Umsögn um frumvarp til fjárlaga 2027

Sjö tillögur til fjárlaganefndar Alþingis um fjárveitingar til öryggis- og varnarmála

Höfundar Ragnar Hjálmarsson, PhD Kristinn Árni L. Hróbjartsson Send til Fjárlaganefnd Alþingis · Málið á vef Alþingis ↗ Dagsett Flokkur Umsögn · Þjóðaröryggi · Viðnámsþróttur
Vitna í þessa útgáfu
Tilvísun í heimildaskrá (APA)
Ragnar Hjálmarsson og Kristinn Árni L. Hróbjartsson. (2026). Umsögn Vörðu um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027. Varða.
Tilvísun í texta
(Ragnar Hjálmarsson og Kristinn Árni L. Hróbjartsson, 2026)

Ísland hefur skuldbundið sig til að verja 1,5% af vergri landsframleiðslu til varnartengdra verkefna fyrir árið 2035. Miðað við áætlaða landsframleiðslu ársins 2026 samsvarar það um 77 ma.kr. á ári. Framlög til öryggis- og varnarmála munu því aukast um tugi milljarða króna á næstu árum.

Tillögum Vörðu má skipta í tvo flokka. Annars vegar eru tillögur sem lúta að þeirri áætlanagerð sem fjárveitingar málaflokksins byggja á og miðlun upplýsinga um hana. Varða leggur áherslu á að stjórnvöld gefi skýr skilaboð um hvernig öryggi skuli aukið með fjárfestingum í málaflokknum og þar leikur gagnsæ og trúverðug miðlun áætlana og ógnarmats lykilhlutverk. Þessar tillögur samrýmast áherslum bæði meiri hluta og minni hluta fjárlaganefndar, sem hafa ítrekað kallað eftir heildstæðri áætlun og skýrari sundurliðun útgjalda.

Hins vegar eru tillögur sem snúa að afmörkuðum málefnum sem Varða hefur fjallað um á liðnu ári og þola að mati Vörðu enga bið.

Sjö tillögur

01

Skýrleiki fyrir 2. umræðu. Fyrir liggi hvaða fjárveitingar í frumvarpinu teljast til öryggis- og varnarmála og á hvaða forsendum.

02

Árlegt yfirlit með fjárlögum. Hafin verði vinna við sérstakt árlegt yfirlit yfir öryggis- og varnarútgjöld hins opinbera, með hliðsjón af framsetningu á hinum Norðurlöndunum.

03

Kostnaðarmetin langtímaáætlun. Heildstæð og kostnaðarmetin áætlun liggi fyrir við gerð næstu fjármálaáætlunar og verði grundvöllur framtíðarfjárveitinga til málaflokksins.

04

Öryggisbirgðir. Veittar verði fjárheimildir til að hefja uppbyggingu öryggisbirgða, með eldsneyti í forgangi.

05

Kaupskip undir íslenskum fána. Veittar verði fjárheimildir til að undirbúa samstarf við Færeyjar um rekstur íslenskrar alþjóðlegrar skipaskrár.

06

Sérsveit ríkislögreglustjóra. Fjárheimildir verði tryggðar fyrir þau stöðugildi sveitarinnar sem þegar hafa verið heimiluð.

07

Viðbrögð við drónum. Lögreglu verði tryggðar fjárheimildir til að bregðast við drónum við flugvelli, hafnir og aðra mikilvæga innviði.

Varða þakkar fyrir tækifærið til að veita umsögn um frumvarp til fjárlaga fyrir árið 2027.

Varða er sjálfstæð hugveita á sviði þjóðaröryggis. Hún vinnur að því að auka þekkingu og efla umræðu um málaflokkinn. Til þess gefur hún út greiningar og heldur viðburði bæði hérlendis og erlendis þar sem fólk úr stjórnmálum, fyrirtækjum, stjórnsýslu og fræðasamfélagi kemur saman. Í þessari umsögn er sjónum beint að fjárveitingum ríkissjóðs til öryggis- og varnarmála.

1. Skýrleiki

Í gögnum sem utanríkisráðuneyti og fjármála- og efnahagsráðuneyti lögðu fyrir fjárlaganefnd frá október 2025 til júní 2026 koma fram tölur á bilinu 10–49 ma.kr. um árleg útgjöld til öryggis- og varnarmála. Munurinn skýrist að hluta af því að tölurnar ná yfir mismunandi svið, allt frá einum málaflokki utanríkisráðuneytisins til ætlaðra útgjalda hins opinbera í heild.

