Umsögn um frumvarp til fjárlaga 2027
Sjö tillögur til fjárlaganefndar Alþingis um fjárveitingar til öryggis- og varnarmála

Ísland hefur skuldbundið sig til að verja 1,5% af vergri landsframleiðslu til varnartengdra verkefna fyrir árið 2035. Miðað við áætlaða landsframleiðslu ársins 2026 samsvarar það um 77 ma.kr. á ári. Framlög til öryggis- og varnarmála munu því aukast um tugi milljarða króna á næstu árum.










