Umsögn um stefnu í varnar- og öryggismálum

Umsögn til utanríkismálanefndar Alþingis um 215. mál, með óháðri úttekt IISS á stefnunni

Höfundar Kristinn Árni L. Hróbjartsson Send til Utanríkismálanefnd Alþingis · Málið á vef Alþingis ↗ Dagsett Flokkur Umsögn · Þjóðaröryggi
Vitna í þessa útgáfu
Tilvísun í heimildaskrá (APA)
Kristinn Árni L. Hróbjartsson. (2025). Umsögn um 215. mál, þingsályktunartillaga um stefnu í öryggis- og varnarmálum. Varða.
Tilvísun í texta
(Kristinn Árni L. Hróbjartsson, 2025)

Varða sendi utanríkismálanefnd umsögn um þingsályktunartillögu um stefnu í varnar- og öryggismálum og lét fylgja óháða úttekt International Institute for Strategic Studies (IISS) á stefnunni. Að mati IISS er stefnan víðtæk og metnaðarfull en framkvæmd hennar verður helsta áskorunin.

Varða – vettvangur um viðnámsþrótt þakkar fyrir tækifærið að veita umsögn um nýja stefnu Íslands í öryggis- og varnarmálum.

Í byrjun hausts óskaði Varða eftir því við bresku hugveituna International Institute for Strategic Studies (IISS) að hún legði mat á nýja öryggis- og varnarmálastefnu Íslands. Markmiðið var að greina hvernig stefnan geti verið aflvaki heildstæðrar nálgunar í öryggis- og varnarmálum á Íslandi, byggðri á norrænum hefðum um náið samstarf stjórnvalda, fyrirtækja og samfélags.

Við úrvinnslu skýrslunnar studdist IISS við opinber gögn, fræðigreinar og viðtöl við lykilaðila í íslenskum stjórnmálum, stjórnsýslu og fræðasamfélagi. Varða aðstoðaði við framkvæmd verkefnisins en IISS ber alla ábyrgð á efni og niðurstöðum greiningarinnar.

Í greiningu sinni bendir IISS á að stefna stjórnvalda sé bæði víðtæk og metnaðarfull, en að framkvæmd hennar verði helsta áskorunin. Í ljósi reynslu nágrannaríkja okkar dregur IISS sérstaklega fram atriði sem gætu verið gagnleg fyrir stjórnvöld að setja í forgang svo frekar megi efla samstarf stjórnvalda, atvinnulífs og samfélags. Skýrslan, sem fylgir þessu bréfi, gerir ítarlega grein fyrir þessum atriðum.

Greining IISS dregur ítrekað fram að hið mikla traust sem ríkir á Íslandi og vilji til samstarfs séu sterkir eiginleikar sem við getum byggt á í innleiðingu nýrrar stefnu. Varða tekur undir það mat og óskar þess að hið almenna traust sem hefur einkennt mótun nýrrar stefnu nái að festa sig í sessi sem hluti af daglegu starfi stjórnvalda, fyrirtækja og samfélagsins við innleiðingu hennar. Slík sameiginleg menning í öryggis- og varnarmálum er öflug uppspretta viðnámsþróttar.

Varða vonar að þau sjónarmið sem koma fram hér í greiningu IISS nýtist nefndinni vel og óskar henni velfarnaðar í sínum áframhaldandi störfum.

Greining · nóvember 2025Öryggis- og varnarmálastefna ÍslandsÓháð úttekt IISS á stefnu stjórnvaldaLesa →