24,4%16,7%25,6%
EU2714,8%15,9%17%38,6%

Lyf koma betur út en vatn og matur þegar horft er til lengra úthalds. Meðal þeirra sem tóku afstöðu telja 81,9% á Íslandi sig geta séð fyrir lyfjum í að minnsta kosti fjóra daga ef aðgengi raskast, þar af 67,0% í meira en viku, en 64,4% og 44,7% í EU27. Í viku úthaldi er Ísland þó undir öðrum Norðurlöndum og lítillega undir Litháen. Í heildarúrtaki lækka hlutföllin í 59,9% fyrir að minnsta kosti fjóra daga og 49,0% fyrir meira en viku. Á Íslandi er hlutfallið þó enn mjög hátt: hæst þegar horft er til að minnsta kosti fjögurra daga úthalds og til jafns við Danmörku, en rétt undir Litháen, þegar horft er til meira en viku.

Verkefnið er að færa viðmiðin úr „þetta reddast“ yfir í lengri viðbúnað. Niðurstaða íslensku könnunarinnar er betri í tveggja til þriggja daga flokknum en í samanburðarlöndunum, en þegar gætt er að viðbúnaði til viku eða lengur er niðurstaðan töluvert lakari. Aðeins 12,2% telja sig geta séð fyrir vatni í meira en viku og 20,0% fyrir mat; þar er íslenska hlutfallið lægra en bæði í EU27 og á hinum Norðurlöndunum, þótt rafmagn komi betur út. Þetta bendir til að margir svari með skemmri truflanir í huga. Næsta skref er því að færa viðmiðunina í fjóra til sjö daga og lengur, meðal annars með skýrari viðmiðum um þann lágmarksviðbúnað sem heimili þurfa til að standast lengri truflanir.

Viðhorf til viðbúnaðar

Viðhorf til viðbúnaðar
ÍslandDanmörkFinnlandSvíþjóðEistlandLitháenLettlandHollandÍrlandEU27
Undirbúningur fyrir hamfarir eða neyðarástand hjálpar mér að takast betur á við aðstæður81,4%91,6%94,7%97%83%78,9%78,9%92,9%92,4%79,8%
Ég tel mig vel undirbúna/-inn fyrir hamfarir eða neyð í minni heimabyggð37,1%47,9%59,8%55%37,6%37,9%32,3%32%43,6%39,4%
Ég hef ekki nægan tíma eða fjárhagslegt svigrúm til að undirbúa mig fyrir hamfarir/neyðarástand35,3%25,3%15,5%18,2%41,1%43,5%43,8%15,2%50%41,9%
Það er auðvelt að finna upplýsingar um hvernig á að undirbúa sig frá opinberum stjórnvöldum og viðbragðsaðilum72,3%65,1%89,2%92,7%61,9%68,2%59,5%80,4%62,5%57,1%
Ég þarf meiri upplýsingar til að geta undirbúið mig fyrir hamfarir eða neyðarástand55,3%57,4%48,5%43,4%57,6%67%57,6%48%74,2%68,4%
Ég veit hvernig almannavarnir láta mig vita ef það verða hamfarir73,6%76%83,5%77,8%57%82,5%63,4%88,9%58,1%60%
Ég veit hvað ég á að gera ef hamfarir eiga sér stað60,8%57,9%73,2%71,7%52,7%57,7%54,8%58,6%53,2%48,4%
Vinnuveitandi minn eða skóli hvetur mig til að þjálfa mig eða undirbúa mig fyrir hamfarir eða neyðarástand15,7%20,7%39,5%32,2%32,1%34,9%27,5%18,2%37,2%29,4%
Viðbragðsaðilar eða stjórnvöld hvetja mig til að undirbúa mig fyrir hamfarir eða neyðarástand57,2%24,7%52,7%54,3%41,4%52,2%32,2%16%41,8%35,5%

Heimild: Gallup fyrir Vörðu (október–nóvember 2025) og Special Eurobarometer 547 (febrúar–mars 2024). Hlutfall sammála (mjög + frekar).

