Gleym mér ei
Stóraukið álag á sérsveit ríkislögreglustjóra kallar á uppbyggingu og fjármagn
Vitna í þessa útgáfu
Árið 2025 sinnti sérsveit ríkislögreglustjóra 424 vopnaútköllum, að jafnaði fleiri en einu á dag. Útköllin hafa því rúmlega sjöfaldast síðan árið 2014. Mönnun sveitarinnar hefur á sama tíma breyst lítið frá 2008. Vorið 2025 voru alls 46 sérsveitarmenn starfandi, eða tíu færri en heimild er fyrir.1
Vopnaútköll sýna aðeins hluta álagsins á sérsveitina. Hún sinnir einnig hættulegum handtökum, öryggisgæslu, aðstoð við rannsóknir og sérhæfðum aðgerðum á landi og hafi. Þar við bætist regluleg þjálfun og sólarhringsviðbúnaður vegna alvarlegustu atvika.2 Breytt öryggisumhverfi hefur jafnframt leitt til fleiri og flóknari verkefna.3 Þótt íslenska lögreglan starfi eftir fimm þjálfunarstigum að norskri fyrirmynd, sýna opinber gögn ekki hvernig verkefnum er skipt milli þeirra eða hvaða viðmið ráða því hvenær sérsveitin er kölluð út.4 Þegar hluti sveitarinnar er bundinn í umfangsmiklu eða fjarlægu verkefni fækkar þeim sérsveitarmönnum sem geta brugðist við öðru alvarlegu atviki.
Tillögur Vörðu
Varða leggur til að stjórnvöld tryggi sérsveit ríkislögreglustjóra aukið og varanlegt fjármagn til að efla mönnun, þjálfun, búnað og aðstöðu sveitarinnar. Fyrsta skrefið verði að tryggja fjármögnun þeirra tíu stöðugilda sem þegar hafa verið heimiluð, en áætlaður kostnaður við það er 300–400 milljónir króna.i
Ríkislögreglustjóra verði falið að gera og birta reglulega mat á mannafla- og fjárfestingarþörf sérsveitarinnar og fyrirkomulagi vopnaðra viðbragða lögreglunnar.
Samhliða leggi stofnunin mat á þjálfun, búnað, mönnun og dreifingu aðgerðasveita lögregluumdæmanna á þjálfunarstigi 2 og grípi til úrbóta þar sem þörf krefur.
1. Vopnaútköll rúmlega sjöfölduðust en mönnun breyttist lítið
Vopnaútkall á sér stað þegar sérsveitin er kölluð út vegna tilkynningar um vopnaðan einstakling. Þær tilkynningar berast yfirleitt Neyðarlínunni, sem miðlar þeim til fjarskiptamiðstöðvar ríkislögreglustjóra, þar sem metið er hvort aðstæður krefjist vopnaðra viðbragða. Sé svo er sérsveitin kölluð út og útkallið skráð á grundvelli þeirra upplýsinga sem þá liggja fyrir. Flokkunin segir því að tilkynnt hafi verið um vopn, en ekki að vopn hafi fundist á vettvangi eða því verið beitt.6
Vopnaútköllum sérsveitarinnar fjölgaði úr 56 árið 2014 í 424 árið 2025. Útköllin árið 2025 voru því um sjöfalt fleiri en árið 2014. Árið 2014 var sérsveitin kölluð út vegna vopnatilkynninga rétt um einu sinni í viku að meðaltali. Árið 2025 var hún kölluð út að meðaltali 1,16 sinnum á dag.7
Heimild: Gagnavísinda- og upplýsingadeild ríkislögreglustjóra (2026). Útköll þar sem tilkynnt var um vopn á vettvangi.
