Þegar á reynir: Hamfaravitund og viðbúnaður íslensks almennings
Greining Vörðu á hamfaravitund og viðbúnaði íslensks almennings, byggð á Gallup-könnun og samanburði við Eurobarometer
Vitna í þessa útgáfu
Fyrsta heildstæða könnunin á hamfaravitund og -viðbúnaði íslensks almennings leiðir í ljós að traust er mikið og viðhorf jákvæð, en raunverulegur viðbúnaður er veikur, sérstaklega þegar truflanir vara lengur en í tvo til þrjá daga.
Varða lét framkvæma Gallup-könnun í október og nóvember 2025 á vitund almennings á Íslandi um hamfarir og viðbúnaði við þeim. Þetta er fyrsta ítarlega könnun sinnar tegundar á Íslandi og byggir á Special Eurobarometer 547 um sama efni. Við túlkun á niðurstöðum þessara tveggja kannana ber að hafa í huga að rúmt eitt og hálft ár leið á milli evrópsku og íslensku könnunarinnar.
Jarðvegurinn er frjór. Á Íslandi er traust til viðbragðsaðila1 og stjórnvalda til að bregðast rétt við hamförum eða neyðarástandi afar hátt (94,6%) og langflestir telja undirbúning hjálpa þegar á reynir (81,4%). Þá er einfaldur búnaður víða til staðar.
En viðbúnaðurinn veikist hratt þar sem hann krefst meiri fyrirhyggju. Aðeins 37,1% telja sig undirbúin fyrir hamfarir eða neyð í heimabyggð. Nægjanlegar birgðir af mat og vatni eru samkvæmt svörum langt undir EU27-meðaltali og þess sem er á Norðurlöndunum. Viðbúnaður sem krefst skipulags eða undirbúnings, eins og samskiptaleiðir í neyð, þekking á viðbragðsáætlunum eða samráð við nágranna, skortir að miklu leyti. Nærsamfélagið kemur lítið við sögu bæði sem stoðnet og upplýsingagátt; boðleiðir eru fáar og óburðugar.
Fjórar tillögur
Reglubundnar mælingar svo samanburður fáist. Mælingar ættu að vera reglubundnar með sambærilegum spurningum milli ára, svo unnt sé að rekja árangur aðgerða.
Setja skýr sjö daga viðmið um lágmarksviðbúnað. Gögnin benda til að almenningur sé samþykkur undirbúningi, en finnist óljóst hvað teljist nægilegt og hvar eigi að byrja. Þörf er á einföldum, opinberum viðmiðum sem auðvelt er að vinna eftir.
Virkja nærsamfélagið og efla samheldni. Vinnustaðir, skólar, félagasamtök og nágrannar gegna of litlu hlutverki og ættu að gegna stærra hlutverki með reglulegri fræðslu, samráði og æfingum.
Styrkja vitund og viðbúnað. Veikleikarnir birtast þar sem reynir á venju og endurtekningu. Viðbúnaður á að vera hluti af daglegu lífi í skólum, á vinnustöðum og heimilum, en ekki aðeins neyðarviðbrögð við einstökum atburðum.