Að finna og fæla
Ógnir vegna dróna og gloppur í opinberum viðbragðskerfum
Drónatengd atvik hafa aukist verulega í Evrópu á síðustu árum og valdið truflunum á flugvöllum, höfnum og öðrum innviðum. Árið 2025 leiddu meðal annars óþekktir drónar til lokana á flugvöllum í Danmörku og Noregi og svipuð atvik við Keflavíkurflugvöll vöktu athygli hér á landi. Þróunin hefur ekki gengið til baka. Þvert á móti hafa nýleg […]
Ný skýrsla frá Vörðu, unnin í samstarfi við Brooks Tech Policy Institute (BTPI) við Cornell-háskóla, fjallar um þær ógnir sem drónar geta skapað og rýnir í hvernig íslenskt viðbragðskerfi stendur gagnvart þeim. Nýleg atvik sýna að drónar eru raunveruleg ógn sem yfirvöld á Íslandi þurfa að taka alvarlega.
Niðurstöður skýrslunnar benda til þess að þrjár gloppur dragi úr getu íslenskra yfirvalda til að takast á við drónatengdar ógnir. Þær snúa að ógnarmati og ábyrgðarskiptingu, viðbrögðum þegar atvik koma upp, og samhæfingu þeirra aðila sem bera ábyrgð á öryggi mikilvægra innviða. Í skýrslunni er jafnframt bent á að landfræðileg einangrun Íslands og takmarkaðar varaleiðir geti gert afleiðingar röskunar meiri en víða annars staðar í Evrópu.
Þrjár megináherslur
Að komið verði á skýrum og skriflegum verkferlum milli lögreglu og þeirra aðila sem fyrst verða varir við grunsamlegt drónaflug.
Að lögreglu verði tryggðar skýrari heimildir og aukin fjármögnun til að bregðast við drónatengdum atvikum.
Að komið verði á fót viðvarandi samskipta- og viðbragðsvettvangi til að styrkja stöðuvitund og eftirlit gagnvart mögulegum ógnum.
Skýrslan er gefin út á íslensku og ensku. Fyrirspurnir um aðferðafræði, gögn eða viðtöl fara á hallo@varda.org.