Gögn myndarinnar
| Vopnaútköll | |
|---|---|
| 2014 | 56 |
| 2015 | 68 |
| 2016 | 83 |
| 2017 | 174 |
| 2018 | 201 |
| 2019 | 202 |
| 2020 | 308 |
| 2021 | 320 |
| 2022 | 392 |
| 2023 | 467 |
| 2024 | 478 |
| 2025 | 424 |
Langflest útköll eru vegna hnífa- og eggvopna, sem áttfölduðust á tímabilinu. Aukning útkalla vegna skotvopna nánast þrefölduðust á tímabilinu. Árið 2025 voru 74 útköll vegna skotvopnaburðar, eða fleiri en vopnaútköll í heild árið 2014.8
Mönnunin fylgdi þessari þróun ekki eftir. Árið 2008 skipaði 41 lögreglumaður sérsveit ríkislögreglustjóra. Árið 2018 voru 46 starfsmenn skráðir hjá sveitinni og sami fjöldi var starfandi vorið 2025. Þótt opinberar heimildir noti ekki með öllu sama orðalag, benda birtar tölur til þess að heildarmönnun hafi lítið breyst í sautján ár.9
Heimild: Gagnavísinda- og upplýsingadeild ríkislögreglustjóra (2026). Sundurliðun eftir vopnategund liggur fyrir frá 2015. Margfeldi sýnir breytingu 2015–2025; kvarði hverrar línu er sjálfstæður. Í einu útkalli getur verið tilkynnt um fleiri en eina tegund vopns.
Gögn myndarinnar
| Eggvopn og bitvopn | Skotvopn | Barefli | |
|---|---|---|---|
| 2015 | 40 | 29 | 3 |
| 2016 | 57 | 27 | 1 |
| 2017 | 107 | 51 | 9 |
| 2018 | 137 | 56 | 4 |
| 2019 | 119 | 66 | 16 |
| 2020 | 221 | 63 | 21 |
| 2021 | 219 | 87 | 30 |
| 2022 | 274 | 91 | 26 |
| 2023 | 361 | 87 | 38 |
| 2024 | 374 | 76 | 25 |
| 2025 | 311 | 74 | 42 |
Heildarfjöldi starfandi sérsveitarmanna segir ekki til um hversu margir eru tiltækir í útkall hverju sinni. Vaktaskipulag, þjálfun, orlof, veikindi og önnur verkefni hafa áhrif á þann fjölda. Síðustu birtu upplýsingar um vaktaskipulag og skiptingu vinnutíma eru frá árinu 2008. Samkvæmt þeim átti sérsveitin að halda uppi viðbúnaði allan sólarhringinn, með að minnsta kosti 75 prósentum vinnutímans í lögregluverkefni og allt að 25 prósentum í þjálfun. Síðan hefur ekkert verið birt um hvernig sú skipting reyndist í framkvæmd eða hvernig henni er háttað nú. Meta þarf mannaflaþörf sveitarinnar út frá þjálfun jafnt sem útköllum.10
Vorið 2025 var fyrirhuguðu nýliðanámskeiði sérsveitarinnar aflýst vegna fjárskorts. Um 50 lögreglumenn höfðu þá tekið þátt í undirbúningsferli í tæpt ár og um 25 þeirra voru metnir hæfir til að taka þátt í námskeiðinu. Til stóð að ráða um helming þeirra í sérsveitina. Dómsmálaráðherra boðaði að brugðist yrði við stöðunni og í júlí samþykkti Alþingi 80 milljóna króna fjárveitingu til nýliðamenntunarinnar. Námskeiðið var síðar haldið og samkvæmt upplýsingum Vörðu voru tveir þeirra sem luku því ráðnir í sérsveitina. Heildarfjöldi sérsveitarmanna jókst þó ekki.11
Fjölgun vopnaútkalla til lengri tíma, samhliða nær óbreyttri mönnun, sýnir að álagið hefur aukist á þröngan hóp starfsmanna. Mat á stöðunni þarf því að ná bæði til mönnunar sveitarinnar og til þess hvernig stigskipt viðbragðsgeta lögreglunnar getur dreift álaginu betur.
