Fréttir og umfjöllun

Fréttatilkynningar, ný útgáfa, aðsendar greinar og umfjöllun um efni Vörðu í íslenskum fjölmiðlum.

30. júní 2026 Nýtt Tímarit Vörðu um þjóðaröryggi hefur göngu sína Varða, hugveita um þjóðaröryggi, hefur hafið útgáfu á fyrsta tímaritinu á Íslandi sem fjallar um þjóðaröryggi og alþjóðamál. Fyrsta tölublaði gestaritstýrir Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, en meðal greinarhöfunda eru Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra, Björn Bjarnason, fyrrum dómsmálaráðherra, Jenny Hill sendiherra Kanada á Íslandi, Birna Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri UNICEF og Garðar Forberg, liðsforingi og fyrrum fulltrúi Íslands […] 24. mars 2026 Flotinn sem fór: Kaupskipaleysi Íslands er þjóðaröryggismál Nú eru engin kaupskip skráð á Íslandi en árið 1987 voru þau 39. Öll skip íslenskra útgerða sigla undir erlendum fánum, t.d. færeyskum, norskum, eða hollenskum, þrátt fyrir að yfir 90% af vöruviðskiptum Íslands berist sjóleiðis. Eldsneyti, matvæli, lyf og byggingarefni berast því nær eingöngu með skipum sem Ísland hefur enga lögsögu yfir. Það er […] 16. febrúar 2026 Rússnesk skemmdarverk, innviðir og Ísland Fyrir nokkrum mánuðum tilkynnti Beate Gangås, forstjóri norsku öryggisþjónustunnar PST, að rússneskir hakkarar hefðu náð yfirráðum yfir stíflu í Bremanger. Árásaraðilarnir opnuðu fyrir stífluna og í fjórar klukkustundir runnu 500 lítrar á sekúndu úr henni. Þó að árásin hafi verið í apríl var það ekki fyrr en um haustið sem PST gat fullyrt að Rússar […] 15. febrúar 2026 Staða Íslands í ógnarstríði Rússa rædd á Bylgjunni Kristinn Árni L. Hróbjartsson, meðstofnandi Vörðu, var til viðtals hjá Heimi Karlssyni og Lilju Karlsdóttir í Bítinu á Bylgjunni um nýútkomna skýrslu um skemmdarverk Rússa í Evrópu. Hægt er að hlusta í hlekknum hér að neðan. https://www.visir.is/k/c9decc77-18d4-4fb3-8fc7-abeadec53dbd-1770882088400/hver-er-stada-islands-i-ognarstridi-russa- 31. janúar 2026 Varða skipar ráðgjafaráð Varða, hugveita um öryggismál og viðnámsþrótt, hefur skipað fimm manna ráðgjafaráð. Varða er sjálfstæð hugveita sem vinnur að því að efla þjóðaröryggi og viðnámsþrótt Íslands. Meðal markmiða er að festa í sessi nýjan og óháðan vettvang á Íslandi um þessi mikilvægu en flóknu málefni. Ráðgjafaráð Vörðu er skipað reynslumiklum sérfræðingum sem styðja við faglega þróun […] 30. desember 2025 Nýtt ár, nýr veruleiki, nýtt samtal Eftirfarandi grein birtist, örlítið breytt, fyrst á Vísi.is þann 29. desember 2025. Á árinu sem er að líða breyttist öryggisumhverfi Evrópu til hins verra svo miklu munar. Viðbrögð nágranna okkar og frændþjóða á norðurlöndunum létu ekki á sér standa. Danmörk breytti reglum um herskyldu svo nú geta konur verið kvaddar til herskyldu til jafns við […] 10. desember 2025 Eitthvað hefur breyst Þegar æðstu ráðamenn Íslands ræða á hreinskiptinn hátt við almenning um aðlandið sé ekki lengur á lágspennusvæði, að fjölþáttaógnum í garð þess fari fjölgandi og að innviðir landsins – einkum neðansjávarinnviðir – séu berskjaldaðir, er ljóst að eitthvað hefur breyst. Lega landsins, sem áður gaf tilfinningu fyrir fjarlægð og skjóli, gerir það ekki lengur. Ísland […] 8. desember 2025 Ný IISS-skýrsla um öryggis- og varnarmálastefnu Íslands Breska hugveitan International Institute for Strategic Studies (IISS) hefur unnið sjálfstæða greiningu á nýrri öryggis- og varnarmálastefnu Íslands að beiðni Vörðu –vettvangs um viðnámsþrótt. Í greiningu sinni metur IISS nýju stefnu stjórnvalda sem bæði tímabæra og raunhæfa. Stefnan tekur skýrt mið af breyttu öryggisumhverfi: óhefðbundnu stríði Rússlands gegn Evrópu, viðvarandi netárásum og efnahagslegum þrýstingi. Stefna […] 8. desember 2025 „Small state, big exposure“ – International Institute for Strategic Studies skrifar um Ísland Charlie Edwards, greinandi hjá bresku hugveitunni International Institute for Strategic Studies (IISS) birti nýverið pistil um stefnu íslenskra stjórnvalda í öryggis- og varnarmálum. Pistillinn biggir að miklu leyti á vinnu sem Charlie vann að beiðni Vörðu, en IISS gerði samanburðargreiningu nýja stefnu Íslands í málaflokknum. Charlie Skrifar: „Iceland’s geostrategic location, once a source of security, […]

Fjölmiðlafyrirspurnir og viðtalsbeiðnir fara á hallo@varda.org. Varða veitir viðtöl á íslensku og ensku.