Stjórnvöld viðurkenna sjálf að ekki hafi enn verið greint til fulls hvaða útgjöld teljist til öryggis- og varnarmála. Í minnisblaði ráðuneytanna til fjárlaganefndar frá 19. maí 2026 segir: „Á komandi misserum verður nauðsynlegt að greina nánar þau útgjöld sem teljast sannanlega til varnar- og öryggistengdra málefna.“

Fjárlaganefnd hefur ítrekað vakið máls á þessu, bæði meiri hluti og minni hluti hennar. Meiri hlutinn hefur lagt áherslu á að „frekari útgjöld og uppbygging þarf að byggjast á vandaðri áætlanagerð, markmiðum um öryggi þjóðarinnar og þeim skuldbindingum sem Ísland hefur undirgengist“ og að „[v]andaður undirbúningur tryggir að fjármunir nýtist sem best“ (þskj. 450/157).

Í nefndaráliti 3. minni hluta segir að „hvorki [sé] hægt að greina í frumvarpinu né svörum ráðuneytisins hvernig ná eigi settum markmiðum eða hvað það er sem fellur undir varnartengd verkefni“ (þskj. 465/157). Í nefndaráliti 1. minni hluta er bent á að „grundvallaratriði [sé] að Alþingi fái skýrari mynd af forsendum markmiða og hvernig þau eigi að framkvæma“ (þskj. 459/157).

Varða telur að þessi óskýrleiki hafi að minnsta kosti fimm afleiðingar:

  • Fjárveitingavaldið veikist. Alþingi á erfitt með að forgangsraða fjármunum þegar ekki liggur skýrt fyrir hvert þeir renna. Þar sem framlög munu aukast um tugi milljarða á næstu árum skiptir miklu að Alþingi geti fylgst með því hvert fjármunirnir fara og hverju þeir skila.
  • Tölur geta hækkað án þess að getan aukist. Ef sífellt fleiri útgjöld sem fyrir eru teljast varnartengd getur hlutfall varnartengdra útgjalda af landsframleiðslu hækkað án þess að viðbúnaður eða geta aukist.
  • Trúverðugleiki gagnvart bandamönnum getur beðið hnekki. Ísland hefur engan her og varnir landsins byggja á því að bandamenn komi til aðstoðar. Því skiptir sérstöku máli að Ísland sé talið standa við það sem til þess er ætlast. Stjórnvöld hafa sjálf lagt áherslu á varfærni við skilgreiningu útgjaldanna, meðal annars „til að viðhalda trúverðugleika gagnvart bandamönnum okkar“ (minnisblað ráðuneytanna frá 19. maí 2026). Utanríkisráðuneytið hefur jafnframt bent fjárlaganefnd á að „margt [bendi] til að á þeim viðmiðum verði hert“ (svar ráðuneytisins frá 27. nóvember 2025). Ef útgjöld sem nú eru talin með uppfylla ekki hert viðmið gæti bilið að markmiðinu reynst stærra en gert er ráð fyrir. Garðar Forberg, fyrrverandi fulltrúi Íslands í hermálanefnd Atlantshafsbandalagsins, hefur bent á að stjórnvöld þurfi „að skýra mun betur hvernig þau líta á þennan hluta skuldbindinganna, ekki síst samspilið milli 1,5 prósentanna og 3,5 prósentanna“ (Tímarit Vörðu, júní 2026).
  • Hluti útgjaldanna fellur utan fjárlaga. Í minnisblaði ráðuneytanna frá 19. maí 2026 eru útgjöld hins opinbera til varnartengdra verkefna árið 2026 áætluð 48,9 ma.kr. Þar af eru um 6,5 ma.kr. útgjöld sveitarfélaga og opinberra fyrirtækja. Ekki liggur fyrir hvaða útgjöld og verkefni eru þar að baki. Sá hluti er utan fjárveitingavalds Alþingis en telur engu að síður upp í skuldbindingu Íslands gagnvart bandamönnum sínum.
  • Ekki er hægt að meta hvort aukin framlög skila árangri. Á meðan óljóst er hvaða útgjöld eru talin með getur Alþingi ekki metið hvort aukin framlög skili sér í meiri viðbúnaði og getu.