Gögn myndarinnar
ÍslandDanmörkFinnlandSvíþjóðEistlandLitháenLettlandHollandÍrlandEU27
Undirbúningur fyrir hamfarir eða neyðarástand hjálpar mér að takast betur á við aðstæður81,4%91,6%94,7%97%83%78,9%78,9%92,9%92,4%79,8%
Ég tel mig vel undirbúna/-inn fyrir hamfarir eða neyð í minni heimabyggð37,1%47,9%59,8%55%37,6%37,9%32,3%32%43,6%39,4%
Ég hef ekki nægan tíma eða fjárhagslegt svigrúm til að undirbúa mig fyrir hamfarir/neyðarástand35,3%25,3%15,5%18,2%41,1%43,5%43,8%15,2%50%41,9%
Það er auðvelt að finna upplýsingar um hvernig á að undirbúa sig frá opinberum stjórnvöldum og viðbragðsaðilum72,3%65,1%89,2%92,7%61,9%68,2%59,5%80,4%62,5%57,1%
Ég þarf meiri upplýsingar til að geta undirbúið mig fyrir hamfarir eða neyðarástand55,3%57,4%48,5%43,4%57,6%67%57,6%48%74,2%68,4%
Ég veit hvernig almannavarnir láta mig vita ef það verða hamfarir73,6%76%83,5%77,8%57%82,5%63,4%88,9%58,1%60%
Ég veit hvað ég á að gera ef hamfarir eiga sér stað60,8%57,9%73,2%71,7%52,7%57,7%54,8%58,6%53,2%48,4%
Vinnuveitandi minn eða skóli hvetur mig til að þjálfa mig eða undirbúa mig fyrir hamfarir eða neyðarástand15,7%20,7%39,5%32,2%32,1%34,9%27,5%18,2%37,2%29,4%
Viðbragðsaðilar eða stjórnvöld hvetja mig til að undirbúa mig fyrir hamfarir eða neyðarástand57,2%24,7%52,7%54,3%41,4%52,2%32,2%16%41,8%35,5%

Afstaða til undirbúnings er fremur jákvæð. Af þeim sem tóku afstöðu telja 81,4% að undirbúningur hjálpi fólki að takast betur á við aðstæður, 79,8% í EU27, en hæst er hlutfallið í Svíþjóð, 97%. Á sama tíma segjast 35,3% svarenda á Íslandi skorta tíma eða fjárhagslega getu til undirbúnings, sem er lægra en í EU27 (41,9%) en hærra en á öðrum Norðurlöndum, þar sem hlutfallið er 15,6–25,8%.

Sjálfsmat á eigin undirbúningi er hins vegar lágt. Aðeins 37,1% á Íslandi telja sig vel undirbúin fyrir hamfarir eða neyð í heimabyggð, en 39,4% í EU27; í Danmörku er hlutfallið 47,9%, í Svíþjóð 55,0% og í Finnlandi 59,8%. Sé miðað við heildarúrtak lækkar Ísland hins vegar í 27,5% og þá verður munurinn töluvert meiri í samanburði við EU27 og hin Norðurlöndin, þar sem hlutföllin breytast minna.

Þegar kemur að því að finna upplýsingar og vita hvað eigi að gera er hlutfallið á Íslandi vel yfir EU27, en undir Finnlandi og Svíþjóð. 72,3% telja auðvelt að finna upplýsingar frá stjórnvöldum og viðbragðsaðilum um hvernig eigi að undirbúa sig, á móti 57,1% í EU27, 89,2% í Finnlandi og 92,7% í Svíþjóð. Útkoman er svipuð þegar spurt er hvort fólk viti hvað það eigi að gera ef hamfarir verða: 60,8% á Íslandi og 48,4% í EU27, en 71,7% í Svíþjóð og 73,2% í Finnlandi. Í ljósi þess hve náttúruvá er algeng á Íslandi eru þetta fremur lág hlutföll.