2. Hver á að sinna hverju?
Sérsveit ríkislögreglustjóra sinnir þeim vopnuðu verkefnum lögreglunnar sem krefjast mestrar sérhæfingar, þar á meðal hættulegum handtökum og alvarlegum ofbeldisatvikum. Sveitinni er einnig ætlað að bregðast við gíslatökum, sprengjutilræðum, flugránum, sjóránum og hryðjuverkum. Hún þarf að geta tekið þátt í aðgerðum hvar sem er á landinu og innan efnahagslögsögu Íslands.12
Lögreglan á Íslandi tók árið 2015 upp fimm þjálfunarstig að norskri fyrirmynd. Fyrstu þrjú stigin lúta að vopnuðum viðbrögðum. Sérsveitin skipar fyrsta stigið. Á öðru stigi eru aðgerðasveitir lögregluumdæmanna. Þjálfunarkrafan þar er 99 klukkustundir á ári og nær meðal annars til meðferðar skammbyssna og lagvopna, handtaka, vopnaðrar öryggisgæslu og mannfjöldastjórnunar. Á þriðja stigi eru útkallslögreglumenn. Krafan þar er 69 klukkustundir og nær til meðferðar vopna, framkvæmdar handtaka og aðferða við hættulegar aðstæður. Fyrirliggjandi gögn sýna aukningu í tilfellum þar sem lögregla vopnast og því ljóst að þessi aukna þjálfun er nauðsynleg.13
Sama meginregla mótar vopnuð viðbrögð lögreglu í Noregi, Svíþjóð og Danmörku. Þar sinna miðlægar sérsveitir sérhæfðustu og áhættumestu aðgerðunum og svæðis- eða umdæmisbundnar sveitir öðrum krefjandi vopnuðum verkefnum. Birtar þjálfunarkröfur á öðru og þriðja stigi á Íslandi eru svipaðar að klukkustundafjölda og samsvarandi kröfur í Noregi.14
Þróunin í útköllum sérsveitarinnar og almennrar lögreglu vekur spurningar um hvernig íslenska stigskiptingin virkar í framkvæmd. Kjarni málsins er verkaskiptingin. Greina þarf hvers vegna sérsveitin sinnir svo mörgum vopnaútköllum, hvaða hluta þeirra aðgerðasveitir umdæmanna geta tekið að sér og hvað þarf til að tryggja örugga og samræmda framkvæmd. Niðurstaða greiningarinnar þarf að ráða bæði mönnun sérsveitarinnar og því hvernig annað þjálfunarstigið verður eflt.
3. Breytt öryggisumhverfi kallar á aukinn viðbúnað
Eins og fyrr segir verður álag á sérsveitina ekki metið út frá fjölda vopnaútkalla einum saman. Á meginlandi Evrópu hafa skemmdarverk á landi og hafi, tilraunir til manndráps, netárásir og önnur refsiverð háttsemi verið tengd við erlend ríki og leyniþjónustur þeirra og margfaldast á milli ára. Samhliða hefur skipulögð brotastarfsemi orðið umfangsmeiri og ofbeldisfyllri. Viðbragð við báðum þessum nýju hættum mun vera að miklu leyti á herðum sérþjálfaðra sveita eins og sérsveit ríkislögreglustjóra. Fjarlægðin ver Ísland ekki lengur, ef hún gerði það nokkru sinni. Fyrri greiningar Vörðu hafa fjallað um ógnir vegna dróna og skemmdarverka gegn mikilvægum innviðum. Atvik af þeim toga geta í upphafi birst sem skemmdir, truflun á starfsemi eða óvenjuleg háttsemi, en síðar vakið grun um refsiverðan ásetning. Sé þá talin hætta á beitingu vopna eða sprengiefna, alvarlegu ofbeldi eða hættulegri handtöku getur þurft að kalla sérsveitina til. Breytt öryggisumhverfi eykur því álag á sveitina með verkefnum sem eru ekki endilega skráð sem vopnaútköll.15
Grunur um skemmdarverk á mikilvægum innviðum krefst einnig skjótra og samhæfðra aðgerða lögreglu og annarra viðbragðsaðila, meðal annars á hafi úti. Á jóladag 2024 skemmdist rafstrengurinn Estlink 2 milli Finnlands og Eistlands og fjarskiptastrengir í Finnska flóanum skemmdust einnig. Grunur beindist að olíuskipinu Eagle S. Finnska lögreglan stýrði aðgerðinni og fór um borð í skipið ásamt landamæragæslunni, með aðstoð þyrlna hennar og finnska hersins. Atvik sem leit fyrst út sem bilun eða skemmd á borgaralegum innviðum varð þannig að lögreglurannsókn með þjóðaröryggisþýðingu og kallaði á sérhæfða aðgerð á hafi.16
Þörfin fyrir vopnuð viðbrögð nær til landsins alls, eins og rakið var í fyrri kafla. Íslensk dæmi sýna jafnframt að sérsveitin getur þurft að starfa langt frá landi og með stuðningi Landhelgisgæslunnar. Árið 2017 flutti þyrla Landhelgisgæslunnar sérsveitarmenn um borð í Polar Nanoq, um 90 sjómílur (um 170 km) suðvestur af Íslandi, þar sem þeir handtóku tvo skipverja. Í júlí 2026 flutti þyrlusveit hennar sérsveitarmenn um borð í varðskipið Freyju. Sérsveitin og séraðgerðasveit Landhelgisgæslunnar fóru þaðan um borð í Bandero, handtóku skipstjórann og tóku yfir stjórn skipsins.17
Þessi dæmi sýna hvernig landfræðileg stærð starfssvæðisins eykur áhrif einstakra verkefna á mannafla sveitarinnar. Ferð á vettvang tekur tíma, krefst flutnings með þyrlu eða varðskipi og bindur sérsveitarmenn fjarri öðrum verkefnum. Á meðan þarf sá hluti sveitarinnar sem eftir er að halda uppi vopnuðum viðbúnaði annars staðar á landinu.