Varða telur því mikilvægt að fyrir 2. umræðu liggi fyrir hvaða fjárveitingar í frumvarpi 2027 teljast til öryggis- og varnarmála og á hvaða forsendum (tillaga 1). Í minnisblaði ráðuneytanna frá 19. maí 2026 kemur fram að þau hafi „lokið greiningu á útgjöldum Íslands sem falla innan skilgreininga Atlantshafsbandalagsins um varnartengd útgjöld“, í tengslum við fyrstu skýrslu Íslands til bandalagsins. Sú greining gæti orðið grunnur að slíkri sundurliðun.

Til lengri tíma þarf að tryggja að Alþingi fái slíkar upplýsingar á hverju ári. Varða leggur til að hafin verði vinna við sérstakt árlegt yfirlit með fjárlögum yfir öryggis- og varnarútgjöld hins opinbera, þvert á málefnasvið og stjórnsýslustig (tillaga 2). Útgjöldin dreifast á mörg ráðuneyti, stofnanir, sveitarfélög og opinber fyrirtæki, og hvergi er að finna heildstætt yfirlit yfir þau. Í yfirlitinu þyrfti jafnframt að koma fram hvaða útgjöld teljast til 3,5% viðmiðsins og hvaða útgjöld til 1,5% viðmiðsins, svo hægt sé að fylgjast með hvoru tveggja.

Ísland getur litið til hinna Norðurlandanna í þessum efnum. Í Svíþjóð fylgir fjárlagafrumvarpinu til dæmis tafla sem sýnir aukin framlög til almannavarna þvert á málefnasvið. Nágrannaríkin eru einnig að móta hvernig útgjöld sem falla undir 1,5% viðmiðið verða afmörkuð og sett fram, og Ísland getur lært af þeirri vinnu.

Í þingsályktun um stefnu í varnar- og öryggismálum er kveðið á um að ráðherra upplýsi Alþingi árlega um framkvæmd stefnunnar. Árlegt yfirlit með fjárlögum væri eðlilegur hluti þeirrar upplýsingagjafar hvað fjárveitingar varðar.

2. Langtímaáætlun

Í þingsályktun um stefnu í varnar- og öryggismálum frá 3. febrúar 2026 segir að stefnan skuli vera „raunhæf og kostnaðarmetin, og uppfærð með reglubundnum hætti að höfðu samráði við Alþingi“. Í minnisblaði ráðuneytanna frá 19. maí 2026 kemur fram að á grundvelli greiningar útgjalda verði unnt „að móta langtímastefnu um hvernig staðið verði við skuldbindingu Íslands um að verja 1,5% af VLF til varnar- og öryggismála árið 2035“. Í fjármálaáætlun 2027–2031 segir að unnið sé „að því að móta heildstæða langtímaáætlun um framlög hins opinbera til varnar- og öryggismála er lýtur að kerfislega mikilvægum innviðum“. Sú áætlun er afmörkuð við innviði, en aukningin sem fram undan er nær til varnartengdra útgjalda í heild. Hvorug þeirra hefur enn verið lögð fyrir Alþingi, þrátt fyrir ítrekaðar beiðnir þess efnis frá þinginu, þar með talið fjárlaganefnd.

Áhrif á fjárveitingar

Tvennt tengir langtímaáætlun um útgjöldin sérstaklega við fjárlagagerðina:

  • Aukningin nær langt út fyrir tímabil fjármálaáætlunar. Samkvæmt minnisblaði ráðuneytanna nema varnartengd útgjöld hins opinbera 0,92% af landsframleiðslu árið 2026 og verða 1,0% árið 2031. Um 85% þeirrar aukningar sem þarf til að ná 1,5% fyrir árið 2035 falla því utan núgildandi áætlana. Meiri hluti nefndarinnar hefur sjálfur bent á að breytingarnar „þyrfti að gera í áföngum og mögulega yfir lengra tímabil en nemur fjármálaáætlun“ (þskj. 704/156).
  • Fjármögnunin snertir önnur málefnasvið. Meiri hlutinn hefur bent á að „til langs tíma miðar stöðugleikareglan við að ef hækka þarf útgjöld um tugi milljarða króna vegna varnartengdra verkefna þá þarf á móti að fjármagna þau með skattkerfisbreytingum eða með breyttri forgangsröðun annarra útgjalda“ (þskj. 704/156). Án áætlunar er óljóst hvaða ákvarðanir um forgangsröðun bíða Alþingis.

