Varða í umfjöllun RFE/RL um heimsókn Rubios til Íslands
Radio Free Europe/Radio Liberty fjallaði um heimsókn Marcos Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Íslands og aukna áherslu Atlantshafsbandalagsins á norðurslóðir. Rætt var við Kristin Árna L. Hróbjartsson, meðstofnanda Vörðu.
Fréttamiðillinn Radio Free Europe/Radio Liberty (RFE/RL) fjallaði 7. október um heimsókn Marcos Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Íslands. Í greininni er heimsóknin sett í samhengi við aukna áherslu Atlantshafsbandalagsins á norðurslóðir vegna umsvifa Rússa og metnaðar Kína á svæðinu. Rætt var við Kristin Árna L. Hróbjartsson, meðstofnanda Vörðu.
Ísland finnur sannarlega fyrir aukinni áherslu á norðurslóðir, sem knúin er áfram af umsvifum Rússa og áframhaldandi árásarstríði.
Kristinn Árni L. Hróbjartsson við RFE/RL
Kristinn benti á rússneskt njósnaskip sem var á ferð í kringum Ísland í sumar. Hann sagði jafnframt að nýr samningur um Grænland og möguleg uppbygging fleiri herstöðva þar myndu án efa kalla á enn meira framlag frá Íslandi.