Vinnustaðir og skólar virðast gegna litlu hlutverki í að hvetja fólk til undirbúnings. Meðal þeirra sem taka afstöðu telja 15,7% á Íslandi að vinnuveitandi eða skóli hvetji til undirbúnings, á móti 29,4% í EU27; á öðrum Norðurlöndum er hlutfallið 20,7–39,5% og í Eystrasaltsríkjunum 27,5–34,9%. Í heildarúrtaki telja aðeins 9,4% á Íslandi að vinnuveitandi eða skóli hvetji til undirbúnings, en 25,0% í EU27.

Hvatning frá yfirvöldum og viðbragðsaðilum kemur betur út. 57,2% svarenda á Íslandi eru sammála því að viðbragðsaðilar eða stjórnvöld hvetji til undirbúnings, á móti 35,5% í EU27. Meðal þeirra sem taka afstöðu er Ísland hér ofar en samanburðarlöndin, þar á meðal Svíþjóð (54,3%) og Finnland (52,7%). Sé miðað við heildarúrtak minnkar munurinn þó nokkuð, því Finnland, Svíþjóð og Litháen mælast þá öll ofar en Ísland.

Þörfin fyrir frekari upplýsingar er umtalsverð. Meðal þeirra sem tóku afstöðu segjast 55,3% á Íslandi þurfa meiri upplýsingar til að geta undirbúið sig, en 68,4% í EU27. Ísland er hér á svipuðu róli og Danmörk (57,4%), en hlutfallið er hærra en í Finnlandi (48,5%) og Svíþjóð (43,4%). Í Eystrasaltsríkjunum er hlutfallið hærra, á bilinu 57,6–67,0%.

Heildarmyndin er sú að undirbúningur nýtur stuðnings, en hefur enn ekki fest sig í sessi í daglegu lífi landsmanna. Sjálfsmat svarenda á eigin undirbúningi er lágt og Ísland stendur þar verr en helstu viðmiðunarlönd. Hátt hlutfall óvissusvara bendir jafnframt til þess að mörgum sé enn óljóst hvar eigi að byrja og hvað teljist nægjanlegur undirbúningur. Viðbragðsaðilar ná til fólks, en nærsamfélagið virðist gegna takmörkuðu hlutverki. Áherslan ætti því síður að vera á að sannfæra fólk um gildi undirbúnings heldur á að auðvelda næstu skref þannig að almennur stuðningur við undirbúning skili sér í breyttum venjum og auknum viðbúnaði.

Nærsamfélag og viðnámsþróttur

Fyrstu dagana eftir hamfarir, hversu mikið myndir þú reiða þig á eftirfarandi aðila til að hjálpa þér að takast á við aðstæðurnar?
ÍslandDanmörkFinnlandSvíþjóðEistlandLitháenLettlandHollandÍrlandEU27
Fjölskyldu og vini84%89,7%91,8%95%92,9%94,9%92,9%90%96%90,8%
Nágranna39,9%84,5%75,5%74,2%75%70,5%58,8%82,7%89,9%75,3%
Frjáls félagasamtök46,5%74,2%55,2%68,8%48,8%70,9%46,4%93,3%74,7%77,5%
Viðbragðsaðila/sveitarfélög76,9%91,7%84,5%84,8%82,8%87,4%73,1%94,9%88,9%83,5%
Opinbera þjónustu57,8%86,2%77,1%77,6%56,3%54,9%53,3%83%83,2%71,3%
Vinnustað/skóla25,6%40,7%40,5%46,5%42,9%43%38,3%40,2%55,2%41,4%
Einkafyrirtæki54,8%62,2%72,6%53,6%49,4%55,2%38,6%57,8%79,1%55,6%

Heimild: Gallup fyrir Vörðu (október–nóvember 2025) og Special Eurobarometer 547 (febrúar–mars 2024). Hlutfall sem myndi reiða sig mjög eða nokkuð mikið.