Breytt öryggisumhverfi krefst þess að sveitin ráði við langvinnar og fjarlægar aðgerðir án þess að viðbúnaður annars staðar gefi eftir. Mönnun, vaktaskipulag og flutningsgeta þurfa að taka mið af því.
4. Fyrsta skrefið er að manna heimiluð stöðugildi
Mönnun þeirra tíu stöðugilda sem þegar eru heimiluð fjölgar starfandi sérsveitarmönnum um tæp 22 prósent. Það er afmarkað fyrsta skref sem stjórnvöld geta tekið strax. Heimilaður fjöldi, 56 sérsveitarmenn, byggir ekki á nýlegu, birtu þarfarmati og segir því ekki til um hvort hann nægi miðað við verkefni og kröfur til sérsveitarinnar í dag. Samhliða þurfa stjórnvöld að vinna heildarmat á hlutverki, verkefnum, viðbúnaði, mannafla og fjárfestingaþörf sérsveitarinnar.18
Mikilvægur munur á Íslandi og nágrannalöndunum liggur í því að þar er þörfin greind og niðurstaðan birt. Í Englandi og Wales gerir hvert lögregluembætti árlegt áhættumat sem ákvarðar fjölda vopnaðra lögreglumanna og eftirlitsstofnun lögreglu birti árið 2023 úttekt á því hvort embættin stæðust eigið mat. Í Noregi hefur verið birt greining á skipulagi viðbragðssveita lögregluumdæmanna og í Danmörku var sérsveit öryggislögreglunnar stækkuð árið 2015 með birtum rökstuðningi. Þing og almenningur geta því séð hvernig þörfin var metin og hvað var ákveðið. Á Íslandi hefur ekkert slíkt mat verið birt, og því hefur enginn grundvöll til að kalla eftir efndum.19
Matið þarf að sýna hversu fjölmenn sveitin þarf að vera til að halda uppi sólarhringsviðbúnaði, sinna þjálfun og ráða við dagleg útköll, langvinnar aðgerðir og fleiri en eitt alvarlegt atvik í senn. Það þarf einnig að taka til eðlis útkallanna, þar á meðal vopnategunda, og skýra verkaskiptingu sérsveitarinnar og aðgerðasveita lögregluumdæmanna á þjálfunarstigi 2. Þar þarf að liggja fyrir hvaða verkefnum aðgerðasveitirnar sinna, hvernig geta þeirra dreifist um landið og hvaða viðmið leiða til aðkomu sérsveitarinnar. Á grunni matsins þarf að vinna og birta áætlun um mönnun og uppbyggingu sérsveitarinnar og annars vopnaðs viðbragðs lögreglunnar.
Uppbyggingin sem bíður krefst fyrirsjáanlegrar fjármögnunar til framtíðar. Aðildarríki Atlantshafsbandalagsins hafa skuldbundið sig til að verja allt að 1,5 prósentum af vergri landsframleiðslu árlega til öryggistengdra útgjalda fram til 2035, meðal annars til verndar mikilvægum innviðum, borgaralegs viðbúnaðar og viðnámsþróttar.20 Stjórnvöld þurfa að meta hvaða hlutar uppbyggingarinnar falla undir þær skuldbindingar sem Ísland hefur þegar undirgengist.