Á hinum Norðurlöndunum hvíla fjárveitingar til varnarmála á langtímaáætlunum sem njóta breiðs stuðnings á þjóðþingunum. Norska Stórþingið samþykkti einróma í júní 2024 áætlun fyrir árin 2025–2036. Í Danmörku gildir samkomulag breiðs meiri hluta þingflokka um árin 2024–2033, og sænska þingið samþykkti í desember 2024 ákvörðun um heildarvarnir fyrir árin 2025–2030. Í sama mánuði lagði finnska ríkisstjórnin fram skýrslu um varnarmál, unna í samráði við þverpólitískan hóp þingmanna, sem markar stefnu um mannafla og fjárframlög fram á fjórða áratuginn.

Áhættumat, stefna og áætlun

Í nágrannaríkjunum er áhættumat lagt til grundvallar stefnu í öryggismálum, og stefnan mótar síðan langtímaáætlun og fjárveitingar. Hér á landi liggur stefnan fyrir og samkvæmt þingsályktuninni á framkvæmd hennar að „[taka] mið af ógnarmati“. Í greinargerð með tillögunni er kafli um ógnarmat, þrjár blaðsíður að lengd, sem lýsir öryggisumhverfinu almennt en metur ekki einstaka áhættuþætti og afleiðingar þeirra. Þjóðaröryggisráð birti almennt mat á ástandi og horfum í öryggismálum í febrúar 2021 og uppfærði það í desember 2022. Ólíkt hinum Norðurlöndunum hefur hér á landi hins vegar ekki verið birt sérstakt opinbert ógnarmat.

Ísland er að byggja upp nýja menningu í öryggis- og varnarmálum, og hún verður að njóta stuðnings almennings. Almenningur þarf að skilja hvaða áhættum er verið að bregðast við og hvers vegna verja þarf auknu fé til málaflokksins. Aukist útgjöldin verulega án þess að ljóst sé hvers vegna, mun það draga úr trausti almennings á þeirri uppbyggingu sem nauðsynleg er og Ísland hefur skuldbundið sig gagnvart bandamönnum sínum til að ráðast í. Opinbert áhættumat gerir jafnframt sveitarfélögum, fyrirtækjum og heimilum kleift að búa sig undir þær áhættur sem stjórnvöld telja helst steðja að samfélaginu.

Á hinum Norðurlöndunum eru áhættumöt á landsvísu birt reglulega, nú síðast í Svíþjóð og Danmörku árið 2025 og í Finnlandi árið 2023 (uppfært finnskt mat er væntanlegt haustið 2026). Í Noregi hefur almannavarnastofnunin DSB birt greiningar á hættusviðsmyndum allt frá árinu 2011. Að auki birta leyniþjónustur og öryggisstofnanir í öllum fjórum ríkjunum opinber ógnarmat á hverju ári. Á þessu ári birtu til dæmis Säpo í Svíþjóð, Supo í Finnlandi og PST og E-tjenesten í Noregi slík mat, og danska leyniþjónustan FE birti mat sitt á ógninni frá Rússlandi 24. september síðastliðinn.

Það samrýmist góðum stjórnarháttum að áhættumat íslenskra stjórnvalda sem langtímaáætlunin byggir á verði birt áður en áætlunin er lögð fram.

Heildarvarnir kalla á aðkomu fleiri aðila

Stefnan í öryggis- og varnarmálum á að ná til samfélagsins alls, og hið sama á við um áætlunina sem á henni byggir.

Þar sem Ísland hefur engan her hvílir viðbúnaður samfélagsins að miklu leyti á sveitarfélögum, fyrirtækjum sem reka mikilvæga innviði, viðbragðsaðilum og félagasamtökum. Þessir aðilar bera einnig hluta kostnaðarins; í minnisblaði ráðuneytanna frá 19. maí 2026 eru um 6,5 ma.kr. af varnartengdum útgjöldum ársins 2026 rakin til sveitarfélaga og opinberra fyrirtækja. Í fjármálaáætlun segir jafnframt að áætlunin sem þar er lýst muni „byggja á samræmdri nálgun milli stjórnvalda, sveitarfélaga og opinberra fyrirtækja“.

