Dr. Bjarni Már Magnússon
Meðeigandi, Polestar lögmannsstofa
Gestasérfræðingur Vörðu (Varða fellow) 2026–2027
Dr. Bjarni Már Magnússon er meðeigandi hjá Polestar Legal og veitir ráðgjöf á réttarsviðum með alþjóðlega skírskotun. Hann hefur gegnt prófessorsstöðum við Háskólann í Reykjavík og Háskólann á Bifröst, þar sem hann var jafnframt deildarforseti lagadeildar. Rannsóknir hans og skrif hafa verið nýtt af ríkjum í málum fyrir Alþjóðadómstólnum og hann hefur veitt erlendum stjórnvöldum og alþjóðlegum og innlendum aðilum ráðgjöf, auk þess að koma að lagasetningu og stefnumótun íslenskra stjórnvalda. Hann á sæti í Loftslagsráði og hefur um árabil veitt þingnefndum Alþingis sérfræðilega ráðgjöf um alþjóðleg álitaefni.