Engin teikn eru á lofti um að álagið á sérsveitina minnki, þvert á móti. Þeim mun brýnna er að nægur sérhæfður mannafli sé tiltækur þegar dagleg útköll, viðbúnaður og umfangsmikil verkefni skarast. Til þess þarf að manna sveitina og efla búnað og þjálfun. Jafnframt þarf að tryggja að aðgerðasveitir umdæmanna taki sinn hluta vopnaðra verkefna. Hvorugt verður gert í einni atrennu. Uppbyggingin kallar á áætlun sem nær yfir fleiri en eitt fjárlagaár og er endurmetin reglulega.
Heimildir
Varða áætlar að hvert stöðugildi í sérsveitinni kosti 30–40 milljónir króna á ári, eða samtals 300–400 milljónir króna fyrir þau tíu stöðugildi sem eru heimiluð en ómönnuð. Áætlunin byggist á tveimur opinberum viðmiðum. Í minnisblaði dómsmálaráðuneytisins um fjármál ríkislögreglustjóra frá september 2025 kemur fram að hvert stöðugildi hjá embættinu kosti að meðaltali um 22 milljónir króna á ári. Í frumvarpi til fjáraukalaga fyrir árið 2026 var fjölgun almennra lögreglumanna um 50 kostnaðarmetin á 1.250 milljónir króna á ári, eða 25 milljónir króna á hvert stöðugildi. Áætlun Vörðu tekur jafnframt mið af kostnaði vegna sérhæfðrar þjálfunar, búnaðar, vaktaálags og yfirvinnu.5
- Gagnavísinda- og upplýsingadeild ríkislögreglustjóra. (2026). Tölur frá lögreglu: Vopnaútköll sérsveitar [óútgefin Excel-gögn afhent Vörðu 29. apríl og 22. september 2026]; Þingskjal 206. (2008–2009). Svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um sérsveit ríkislögreglustjóra. https://www.althingi.is/altext/136/s/0206.html; Stefán Vagn Stefánsson. (2025, 8. maí). Staða sérsveitar ríkislögreglustjóra. https://www.althingi.is/altext/raeda/156/rad20250508T105910.html
- Ríkislögreglustjóri. (e.d.). Öryggissvið. https://island.is/s/logreglan/rikislogreglustjori/oryggissvid; Reglugerð um sérsveit ríkislögreglustjórans nr. 774/1998. https://island.is/reglugerdir/nr/0774-1998; Reglugerð um starfsemi, hlutverk og ábyrgð embættis ríkislögreglustjóra nr. 325/2021. https://island.is/reglugerdir/nr/0325-2021
- Ríkislögreglustjóri. (2025, 13. nóvember). Skipulögðum brotahópum hefur fjölgað um helming. https://island.is/frett/skipuloegdum-brotahopum-hefur-fjoelgad-um-helming; Elizabeth H. Redmond, James Patton Rogers, Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé og Kristinn Árni L. Hróbjartsson. (2026). Að finna og fæla: Ógnir vegna dróna og gloppur í opinberum viðbragðskerfum. Varða. https://varda.org/utgafa/ad-finna-og-faela; Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé og Kristinn Árni L. Hróbjartsson. (2026). Gráa svæðið: Rússnesk skemmdarverk, innviðir og Ísland. Varða. https://varda.org/utgafa/graa-svaedid/
- Snærós Sindradóttir. (2017, 14. júní). Skotvopnaæfingum lögreglu fjölgað mikið. Vísir. https://www.visir.is/g/2017170619571; Þingskjal 2159. (2022–2023). Svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur um verklag lögreglu og sérsveitar ríkislögreglustjóra. https://www.althingi.is/altext/153/s/2159.html
- Dómsmálaráðuneytið. (2025, 31. október). Úttekt vegna fjárhagsstöðu embættis ríkislögreglustjóra. https://www.stjornarradid.is/frettir/grein/2025-10-31-Uttekt-vegna-fjarhagsstodu-embaettis-rikislogreglustjora-/; Þingskjal 633. (2025–2026). Frumvarp til fjáraukalaga fyrir árið 2026. https://www.althingi.is/altext/pdf/156/s/0633.pdf
- Þingskjal 2159. (2022–2023). Svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Arndísi Önnu Kristínardóttur Gunnarsdóttur um verklag lögreglu og sérsveitar ríkislögreglustjóra. https://www.althingi.is/altext/153/s/2159.html; Gagnavísinda- og upplýsingadeild ríkislögreglustjóra. (2026). Tölur frá lögreglu: Vopnaútköll sérsveitar [óútgefin Excel-gögn afhent Vörðu 29. apríl og 22. september 2026].