Slík nálgun kallar á að þessir aðilar, og ekki síst fyrirtæki sem reka kerfislega mikilvæga innviði, komi snemma að borðinu, bæði við greiningu og áætlanagerð, en fái áætlunina ekki einungis til umsagnar þegar hún liggur fyrir. Það stuðlar jafnframt að betri meðferð opinbers fjár. Þegar ríki, sveitarfélög og fyrirtæki gera áætlanir í sameiningu aukast líkur á að fjárveitingar ríkisins nýtist þar sem þörfin er brýnust, að komist verði hjá tvíverknaði og að ljóst sé hvaða kostnaður lendir á hverjum áður en ákvarðanir eru teknar.

Eftirfylgni

Í úttekt sem International Institute for Strategic Studies (IISS) vann fyrir Vörðu kemur fram að framkvæmd stefnunnar verði helsta áskorunin. IISS leggur til að stjórnvöld birti yfirlit yfir núverandi útgjöld til borgaralegs viðbúnaðar ásamt þriggja ára áætlun um hvernig viðmiðum Atlantshafsbandalagsins um áfallaþol verði náð. Þjóðaröryggisráð fái skýrt forræði yfir áætluninni og sérstakri einingu verði falið að fylgja henni eftir og greina opinberlega frá framgangi hennar ársfjórðungslega. Að mati IISS getur Ísland komist hratt áleiðis ef forgangsverkefnum er fækkað, þjóðaröryggisráði falin ábyrgð á framgangi þeirra og árangurinn metinn reglulega.

Tillagan fellur vel að lögbundnu hlutverki ráðsins. Samkvæmt lögum nr. 98/2016 hefur þjóðaröryggisráð eftirlit með framkvæmd þjóðaröryggisstefnu fyrir Ísland og skal árlega upplýsa Alþingi um hana. Langtímaáætlun til ársins 2035 eykur umfang þessa hlutverks verulega, og óvíst er hvort ráðið hefur nú þann mannafla og þær fjárheimildir sem til þarf til að sinna slíku hlutverki.

Hvaða leið sem valin verður skiptir mestu að eftirfylgnin sé regluleg og opinber. Þá getur fjárlaganefnd metið við gerð fjárlaga ár hvert hvort fyrri fjárveitingar hafi skilað þeirri getu sem að var stefnt.

Varða telur því mikilvægt að heildstæð og kostnaðarmetin áætlun liggi fyrir við gerð næstu fjármálaáætlunar og verði grundvöllur framtíðarfjárveitinga til málaflokksins (tillaga 3). Áætlunin nái til öryggis- og varnarútgjalda í heild, þannig að áætlun um kerfislega mikilvæga innviði verði hluti hennar. Hún byggi á opinberu áhættumati og verði unnin með sveitarfélögum, fyrirtækjum og félagasamtökum frá upphafi. Þar komi fram kostnaðarmat og áfangaskipting til ársins 2035, skipting útgjalda milli 3,5% og 1,5% viðmiðanna og milli málefnasviða og stjórnsýslustiga, og hvernig útgjöldin verði fjármögnuð. Jafnframt komi fram hver beri ábyrgð á eftirfylgni, og reglulega verði opinberlega gerð grein fyrir framgangi áætlunarinnar.

3. Verkefni sem þola ekki bið

Hér að framan er fjallað um þær upplýsingar og þá áætlanagerð sem fjárveitingar til málaflokksins þurfa að byggja á. Sum verkefni geta þó ekki beðið eftir langtímaáætlun. Á liðnu ári hefur Varða greint fjögur slík verkefni. Í flestum þeirra hefur þörfin legið fyrir um árabil án þess að fjármagn hafi verið tryggt til að bæta úr stöðu mála.

Öryggisbirgðir

Á síðustu fimm árum hafa alþjóðlegar aðfangakeðjur orðið fyrir þremur stórum áföllum: kórónuveirufaraldrinum, innrás Rússlands í Úkraínu og átökunum í Persaflóa. Í greiningu Vörðu, Allt er þegar þrennt er (maí 2026), kemur fram að Ísland hafi þrátt fyrir það ekki fjárfest markvisst í gagnasöfnun um birgðastöðu, viðnámsþrótti aðfangakeðja eða uppbyggingu öryggisbirgða. Atvinnuvegaráðuneytið hefur bent á að olía sé „langmikilvægasta innflutta hráefni innlendrar matvælaframleiðslu“ og að birgðir annarra aðfanga komi að litlu gagni án hennar.