Gögn myndarinnar
ÍslandDanmörkFinnlandSvíþjóðEistlandLitháenLettlandHollandÍrlandEU27
Fjölskyldu og vini84%89,7%91,8%95%92,9%94,9%92,9%90%96%90,8%
Nágranna39,9%84,5%75,5%74,2%75%70,5%58,8%82,7%89,9%75,3%
Frjáls félagasamtök46,5%74,2%55,2%68,8%48,8%70,9%46,4%93,3%74,7%77,5%
Viðbragðsaðila/sveitarfélög76,9%91,7%84,5%84,8%82,8%87,4%73,1%94,9%88,9%83,5%
Opinbera þjónustu57,8%86,2%77,1%77,6%56,3%54,9%53,3%83%83,2%71,3%
Vinnustað/skóla25,6%40,7%40,5%46,5%42,9%43%38,3%40,2%55,2%41,4%
Einkafyrirtæki54,8%62,2%72,6%53,6%49,4%55,2%38,6%57,8%79,1%55,6%

Íslendingar treysta fyrst og fremst á fjölskyldu og vini. Meðal þeirra sem tóku afstöðu segjast 84,0% á Íslandi myndu reiða sig mjög eða nokkuð mikið á fjölskyldu og vini fyrstu dagana eftir hamfarir, en í EU27 er hlutfallið 90,8%. Hlutfallið á Íslandi er hér lægra en á Norðurlöndunum, þar sem hlutfallið er 89,7–95,0%, og einnig lægra en í Eystrasaltsríkjunum.

Utan fjölskyldu og vina er stoðnetið veikara. Aðeins 39,9% myndu reiða sig á nágranna, en 75,3% í EU27; á Norðurlöndunum er hlutfallið 74,2–84,5% og í Eystrasaltsríkjunum 58,8–75,0%. Traust á frjálsum félagasamtökum mælist einnig lágt, 46,5% á Íslandi miðað við 77,5% í EU27, 55,2–74,2% á Norðurlöndunum og 46,4–70,9% í Eystrasaltsríkjunum. Vinnustaður og skóli standa verst, 25,6% á Íslandi miðað við 41,4% í EU27; 40,5–46,5% á Norðurlöndunum og 38,3–43,0% í Eystrasaltsríkjunum.

Traust til viðbragðsaðila og yfirvalda til að bregðast rétt við (hlutfall sem segja mjög/frekar mikið)
Ísland
94,6%
Danmörk
90,9%
Finnland
99%
Svíþjóð
90,9%
Eistland
82,1%
Litháen
87,6%
Lettland
79,2%
Holland
93,9%
Írland
95,9%
EU27
86,7%
0%25%50%75%100%

Heimild: Gallup fyrir Vörðu (október–nóvember 2025) og Special Eurobarometer 547 (febrúar–mars 2024).

Gögn myndarinnar
Traust alls
Ísland94,6%
Danmörk90,9%
Finnland99%
Svíþjóð90,9%
Eistland82,1%
Litháen87,6%
Lettland79,2%
Holland93,9%
Írland95,9%
EU2786,7%

Svarendur gera fremur ráð fyrir stuðningi frá viðbragðsaðilum en frá sveitarfélögum og annarri opinberri þjónustu. Meðal þeirra sem taka afstöðu segjast 76,9% á Íslandi myndu reiða sig á viðbragðsaðila, en 83,5% í EU27, 84,5–91,7% á Norðurlöndunum og 73,1–87,4% í Eystrasaltsríkjunum. Traust á sveitarfélögum og opinberri þjónustu mælist lægra, 57,9% á Íslandi, 71,3% í EU27, 77,1–86,2% á Norðurlöndunum og 53,3–56,3% í Eystrasaltsríkjunum. Hins vegar er traust til viðbragðsaðila og yfirvalda til að bregðast rétt við í hamförum eða neyðarástandi hátt, 94,6% miðað við 86,7% í EU27. Minni væntingar um stuðning fyrstu dagana virðast fremur endurspegla óljósar væntingar um hvenær og með hvaða hætti stuðningur berst heldur en vantraust.

Fyrir utan fjölskyldu og vini koma einkafyrirtæki hlutfallslega best út. Meðal þeirra sem tóku afstöðu segjast 54,8% á Íslandi myndu reiða sig á þau fyrstu dagana, nánast hið sama og í EU27, 55,6%. Hér er hlutfall á Íslandi þó lægra en í Finnlandi (72,6%) og Danmörku (62,2%), en á svipuðu róli og Svíþjóð (53,6%) og Litháen (55,2%).