- Gagnavísinda- og upplýsingadeild ríkislögreglustjóra. (2026). Tölur frá lögreglu: Vopnaútköll sérsveitar [óútgefin Excel-gögn afhent Vörðu 29. apríl og 22. september 2026]. Útreikningar höfunda.
- Gagnavísinda- og upplýsingadeild ríkislögreglustjóra. (2026). Tölur frá lögreglu: Vopnaútköll sérsveitar eftir vopnategund [óútgefið Excel-skjal afhent Vörðu 22. september 2026].
- Þingskjal 206. (2008–2009). Svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um sérsveit ríkislögreglustjóra. https://www.althingi.is/altext/136/s/0206.html; Þingskjal 665. (2017–2018). Svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Albertínu Friðbjörgu Elíasdóttur um starfsemi sérsveitar ríkislögreglustjóra. https://www.althingi.is/altext/148/s/0665.html; Stefán Vagn Stefánsson. (2025, 8. maí). Staða sérsveitar ríkislögreglustjóra. https://www.althingi.is/altext/raeda/156/rad20250508T105910.html
- Þingskjal 206. (2008–2009). Svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn Kolbrúnar Halldórsdóttur um sérsveit ríkislögreglustjóra. https://www.althingi.is/altext/136/s/0206.html
- María Sigrún Hilmarsdóttir. (2025, 17. apríl). Engir teknir inn í sérsveitina í ár: Ákaflega leiðinlegt. RÚV. https://www.ruv.is/frettir/innlent/2025-04-17-engir-teknir-inn-i-sersveitina-i-ar-akaflega-leidinlegt-441809; Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir. (2025, 8. maí). Staða sérsveitar ríkislögreglustjóra. https://www.althingi.is/altext/raeda/156/rad20250508T110131.html; Þingskjal 753. (2025). Nefndarálit með breytingartillögu um frumvarp til fjáraukalaga III fyrir árið 2025. https://www.althingi.is/altext/156/s/0753.html; Fjáraukalög III fyrir árið 2025 nr. 53/2025. https://www.althingi.is/altext/156/s/0834.html; skriflegar upplýsingar frá starfandi sérsveitarmanni til Vörðu, 13. september 2026.
- Reglugerð um sérsveit ríkislögreglustjórans nr. 774/1998. https://island.is/reglugerdir/nr/0774-1998; Ríkislögreglustjóri. (e.d.). Öryggissvið. https://island.is/s/logreglan/rikislogreglustjori/oryggissvid; Reglugerð um starfsemi, hlutverk og ábyrgð embættis ríkislögreglustjóra nr. 325/2021. https://island.is/reglugerdir/nr/0325-2021
- Snærós Sindradóttir. (2017, 14. júní). Skotvopnaæfingum lögreglu fjölgað mikið. Vísir. https://www.visir.is/g/2017170619571; skriflegar upplýsingar frá starfandi sérsveitarmanni til Vörðu, 13. september 2026; Þingskjal 1817. (2023–2024). Svar dómsmálaráðherra við fyrirspurn frá Njáli Trausta Friðbertssyni um vopnuð útköll. https://www.althingi.is/altext/154/s/1817.html. Upplýsingarnar byggjast á gögnum ríkislögreglustjóra úr lögreglukerfinu LÖKE. Í einhverjum tilvikum hafði fleira en eitt lögregluembætti aðkomu að sama verkefni og því getur sama verkefni komið fyrir hjá fleiri en einu embætti.
