Umsögn um frumvarp til laga um almannavarnir

Fjórar tillögur til allsherjar- og menntamálanefndar Alþingis um birtingu áhættumats og skýrari skiptingu ábyrgðar

Höfundar Kristinn Árni L. Hróbjartsson Send til Allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis · Málið á vef Alþingis ↗ Dagsett Flokkur Umsögn · Viðnámsþróttur · Mikilvægir innviðir
Vitna í þessa útgáfu
Tilvísun í heimildaskrá (APA)
Kristinn Árni L. Hróbjartsson. (2026). Umsögn Vörðu um frumvarp til laga um almannavarnir, 294. mál á 158. löggjafarþingi. Varða.
Tilvísun í texta
(Kristinn Árni L. Hróbjartsson, 2026)

Varða hefur sent allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis umsögn um frumvarp til laga um almannavarnir, 294. mál á 158. löggjafarþingi. Athugasemdirnar snúa annars vegar að aðgengi almennings og Alþingis að áhættumati og hins vegar að þremur atriðum þar sem verkefni og ábyrgð skarast. Varða leggur til úrbætur í hverju tilviki.

Fjórar tillögur

01

Birting áhættumats. Bætt verði við 15. gr. kröfu um að opin útgáfa matsins á áhættu og áfallaþoli samfélagsins verði birt og kveðið á um reglubundna upplýsingagjöf til Alþingis um stöðu almannavarna, sambærilega þeirri sem gildir á sviði varnarmála.

02

Ráðherranefnd og þjóðaröryggisráð. Þingnefndin óski eftir skýrri afmörkun frá forsætisráðuneyti á verkaskiptingu ráðherranefndar um almannaöryggi og varnarmál og þjóðaröryggisráðs og skýringum á þörfinni á nýjum vettvangi. Hvort tveggja komi fram í frumvarpinu eða í nefndaráliti.

03

Skilgreiningar á innviðum. Lagatextinn sjálfur tengi hugtökin saman, ómissandi innviðir verði afmarkaður hluti mikilvægra innviða og heildstætt yfirlit ríkislögreglustjóra samkvæmt 19. gr. nái til allra flokkanna.

04

Neyðar- og öryggisbirgðir. Ábyrgð á skipulagi, fjármögnun og umsjón neyðar- og öryggisbirgða verði á einni hendi hjá ráðherra almannavarna, með einni lagaheimild í stað sérlaga á hverju sviði.

Varða þakkar fyrir tækifærið að koma sjónarmiðum stofnunarinnar á framfæri. Varða er sjálfstæð hugveita á sviði þjóðaröryggis og vinnur að bættu öryggi Íslands í gegnum greiningar, samtal og opinbera umræðu.

Athugasemdir Vörðu snúa annars vegar að þremur atriðum þar sem verkefni og ábyrgð skarast og hins vegar að skorti á skýrleika tengdum aðgengi almennings að áhættumati. Ný ráðherranefnd um almannaöryggi og varnarmál fjallar um sömu mál og þjóðaröryggisráð, sama fyrirtæki getur fallið undir nokkrar skilgreiningar innviða og hvert ráðuneyti á að sinna birgðahaldi á sínu sviði, þótt verkefnið sé það sama þvert á tegundir birgða. Nágrannalönd okkar birta áhættumat opinberlega. Frumvarpið kveður á um birtingu viðbragðsáætlana en ekki um birtingu matsins sem þær byggja á, og þar er ekki gert ráð fyrir reglulegri upplýsingagjöf til Alþingis um stöðu almannavarna.

Varða leggur til úrbætur í hverju tilviki.