Veikleikinn virðist því einkum vera á millistiginu milli nánasta stuðningsnetsins og opinberra viðbragðskerfa. Skýr viðmið, t.d. um hvað ber að gera fyrstu 72 klukkustundirnar, gætu styrkt þetta millistig: hvað heimilin gera sjálf, hvenær nánasta stuðningsnetið tekur við og hvernig nágrannar, félagasamtök, sveitarfélög, fyrirtæki, vinnustaðir og skólar geta komið til aðstoðar áður en opinber kerfi ná fullum dampi.

Niðurstöður

Í heild bendir greiningin til þess að jarðvegurinn á Íslandi sé frjór fyrir frekari vitundarvakningu og viðbúnað almennings. Traust á upplýsingum frá stjórnvöldum og almannavörnum er hátt og 81,4% þeirra sem taka afstöðu telja að undirbúningur fyrir hamfarir eða neyðarástand af einhverju tagi hjálpi þegar á reynir. Margir telja sig einnig vel upplýsta um hættu á hamförum í sinni heimabyggð. Einfaldur búnaður er víða til staðar, og hlutfallslega margir telja sig geta staðið af sér alvarlegar truflanir á grunnþjónustu í tvo til þrjá daga.

Um leið er sjálfsmat á eigin undirbúningi fremur lágt og hættumatið nokkuð þröngt. Aðeins 37,1% telja sig vel undirbúin fyrir hamfarir eða neyð í heimabyggð, og í heildarúrtaki lækkar hlutfallið í 27,5%. Íslenskir svarendur horfa einkum til náttúruhamfara og alvarlegrar röskunar á mikilvægum innviðum, en pólitískar og öryggistengdar ógnir eru mun fjarlægari í hugum fólks hér en á hinum Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum.

Veikleikarnir á Íslandi birtast skýrast þar sem viðbúnaður krefst meiri fyrirhyggju, skipulags og samráðs. Birgðir af mat og vatni virðast takmarkaðar, nærsamfélagið kemur lítið við sögu í miðlun upplýsinga og undirbúningi, og mun færri hér en í helstu samanburðarlöndum gera ráð fyrir að hafa það sem þarf til fjögurra daga eða lengur. Niðurstaðan er því ekki sú að almenning skorti vilja til að efla sinn viðbúnað, heldur að viðbúnaðurinn veikist eftir því sem hann krefst meiri fyrirhyggju, skýrari viðmiða og sterkari tengsla milli heimila, nærsamfélags og opinberra kerfa.

Samfélagslegur viðnámsþróttur

Þetta er sá vandi sem norræn stefnumótun hefur í vaxandi mæli reynt að mæta: samfélagslegur viðnámsþróttur veikist þegar ábyrgð og boðleiðir eru óskýrar og úthald þá á reiki. Í norrænni nálgun gagnvart samfélagslegu öryggi er viðbúnaður því síður metinn út frá stökum ráðum eða gátlistum heldur hvort hlutverk, boðleiðir og verkferlar séu skýr áður en á reynir. Þá er ekki aðeins haft í huga hvað sé til á heimilum, heldur hvort þau geti verið sjálfum sér nóg um hríð, hvort upplýsingar berist eftir fleiri en einni leið og hvort sveitarfélög, vinnustaðir, skólar, fyrirtæki og félagasamtök þekki sín hlutverk — og hafi æft þau.

Þessa grunnhugsun er að finna í stefnu finnskra stjórnvalda Yhteiskunnan turvallisuusstrategia, sænsku stjórnartillögunni Totalförsvaret 2025–2030 og bæklingnum Om krisen eller kriget kommer, norsku hvítbókinni Meld. St. 9 (2024–2025) Totalberedskapsmeldingen: Forberedt på kriser og krig, og danska áhættumatinu Nationalt Risikobillede 2025 ásamt leiðbeiningabæklingnum Forberedt på kriser sem kom út árið 2004. Þótt áherslur séu ekki alls staðar þær sömu er meginhugsunin sú sama: skýr lágmarksviðmið um sjálfsbjargargetu almennings, fleiri en ein leið til að miðla upplýsingum, reglulegar æfingar og verkaskipting sem stenst þegar á reynir.