- Norska dóms- og viðbúnaðarráðuneytið. (2022, 7. nóvember). Politiets bruk av maktmidler. https://www.regjeringen.no/no/dokumenter/politiets-bruk-av-maktmidler/id2946065/; Sænska lögreglan. (e.d.). Nationella insatsstyrkan. https://polisen.se/jobb-och-utbildning/jobba-hos-polisen/jobb-insatsstyrkan/; Danska lögreglan. (e.d.). Reaktionspatruljen. https://politi.dk/om-politiet/virksomheden/reaktionspatruljen; Danska lögreglan. (e.d.). Aktionsstyrken. https://politi.dk/om-politiet/virksomheden/aktionsstyrken
- Ríkislögreglustjóri. (2025, 13. nóvember). Skipulögðum brotahópum hefur fjölgað um helming. https://island.is/frett/skipuloegdum-brotahopum-hefur-fjoelgad-um-helming; Elizabeth H. Redmond, James Patton Rogers, Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé og Kristinn Árni L. Hróbjartsson. (2026). Að finna og fæla: Ógnir vegna dróna og gloppur í opinberum viðbragðskerfum. Varða. https://varda.org/utgafa/ad-finna-og-faela; Sólrún H. Guðmundsdóttir Proppé og Kristinn Árni L. Hróbjartsson. (2026). Gráa svæðið: Rússnesk skemmdarverk, innviðir og Ísland. Varða. https://varda.org/utgafa/graa-svaedid/; Reglugerð um sérsveit ríkislögreglustjórans nr. 774/1998. https://island.is/reglugerdir/nr/0774-1998
- Finnska lögreglan. (2024, 26. desember). Police investigating incidents in the Gulf of Finland in cooperation with other authorities. https://poliisi.fi/en/-/police-investigating-incidents-in-the-gulf-of-finland-in-cooperation-with-other-authorities; Finnska lögreglan. (2024, 30. desember). Cable ruptures also investigated as offences of aggravated interference of communications. https://poliisi.fi/en/-/cable-ruptures-also-investigated-as-offences-of-aggravated-interference-of-communications
- Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu. (2017, 18. janúar). Leitin að Birnu Brjánsdóttur: Tveir menn handteknir. https://island.is/frett/leitin-ad-birnu-brjansdottur-tveir-menn-handteknir; Landhelgisgæsla Íslands. (2026, 30. júlí). Landhelgisgæsla Íslands og sérsveit ríkislögreglustjóra tóku yfir stjórn Bandero. https://www.lhg.is/2026/07/30/landhelgisgaesla-islands-og-sersveit-rikislogreglustjora-toku-yfir-stjorn-bandero/
- Stefán Vagn Stefánsson. (2025, 8. maí). Staða sérsveitar ríkislögreglustjóra. https://www.althingi.is/altext/raeda/156/rad20250508T105910.html. Útreikningar höfunda.
- College of Policing. (e.d.). Armed policing strategic threat and risk assessment. Authorised Professional Practice. https://www.college.police.uk/app/armed-policing/armed-policing-strategic-threat-and-risk-assessment; His Majesty’s Inspectorate of Constabulary and Fire & Rescue Services. (2023, 11. júlí). An inspection of how effective police forces are in the deployment of firearms. https://hmicfrs.justiceinspectorates.gov.uk/publication-html/how-effective-police-forces-are-in-the-deployment-of-firearms/; Politidirektoratet. (2022). Innretning av politiets utrykningsenheter (UEH): Samfunnsøkonomisk analyse. Offentlig versjon. https://kudos.dfo.no/dokument/50140/innretning-av-politiets-utrykningsenheter-ueh-samfunnsokonomisk-analyse-offentlig-versjon-samfunnsokonomisk-analyse-offentlig-versjon; Justitsministeriet. (2015, febrúar). Et stærkt værn mod terror: 12 nye tiltag mod terror. https://www.justitsministeriet.dk/sites/default/files/media/Pressemeddelelser/pdf/2015/Et%20st%C3%A6rkt%20v%C3%A6rn%20mod%20terror.pdf
- Atlantshafsbandalagið. (2025, 25. júní). The Hague Summit Declaration. https://www.nato.int/en/about-us/official-texts-and-resources/official-texts/2025/06/25/the-hague-summit-declaration