Starfshópur á vegum forsætisráðuneytisins lagði til árið 2022 að einum aðila yrði falin yfirumsjón með neyðarbirgðum landsins og að lögfest yrði 90 daga lágmark eldsneytisbirgða, sama viðmið og Evrópusambandið og Alþjóðaorkumálastofnunin gera kröfu um. Samkvæmt greiningu Orkustofnunar, sem birt er í skýrslu starfshópsins, hafa aðgengilegar birgðir í lok hvers árs dugað fyrir um 20–50 daga eldsneytisþörf, og dæmi eru um að birgðir þotueldsneytis hafi farið undir tíu daga.

Í mars 2026 sagði umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra á Alþingi að 90 daga eldsneytisbirgðir væru „grundvallaratriði til skemmri tíma“. Hann benti jafnframt á að þær yrðu ekki byggðar upp í einu vetfangi, „með milljarða kostnaði“, og gerði ráð fyrir að frumvarp um málið yrði lagt fram á því löggjafarþingi sem nú er hafið. Í frumvarpi til fjárlaga 2027 er þó ekki gert ráð fyrir fjármagni til uppbyggingarinnar. Þar er „[g]reining og mótun fjármögnunar og fyrirkomulags öryggisbirgða jarðefnaeldsneytis“ meðal verkefna ráðuneytisins, án viðbótarfjárveitingar.

Varða leggur til að veittar verði fjárheimildir til að hefja uppbyggingu öryggisbirgða, með eldsneyti í forgangi (tillaga 4). Uppbyggingin þarf að geta hafist strax á næsta ári, enda væri enn eitt ár greiningarvinnu of löng bið á varasömum tímum. Í greiningu Vörðu er bent á leiðir sem ekki krefjast þess að ríkið eignist birgðirnar sjálft, svo sem samninga við fyrirtæki um aukið birgðahald og lánsábyrgðir. Hvaða leið sem valin verður þarf fjármagn að fylgja því frumvarpi sem ráðherra hefur boðað.

Kaupskip undir íslenskum fána

Öryggisbirgðir koma að takmörkuðu gagni ef ekki er tryggt að vörur berist til landsins. Yfir 90% af vöruviðskiptum Íslands fara um sjó, en ekkert kaupskip er skráð á Íslandi. Skip íslenskra útgerða sigla undir færeyskum, norskum, hollenskum og öðrum erlendum fánum, og á hættutímum getur fánaríki kallað skip undir sínum fána til þjónustu í eigin þágu. Íslensk stjórnvöld hafa engar slíkar heimildir. Nágrannaríkin eru þegar byrjuð að búa sig undir að taka eignir yfir í neyð. Í janúar 2026 sendi norski herinn til dæmis um 13.500 tilkynningar til eigenda ökutækja, véla, báta og fasteigna um að eignirnar gætu verið teknar til afnota á ófriðartímum.

Tvær tilraunir til að koma á fót íslenskri alþjóðlegri skipaskrá hafa ekki borið árangur. Skattaleg ívilnun var felld úr gildi árið 2011 eftir athugasemdir Eftirlitsstofnunar EFTA, og frumvarpsdrög frá 2021 náðu ekki fram að ganga. Í greiningu Vörðu, Flotinn sem fór (mars 2026), er lagt til að samið verði við siglingamálastofnun Færeyja um rekstur íslenskrar skrár, að fyrirmynd stærstu skipaskráa heims. Ísland myndi setja lagaumgjörðina og halda lögsögu og neyðarheimildum, en fela daglegan rekstur skrárinnar stofnun sem íslenskar útgerðir þekkja þegar og treysta. Slík leið krefst þess hvorki að ríkið eignist skip né að ný stofnun verði byggð upp.

Grunnviðmið Atlantshafsbandalagsins um áfallaþol taka meðal annars til samgangna. Aðgerð af þessu tagi eykur því raunverulegan viðbúnað á því sviði sem 1,5% viðmiðið á að ná til. Varða leggur til að veittar verði fjárheimildir til að undirbúa samstarf við Færeyjar um rekstur íslenskrar alþjóðlegrar skipaskrár (tillaga 5).