Birting áhættumats og upplýsingagjöf til Alþingis

Frumvarpið skyldar í 15. gr. ríkislögreglustjóra til að láta framkvæma greiningu og mat á áhættu og áfallaþoli samfélagsins í heild á að minnsta kosti fjögurra ára fresti. Það er nýjung sem ber að fagna enda hefur mat sem tekur til samfélagsins í heild ekki verið lögbundið hér áður. Frumvarpið tekur hins vegar ekki afstöðu til þess hvort matið skuli birt almenningi. Í 2. mgr. 22. gr. er kveðið á um að birta skuli viðbragðsáætlanir opinberlega nema sérstök rök standi til annars, en ekki er fjallað um birtingu matsins sjálfs.

Danmörk, Svíþjóð, Noregur og Finnland birta sambærilegt mat. Ástæðan sem þau gefa sjálf er að sveitarfélög, fyrirtæki og stofnanir þurfi að þekkja heildarmyndina til að geta skipulagt sinn eigin viðbúnað. Það á einnig við hér. Frumvarpið leggur matsskyldu á ráðuneyti, sveitarfélög og ábyrgðaraðila ómissandi innviða og ekki er ljóst að sömu aðilar fái þá heildarmynd sem matið dregur upp.

Frumvarpið leggur í 14. gr. á ríkislögreglustjóra að skipuleggja forvarnir og fræðslu fyrir almenning, og samkvæmt 38. gr. skulu viðbragðsaðilar leitast við að tryggja aðgengi fjölmiðla í almannavarnaástandi svo að almenningur fái upplýsingar. Varða telur ekki nóg að upplýsingagjöf sé bundin við þann tíma þegar atvik er í uppsiglingu eða hafið. Forvarnir byggjast á því að fólk viti fyrirfram hvað það á að búa sig undir og það er matið sem svarar því. Viðbúnaður einstaklinga og heimila er hluti af viðbúnaði landsins.

Greining Vörðu á hamfaravitund og viðbúnaði íslensks almennings frá apríl 2026 sýndi að traust er mikið og viðhorf jákvæð, en raunverulegur viðbúnaður er veikur, einkum þegar truflanir vara lengur en í tvo til þrjá daga. Aukin sala á útvörpum, dósamat og hrísgrjónum eftir útgáfu bæklings almannavarna, Verum viðbúin, í byrjun nóvember 2026 bendir jafnframt til að upplýsingagjöf til almennings skili sér.

Til samanburðar má nefna varnarmálalögin. Samkvæmt 3. gr. þeirra ber utanríkisráðherra ábyrgð á gerð hættumats á sviði varnarmála, og samkvæmt 25. gr. flytur hann utanríkismálanefnd Alþingis árlega skýrslu um varnar- og öryggismál og framkvæmd laganna. Þar er einnig kveðið á um samráð við nefndina um öll meiri háttar varnar- og öryggismál. Í frumvarpinu er engin sambærileg regluleg upplýsingagjöf til Alþingis um stöðu almannavarna, mat á áhættu og áfallaþoli eða ómissandi innviði.

Varða leggur til að bætt verði við 15. gr. kröfu um að opin útgáfa matsins verði birt og að kveðið verði á um reglubundna upplýsingagjöf til Alþingis um stöðu almannavarna, sambærilega þeirri sem gildir á sviði varnarmála.

Þrjú atriði þar sem verkefni og ábyrgð skarast

1. Ráðherranefnd um almannaöryggi og varnarmál og þjóðaröryggisráð

Frumvarpið lögfestir ráðherranefnd um almannaöryggi og varnarmál. Samkvæmt frumvarpinu fjallar hún meðal annars um stefnu stjórnvalda í almannavörnum, öryggis- og varnarmálum; greiningar og mat á áhættu og áfallaþoli og hættumat á sviði varnarmála; fyrirbyggjandi aðgerðir og tilgreiningu og stöðu ómissandi innviða. Samkvæmt greinargerð tekur hún við af ráðherranefnd um öryggis- og varnarmál, sem ríkisstjórnin setti á fót í janúar 2025 sem vettvang upplýsingaskipta.