Tillögur

1. Festa mælingar og samanburð í sessi.

Gallup-könnunin sem hér liggur til grundvallar er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi svo stefnumótun á þessu sviði hefur hingað til byggt á takmörkuðum upplýsingum um vitund og viðbúnað almennings. Við höfum því dregið ályktanir um stöðuna án þess að hafa haldbæran mælikvarða til að reyna sannleiksgildi þeirra. Slíkt er varasamt því það getur bæði dregið athyglina frá raunverulegum veikleikum og gefið bjagaða mynd af ætluðum styrkleikum.

Niðurstöður könnunarinnar benda til að Ísland standi víða höllum fæti gagnvart helstu samanburðarlöndum. Því þarf að festa reglulegar mælingar í sessi, með sambærilegum spurningum milli ára, svo unnt sé að fylgjast með þróun, meta árangur og draga stjórnvöld til ábyrgðar.

Á hinum Norðurlöndunum er þetta orðið hluti af verklaginu, þótt fyrirkomulagið sé ólíkt eftir löndum. Enn vantar samræmdar norrænar mælingar í þessum efnum. Þarna gætu íslensk stjórnvöld tekið frumkvæði, til dæmis á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar, þar sem samfélagslegt öryggi er ofarlega á dagskrá. Einnig væri rétt að athuga hvort sambærilegur samanburður á vitund og viðbúnaði almennings gæti nýst í þeirri stefnumótunarvinnu sem nú fer fram á vettvangi Joint Expeditionary Force-samstarfsins.

2. Setja skýr viðmið um sjö daga lágmarksviðbúnað.

Lagt er til að sett verði fram skýr, einföld og opinber viðmið um lágmarksviðbúnað almennings. Niðurstöðurnar hér benda ekki til þess að fólk sé afhuga undirbúningi — síður en svo — heldur að mörgum sé óljóst hvað telst nægilegt, hvar eigi að byrja og hversu langt eigi að ganga. Það sést bæði í lágu sjálfsmati á eigin undirbúningi, í takmörkuðum áætluðum birgðum af mat og vatni og í því hve viðbúnaðurinn er slakur þegar truflanir dragast á langinn. Hér dugar ekki almenn hvatning frá yfirvöldum heldur þarf skýr og auðskilin viðmið sem fólk getur auðveldlega fylgt.

Þetta er sú leið sem hin Norðurlöndin hafa farið. Í Finnlandi er 72 tíma ramminn mjög sýnilegur í almennri fræðslu og umræðu. Í Danmörku er miðað við að almenningur geti spjarað sig í þrjá sólarhringa. Í Noregi er nú miðað við eina viku, og í Svíþjóð er sömuleiðis lagt upp með að fólk geti komist af í að minnsta kosti viku. Á Íslandi bendir margt til þess að þriggja daga rammi væri of stuttur sem meginviðmið, þar sem margir telja sig nú þegar geta haldið út í tvo til þrjá daga þótt aðrir mælikvarðar sýni skýra veikleika. Sjö daga rammi væri því gagnlegra viðmið fyrir þann viðbúnað sem enn þarf að byggja upp. Á Íslandi þarf því einföld viðmið um lágmarksbirgðir, skýrar leiðbeiningar um fyrstu viðbrögð og sameiginlegan skilning á því hvað almenningur á að geta gert sjálfur áður en aðstoð frá yfirvöldum berst og viðbragðskerfi ná fullum dampi.

3. Virkja nærsamfélagið og efla samheldni.

Virkja þarf nærsamfélagið betur og styrkja þau tengsl sem fólk reiðir sig á þegar á reynir. Niðurstöður könnunarinnar benda til að hér sé talsvert verk að vinna. Vinnustaðir og skólar virðast gegna litlu hlutverki í að hvetja fólk til undirbúnings. Sama sést í upplýsingamiðluninni: fjölskylda og vinir eru sjaldan nefnd sem upplýsingagátt, og vinnustaður eða skóli nánast aldrei. Fáir hafa jafnframt sammælst um samskiptaleiðir í neyð eða rætt sameiginleg viðbrögð við nágranna. Þetta skiptir máli, því þegar spurt er á hvern fólk muni reiða sig fyrstu dagana eftir áfall er svarið að fólk hugsar fyrst og fremst til síns nánasta umhverfis.