Sérsveit ríkislögreglustjóra

Í greiningu Vörðu, Gleym mér ei (september 2026), kemur fram að vopnaútköllum sérsveitarinnar hafi fjölgað úr 56 árið 2014 í 424 árið 2025, eða úr um einu í viku í meira en eitt á dag að jafnaði. Mönnun hefur á sama tíma lítið breyst. Vorið 2025 störfuðu 46 sérsveitarmenn, tíu færri en heimild er fyrir. Ríkislögreglustjóri hefur um árabil bent stjórnvöldum á að fjármagna þurfi heimiluð stöðugildi, og dómsmálaráðherra sagði í september að sveitin gæti hæglega verið 70–80 manns.

Vopnaútköll sýna aðeins hluta álagsins. Sveitin sinnir einnig hættulegum handtökum, öryggisgæslu og sérhæfðum aðgerðum á landi og hafi. Í júlí 2026 fór hún ásamt séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar um borð í skipið Bandero og tók yfir stjórn þess. Þegar hluti sveitarinnar er bundinn í langvinnu eða fjarlægu verkefni fækkar þeim sem geta brugðist við öðru alvarlegu atviki annars staðar á landinu. Í greiningunni er jafnframt bent á að skemmdarverk, netárásir og önnur refsiverð háttsemi sem tengd hefur verið erlendum ríkjum hafi margfaldast í Evrópu, og að viðbrögð við slíkum atvikum muni að miklu leyti hvíla á sérþjálfuðum sveitum á borð við sérsveitina.

Fjárskortur hefur þegar hamlað uppbyggingu sveitarinnar. Vorið 2025 var nýliðanámskeiði hennar aflýst af þeim sökum, þótt um 25 lögreglumenn hefðu verið metnir hæfir til þátttöku. Námskeiðið var síðar haldið eftir sérstaka fjárveitingu Alþingis, en aðeins tveir þeirra sem luku því voru ráðnir í sveitina og heildarfjöldi sérsveitarmanna jókst ekki.

Í frumvarpi til fjárlaga 2027 er fjárheimild til löggæslu aukin vegna fjölgunar lögreglumanna, en ekki kemur fram hvort hluti hennar renni til sérsveitarinnar. Varða leggur til að fjárheimildir verði tryggðar fyrir þau stöðugildi sveitarinnar sem þegar hafa verið heimiluð (tillaga 6). Samkvæmt áætlun Vörðu, sem byggir á viðmiðum dómsmálaráðuneytisins og fjárlagagerðar um kostnað við stöðugildi lögreglumanna, nemur kostnaðurinn um 300–400 m.kr. á ári. Það væri fyrsta skrefið í átt að þeirri stærð sem ráðherra hefur nefnt.

Viðbrögð við drónum

Drónatengdum atvikum við flugvelli, hafnir og aðra mikilvæga innviði hefur fjölgað verulega í Evrópu. Á síðasta ári leiddu drónar af óþekktum uppruna til lokunar flugvalla, meðal annars í Danmörku, Noregi og Þýskalandi. Í ógnarmati dönsku leyniþjónustunnar frá 24. september síðastliðnum segir að Rússar beiti nú drónum gegn skotmörkum í Evrópu og muni herða fjölþáttahernað sinn enn frekar.

Í greiningu Vörðu, Að finna og fæla (júní 2026), sem unnin var í samstarfi við Brooks Tech Policy Institute við Cornell-háskóla, kemur fram að drónatengd atvik við Keflavíkurflugvöll hafi vakið athygli hér á landi. Þar eru greindar gloppur í viðbragðskerfum: ábyrgðarskipting er óljós, viðbrögð þegar atvik koma upp eru ófullnægjandi og samhæfing þeirra sem bera ábyrgð á mikilvægum innviðum er takmörkuð. Jafnframt er bent á að landfræðileg einangrun Íslands og fáar varaleiðir geti gert afleiðingar röskunar meiri hér en víða annars staðar í Evrópu.

Hvorki í frumvarpi til fjárlaga 2027 né í fjármálaáætlun 2027–2031 er minnst á viðbrögð við drónum. Varða leggur til að lögreglu verði tryggðar fjárheimildir til að bregðast við drónum við flugvelli, hafnir og aðra mikilvæga innviði (tillaga 7).

Varða þakkar fjárlaganefnd fyrir að taka umsögnina til umfjöllunar. Fulltrúar Vörðu eru reiðubúnir að koma fyrir nefndina og gera nánari grein fyrir efni hennar, telji nefndin það gagnlegt.