Á Íslandi starfar þjóðaröryggisráð samkvæmt lögum nr. 98/2016, sem metur ástand og horfur í öryggis- og varnarmálum og fjallar um önnur málefni sem varða þjóðaröryggi. Forsætisráðherra, ráðherra varnarmála og ráðherra almannavarna sitja í þjóðaröryggisráði. Ráðherranefnd um almannaöryggi og varnarmál er því nýr vettvangur, þar sem sömu ráðherrar sitja og ræða að miklu leyti sömu málefni.

Reynslan bendir til að þunginn af samhæfingu í öryggis- og varnarmálum hafi færst. Samkvæmt upplýsingum forsætisráðuneytis í janúar 2026 hafði ráðherranefnd um öryggis- og varnarmál þá fundað fimm sinnum frá áramótum um stöðu alþjóðamála þegar Grænlandsmálið stóð sem hæst. Þjóðaröryggisráð hafði á sama tíma ekki komið saman frá 28. nóvember 2025. Aðgerðahópur ráðuneyta og stofnana undir ráðherranefndinni hafði verið virkjaður tvisvar. Ráðherranefndin virðist því í reynd vera orðin sá vettvangur þar sem stjórnvöld bregðast við þróun öryggismála.

Varða telur að lögfesting nefndarinnar, án umfjöllunar um samband og verkaskiptingu milli hennar og þjóðaröryggisráðs, valdi ruglingi og flæki stofnanaumgjörð öryggis- og varnarmála á Íslandi. Tveir vettvangar með sömu ráðherra og verksvið sem skarast skapa óvissu um hvar mat á stöðu öryggismála fer fram, hver ber ábyrgð, og hvar ákvarðanir eru undirbúnar og teknar. Varða leggur því til að þingnefndin óski eftir skýrri afmörkun frá forsætisráðuneyti á verkaskiptingu ráðherranefndarinnar og þjóðaröryggisráðs, skýringum á þörfinni á nýjum vettvangi og að hvort tveggja komi fram í frumvarpinu eða í nefndaráliti.

2. Skilgreiningar á innviðum

Frumvarpið skilgreinir ómissandi innviði sem þá innviði sem samfélagið getur ekki verið án í sólarhring eða skemur. Samkvæmt frumvarpinu munu rekstraraðilar þeirra innviða sem falla undir þá skilgreiningu fá á sig auknar skyldur tengdar almannaöryggi og viðbúnaði. Greinargerðin segir hugtakið þrengra en „mikilvægir innviðir“ en tengir það hvorki við mikilvæga innviði samkvæmt lögum nr. 78/2019 um öryggi net- og upplýsingakerfa né við viðkvæm svið samkvæmt lögum nr. 84/2026. Frumvarpið notar sjálft orðin „mikilvægir innviðir“ í skilgreiningu á neyðar- og öryggisbirgðum í 8. tölul. 3. gr. án þess að skýra þau, og vísar nánari afmörkun ómissandi innviða til reglugerðar. Á næstu misserum má gera ráð fyrir að Evrópulöggjöf á sviði mikilvægra fyrirtækja (Critical Entities Resilience Directive, CER) verði innleidd í íslensk lög.

Skilgreining á og auknar skyldur á rekstraraðila ómissandi innviða eru nauðsynlegt framfaraskref í íslenskri löggjöf og öryggisumgjörð. En heppilegt væri ef skilgreiningar væru samræmdar og auðskiljanlegar þeim sem bera ábyrgð. Sama fyrirtækið getur samkvæmt þessu fallið undir nokkrar skilgreiningar, með mismunandi skyldum og þremur eftirlitsaðilum. Það eykur flækjustig, kostnað rekstraraðila og dregur úr yfirsýn stjórnvalda.

Varða leggur til að lagatextinn sjálfur tengi hugtökin saman, að ómissandi innviðir verði afmarkaður hluti mikilvægra innviða eins og greinargerðin gefur til kynna, og að heildstætt yfirlit ríkislögreglustjóra samkvæmt 19. gr. nái til allra flokkanna.