Norræn stefnumótun hefur í vaxandi mæli beinst að því að styrkja þetta millistig milli heimila og hins opinbera. Hugsunin er ekki að heimilin beri ábyrgðina ein og ríkið taki síðan við þegar allt annað bregst, heldur að viðnámsþróttur samfélagsins verði til í samspili heimila, sveitarfélaga, vinnustaða, skóla, félagasamtaka og opinberra aðila. Fyrir Ísland þýðir það að þessir farvegir þurfa að gegna stærra og skýrara hlutverki en þeir gera nú, með reglulegri fræðslu, einföldu samráði og æfingum sem skýra hlutverk fólks þegar á reynir. Í þessu mætti finna mörg tækifæri til úrbóta sem eru tiltölulega ódýr, áhrifarík og vel framkvæmanleg.

4. Byggja upp menningu vitundar og viðbúnaðar.

Nauðsynlegt er að styrkja menningu vitundar og viðbúnaðar meðal Íslendinga, það er að gera hlutina vel: að leiðbeiningar og viðmið komi reglulega fram með skýrum hætti, eftir traustum leiðum og þannig að fólk geti auðveldlega tekið þetta til sín og brugðist við. Hér er því síður um að ræða nýtt átaksverkefni heldur er þörf á meiri reglufestu.

Skilningur á gildi undirbúnings er mikill og fyrstu skref hafa víða verið tekin. Veikleikarnir birtast hins vegar í skorti á fyrirhyggju, samráði og endurtekningu. Ekki nægir að miðla upplýsingum aðeins þegar eitthvað gerist heldur þurfa þær að verða að venju, til dæmis með meira svigrúmi fyrir stutt og regluleg samtöl í skólum, á vinnustöðum, í hverfum og innan heimila. Þar byrjar slík menning að taka á sig mynd.

Þar er þó ástæða til bjartsýni. Við erum ekki að byrja frá grunni. Hér er töluvert traust, drjúg reynsla af áföllum og samfélag þar sem stutt er á milli fólks og stofnana. Þetta eru styrkleikar sem má nýta af meiri festu. Takist það geta vitund og viðbúnaður orðið eðlilegur hluti af daglegu lífi, ekki bundinn við augnablik áfalla heldur sjálfsagður þáttur í því hvernig samfélagið býr sig undir það sem kann að koma. Slíkt eflir bæði sjálfsbjargargetu almennings og samfélagslegan viðnámsþrótt.

Gallup-könnunin var lögð fyrir 30. október til 14. nóvember 2025 og náði til 2.070 manna úr Viðhorfahópi Gallup, 18 ára og eldri. Svör bárust frá 881 þátttakanda. Niðurstöður eru bornar saman við Special Eurobarometer 547 sem framkvæmd var í febrúar og mars 2024 í öllum aðildarríkjum ESB. Könnunin er sú fyrsta sinnar tegundar á Íslandi og er ætlað að leggja grunn að reglubundnu eftirliti með viðbúnaði almennings.

Allar spurningar má senda á hallo@varda.org

Heimildir

  1. Í könnuninni er notað orðið neyðarþjónustur, í samræmi við orðalag Eurobarometer-könnunarinnar (emergency services), og í spurningunum er það skýrt með dæmum, t.d. lögreglu, slökkviliði, bráðaþjónustu og almannavörnum. Hér er þó notað orðið viðbragðsaðilar, sem er algengara í íslenskri umræðu. Efnislega er um sömu aðila að ræða.
  2. Eydal, G. B., & Hergeirsdóttir, R. (2026). How to prepare for the impossible: The level of crisis preparedness among households in Iceland. Í T. O. Sigurjonsson o.fl. (ritstj.), Crisis in Context. Springer Nature Switzerland AG. https://doi.org/10.1007/978-3-032-02657-6_2