Varða leggur áherslu á gagnsæi, upplýsingagjöf og fjárveitingar til mikilvægra verkefna í umsögn um fjárlög 2027
Varða hefur sent fjárlaganefnd Alþingis umsögn um fjárlagafrumvarp 2027 með sjö tillögum. Við köllum eftir skýrri sundurliðun varnartengdra útgjalda, kostnaðarmetinni langtímaáætlun og fjármagni til fjögurra verkefna sem þola ekki bið.
Á næstu árum munu útgjöld Íslands til öryggis- og varnarmála aukast um tugi milljarða króna. Aukning af þeirri stærðargráðu kallar á skýra mynd af því í hvað peningarnir fara. Þess vegna sendi Varða fjárlaganefnd Alþingis umsögn um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027 hinn 7. október, með sjö tillögum.
Ísland hefur skuldbundið sig til að verja 1,5% af vergri landsframleiðslu til varnartengdra verkefna fyrir árið 2035, sem samsvarar um 77 milljörðum króna á ári. Enn liggur þó ekki fyrir hvaða útgjöld teljast til málaflokksins. Í gögnum sem ráðuneytin hafa lagt fyrir fjárlaganefnd eru nefndar tölur á bilinu 10–49 milljarðar króna. Á meðan bilið er svo breitt er erfitt að meta hvort Ísland sé á réttri leið að markmiðinu.
Gagnsæi og upplýsingagjöf er lykilforsenda
Þrjár tillagnanna snúa því að gagnsæi og upplýsingagjöf. Varða leggur til að fyrir 2. umræðu liggi fyrir hvaða fjárveitingar frumvarpsins teljast til öryggis- og varnarmála og á hvaða forsendum. Þá ætti árlegt yfirlit yfir öryggis- og varnarútgjöld hins opinbera framvegis að fylgja fjárlögum, líkt og tíðkast á hinum Norðurlöndunum, og kostnaðarmetin langtímaáætlun að liggja fyrir við gerð næstu fjármálaáætlunar.
Sú áætlun þarf að okkar mati að byggja á opinberu áhættumati. Ólíkt nágrannaríkjunum á Norðurlöndum hefur Ísland ekki birt sérstakt opinbert ógnarmat.
Fjögur verkefni sem þola ekki bið
Hinar fjórar tillögurnar snúa að verkefnum sem Varða hefur rannsakað á liðnu ári og telur að fjármagna þurfi strax:
- Öryggisbirgðir. Aðgengilegar eldsneytisbirgðir hafa í lok árs dugað fyrir um 20–50 daga notkun, en viðmiðið er 90 dagar.
- Kaupskip undir íslenskum fána. Ekkert kaupskip er skráð á Íslandi. Við leggjum til samstarf við Færeyjar um rekstur íslenskrar alþjóðlegrar skipaskrár.
- Sérsveit ríkislögreglustjóra. Vopnaútköllum fjölgaði úr 56 árið 2014 í 424 árið 2025, en sérsveitarmenn eru tíu færri en heimild er fyrir.
- Viðbrögð við drónum. Hvorki í frumvarpinu né í fjármálaáætlun er minnst á viðbrögð lögreglu við drónum við flugvelli, hafnir og aðra mikilvæga innviði.
Aukin útgjöld til öryggis- og varnarmála eru tækifæri til að styrkja viðnámsþrótt landsins, en aðeins ef ljóst er í hvað þau fara. Þess vegna setjum við gagnsæið á oddinn, ásamt þeim verkefnum sem þola ekki bið.
Umsögnina skrifuðu dr. Ragnar Hjálmarsson og Kristinn Árni L. Hróbjartsson. Hún er birt í heild hér á vefnum.
Umsögn um frumvarp til fjárlaga 2027Sjö tillögur til fjárlaganefndar Alþingis um fjárveitingar til öryggis- og varnarmálaLesa →