3. Neyðar- og öryggisbirgðir

Samkvæmt 21. gr. leiðir hver ráðherra samvinnu og samráð um öryggis- og neyðarbirgðir á sínu málefnasviði og greinir áhættu og áfallaþol. Það er í samræmi við sviðsábyrgðarregluna. Ákvæðið er hins vegar ekki skýrt um hver ber ábyrgð á að ákveða hvaða birgðir skuli vera til, í hvaða magni, hver fjármagni þær eða haldi. Greinargerðin vísar þeim ákvörðunum til sérlaga á hverju sviði, án tímasetningar, og gerir ekki ráð fyrir auknum útgjöldum vegna frumvarpsins.

Starfshópur forsætisráðherra kallaði árið 2022 eftir formlegu samstarfi um nauðsynlegar birgðir. Frumvarpið lögfestir það samstarf fjórum árum síðar en engar opinberar upplýsingar benda til að á Íslandi séu skipulagðar neyðar- og öryggisbirgðir á vegum ríkisins.

Varða telur þetta fyrirkomulag henta illa birgðahaldi og vera ólíklegt til árangurs. Að greina þörf, gera áætlanir, semja við stofnanir og fyrirtæki um birgðahald, fjármagna birgðir, halda og reka birgðageymslur er sérhæft rekstrarverkefni. Sú þekking nýtist vel þvert á tegundir birgða, sem gætu spannað korn, eldsneyti, vélarolíur, lyf og varahluti. Dreifð á mörg ráðuneyti byggist þekkingin illa upp. Finnland, Sviss og Eistland hafa falið einni stofnun yfirumsjón með verkefninu þvert á málefnasvið. Þess háttar stofnun hefur þekkingu og getu til að tryggja neyðar- og öryggisbirgðir með margvíslegum hætti, svo sem með samningum við fyrirtæki eða eigin birgðahaldi og leggur grunn að forgangsröðun birgða þvert á málefnasvið ráðuneyta.

Þá minnist frumvarpið ekki á fjármögnun öryggisbirgða. Birgðahaldi fylgir kostnaður, bæði kostnaður í birgðunum sjálfum og svo umsýslu- og viðhaldskostnaður. Öflugar neyðar- og öryggisbirgðir eru mikilvæg öryggisaðgerð fyrir eyju sem flytur inn megnið af sinni neysluvöru.

Varða leggur til að ábyrgð á skipulagi, fjármögnun og umsjón neyðar- og öryggisbirgða verði á einni hendi hjá ráðherra almannavarna, með einni lagaheimild í stað sérlaga á hverju sviði. Ráðherra geti sinnt verkefninu í ráðuneytinu eða falið það ríkislögreglustjóra eða annarri undirstofnun. Fagráðherrar taki þátt í þarfagreiningu á sínu sviði og vinni með ráðherra almannavarna.

Samantekið kalla athugasemdirnar annars vegar á skýrari skiptingu ábyrgðar og hins vegar á að aukið gagnsæi og upplýsingagjöf til almennings verði lögfest. Ráðherranefndin og þjóðaröryggisráð fjalla um sömu öryggismál, sama fyrirtæki getur heyrt undir þrjá eftirlitsaðila og ekkert eitt ráðuneyti heldur utan um neyðar- og öryggisbirgðir. Þá er ekki skýrt af frumvarpinu að stjórnvöldum beri að upplýsa almenning, Alþingi og rekstraraðila innviða um niðurstöður áhættumats. Varða hvetur nefndina til að taka af tvímæli í lagatextanum um hvaða vettvangur metur stöðu öryggismála; hvernig innviðahugtökin tengjast; hver ákveður, fjármagnar og varðveitir birgðirnar; og að tryggja gagnsæja upplýsingagjöf til almennings.

Varða er reiðubúin að fylgja umsögninni eftir á fundi nefndarinnar.