Ég býð. Þú borgar.
Kristinn Árni L. Hróbjartsson skrifar: Öryggi okkar byggir að langmestu leyti á alþjóðasamstarfi og bandalögum, og þeim fylgir kostnaður sem við þurfum að taka aukinn þátt í að greiða. Sæti við borðið kostar.
Fyrir rúmum tíu árum voru kannaðar forsendur þess að byggja upp á Íslandi björgunarmiðstöð fyrir norðurslóðir. Hún átti að verða samstarfsverkefni norðurslóðaríkja og ætlað að efla viðbragðsgetu íslenska kerfisins sem skýrsla stýrihóps um björgun og öryggi í norðurhöfum frá 2016 kallaði „ófullnægjandi“. Áfallaþol vegna stórslysa á farþegaskipum var talið „verulega ábótavant“.
Bandamenn okkar sýndu hugmyndinni áhuga og voru opnir fyrir því að hafa hér búnað og sérhæfðan mannskap hluta úr ári. En áformin sigldu í strand þegar ljóst varð að fjármagn frá Íslandi lá ekki fyrir. Bandamenn svöruðu því til að Ísland yrði fyrst og fremst að standa straum af kostnaði við slíka uppbyggingu. Ekki væri hægt að ætlast til þess að þeir legðu til búnað og mannskap og greiddu að auki fyrir hana. Tilboð okkar um að bjóða þeim þátttöku virðist hafa súrnað nokkuð þegar í ljós kom að þeir áttu líka að borga brúsann.
Ísland er frjálst og fullvalda ríki. Því fylgir sú ábyrgð að tryggja öryggi landsmanna allra og verja sjálfstæði landsins og yfirráð yfir landamærum og auðlindum. Það kostar fjármagn og krefst bæði mannafla og athygli.
Sem fámennt og herlaust ríki höfum við axlað þá ábyrgð með alþjóðasamstarfi og aðild að bandalögum. Sú leið hefur reynst vel og kostað okkur lítið. Bandamenn hafa gjarnan tekið viljann fyrir verkið. Sagan af björgunarmiðstöðinni sýnir þó að það er ekki sjálfgefið.
Á síðasta áratug hefur ógnarmyndin breyst. Auk hefðbundinna varna krefjast hættur samtímans þess að við sinnum netvörnum, birgðahaldi og aðföngum, fjarskiptum og öðrum innviðum. Netárásir á kæla og frysta í matvöruverslunum víða um Evrópu í haust náðu einnig hingað til lands. Fjarlægðin veitir okkur ekki lengur skjól, hafi hún nokkurn tíma gert það.
Bandalagsríki okkar keppast við að efla varnir sínar og viðbúnað. Ísland hefur dregist aftur úr, þótt stjórnvöld hafi hert róðurinn síðustu misseri. Upplifun margra er að ríkjandi hugsun sé sú að þar sem við lánum Bandaríkjunum (og NATO) svo hernaðarlega mikilvægt land, og vinveitt Ísland þjóni hagsmunum þeirra, þá komi þau okkur til bjargar ef eitthvað gerist. En með breyttri ógnarmynd og breyttum áherslum bandamanna okkar hafa væntingar þeirra einnig breyst. Landsvæði og vilji nægir ekki, þátttaka okkar í samstarfi verður að fylgja framlag.
Tækifærin eru til staðar. Í október kynnti Evrópusambandið nýja norðurslóðastefnu. Hún boðar sókn á svæðinu og opnar á náið samstarf við ríki utan ESB, svokallaða nágranna í norðri. ESB hyggst meðal annars vinna með aðildarríkjum og samstarfsaðilum að öryggi á hafi, vernd og lagningu sæstrengja og öruggum fjarskiptum um gervihnetti. Allt varðar þetta öryggi Íslands. Því liggur beinast við að stjórnvöld sækist markvisst eftir sem mestri þátttöku í norðurslóðasamstarfi helstu bandamanna okkar.
En sæti við borðið kostar. Við megum ekki glutra niður tækifærum til að efla öryggi okkar og norðurslóða, vegna þess að okkur skortir sjálfstraust eða vilja til að leggja okkar að mörkum. Hvorki þá né í dag gengur sú nálgun upp. Okkar öryggi byggir að langmestu leyti á alþjóðasamstarfi og bandalögum, og þeim fylgir kostnaður sem við þurfum að taka aukinn þátt í að greiða. Það er kostnaður sem við, ein ríkasta þjóð heims, getum vel borið ef við ákveðum að breyta um nálgun og hætta að sníkja okkur far.
Höfundur er meðstofnandi og forstöðumaður Vörðu, hugveitu um þjóðaröryggi.
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 21. nóvember 2026.